Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 372
370 Tækni- og vísindagreinar
halda, gert auðveldara fyrir. Þá skal einnig á það bent að ekki er sólarhringsvakt hjá öllum
neyðarsveitum og verður sá sem í neyðinni lendir jafnvel að hlusta á símsvara sem gefur upp
símanúmer hjá þeim sem á bakvakt er hverju sinni. Á mörgum stöðum á landinu er viðveru-
tími eða afgreiðslutími hjá lögreglu eða slökkviliði aðeins í nokkra tíma á dag. Með því að
hringja í 1-1-2 getur sá sem lendir í neyð alltaf náð í einhvern til að tala við og fengið nauð-
synlega aðstoð við að ná í rétt hjálparlið.
Nýir starfsmenn — nýr starfsvettvangur
Starfsmenn á varðstofu Neyðarlínunnar hf. bera starfsheitið neyðarsímaverðir og er bak-
grunnur þeirra m.a. innan heilbrigðisstétta, lögreglu, björgunarsveita og öryggisfyrirtækja.
Starfsmenn fá verklega þjálfun hjá Slökkviliðinu í Reykjavík og Lögreglunni í Reykjavík
ásamt því að sækja námskeið og fyrirlestra um efni sem tengist störfum þeirra. Gerður var
samningur við Reykjavíkurborg um verktöku slökkviliðsmanns á varðstofu Neyðarlínunnar
sem tryggir þekkingu á starfssviði slökkviliðsins, en Slökkviliðið í Reykjavík óskaði eftir
mestu þjónustu sem í boði er fyrir neyðarsveitir.
Starfsemi Neyðarlínunnar er nýr starfsvettvangur þar sem komið er fyrir á einum stað því
sem áður var framkvæmt af mörgum ólíkum aðilum. Neyðarlínan þjónar lögreglu, slökkvi-
liði, sjúkraflutningaliði og læknum í neyðarútkalli, en þessi starfsemi var áður hjá hverjum
og einum viðbragðsaðila. Með tilkomu Neyðarlínunnar er öllum neyðarhringingum fyrir
landið allt svarað á einum stað. Einnig rekur Neyðarlínan vaktþjónustu á öryggiskerfum
fyrir öryggisfyrirtæki. I dag kaupa tvö öryggisfyrirtæki vaktþjónustu af Neyðarlínunni,
Securitas ehf. og Vari ehf.
Þjónusta Neyðarlínunnar
Samkvæmt samningnum við dómsmálaráðuneytið er þjónustunni við neyðarsveitirnar skipt
í þrjú þjónustustig, eftir eðli málsins og aðstæðum á hverjum stað.
Símtalsflutningur: Ef hringt er í 1-1-2 og óskað eftir aðstoð t.d. lögreglu og á varðstofu við-
komandi lögreglu er sólarhringsvakt er símtalið flutt til þeirra án frekari meðferðar af hálfu
Neyðarlínunnar. Sá sem hringdi í 1-1-2 fær samband við viðkomandi neyðarsveit innan
nokkurra sekúndna. Þrátt fyrir að viðbragðslið hafi sólarhringsvakt á varðstofu getur það
einnig óskað eftir þjónustustigi 2 ,þ.e. boðun.
Boðun: Á þeim stöðum þar sem ekki er sólarhringsvakt er neyðarsímtalið tekið til meðferð-
ar, þ.e. leitað er eftir eins nákvæmum upplýsingum um atvikið og kostur er til að hægt sé að
bregðast við á réttan hátt. Meðan á því stendur er annar neyðarsímavörður að undirbúa
boðun neyðarsveitar. Boðun eða útkall gelur verið með ýmsum hætti, t.d. í gegnum símboða-
kerfið, farsímakerfið eða bein hringing á þá sem eru á bakvakt samkvæmt þeim upplýsing-
um sem skráðar eru í gagnagrunn Neyðarlínunnar. Reynt er eftir megni að veita alla þá að-
stoð sem hægt er í gegnum síma á meðan beðið er komu hjálparliðs á slysstað. Þá er stuðst
við verklagsreglur sem hannaðar voru af læknum og sjúkraliði í Bandaríkjunum og aðlag-
aðar íslenskum aðstæðum. í mörgum tilvikum þarf að kalla úl fleiri en einn aðila lil að sinna
viðkomandi útkalli.