Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Page 202
staðsteypt, niðurgrafin miðlunarmannvirki með skolunarbúnaði og hins vegar mjög sver
ræsi til hliðar við núverandi sniðræsi.
Niðurstöður athugana á miðlun í kerfinu eru helstar:
• Kostnaður við byggingu slíkra miðlana er um 15-20 þúsund krónur á rúmmetra
miðlunar fyrir staðsteyptu mannvirkin en um 25-30 þúsund fyrir ræsin. Á móti er
rekstur ræsanna ódýrari þar sem þau hreinsa sig sjálf
• Til staðar er nokkur ónýtt miðlun í núverandi sniðræsum og með lokubúnaði mætti
auka miðlun þeirra um allt að 3000 m3
• 5000 m3 miðlunaraukning ofan við Faxaskjólsstöð myndi stytta þann tíma sem yfir-
fallsrennsli varir umtalsvert
• Lækkun rekstrarkostnaðar vegna miðlunarmannvirkja réttlætir ekki byggingu þeirra
ein og sér
Endurnýjun dælupípa í Skeljanesi
Árið 2000 þurfti að skipta um upprunalegar dælur í Skeljanesstöð þar sem þær önnuðu
ekki rennslinu. Við þau skipti voru settar mun afkastameiri dælur en ekki skipt um
stálpípurnar sem dælt er inn í. Þar sem rennslið jókst úr um 320 1/s í um 450 1/s eða um
40% vaknar sú spurning hvort óþarfa orkusóun verði ekki í þessum pípum.
Niðurstöður athugunar á sverun dælupípa í Skeljanesi eru helstar:
• Sverun myndi lækka rekstrarkostnaðinn um 560 þúsund krónur á ári
• Lauslegt mat á kostnaði er um 2,5 milljónir króna
• Framkvæmdin hefði líklega í för með sér nokkra losun skólps í sjó á þessum við-
kvæma stað á byggingartíma
Lokaorð
Niðurstöður bestunar kerfisins eru þær að lækka má kostnað við dælingu um 1,5 milljón
krónur á ári með bættri stillingu dælustöðvanna. Með smávægilegum breytingum í
Skeljanesstöð og Faxaskjólsstöð næst að auka þennan sparnað í alls 2,4 milljónir á ári.
Við athugun á ýmsum mögulegum breytingum kom í ljós að mikilvægt er að auka afköst
skólpdælanna í Faxaskjóli, enda hafa þau minnkað töluvert umfram hinar stöðvarnar.
Sérstaklega er það mikilvægt þar sem rennsli um yfirfall nálgast leyfileg mörk.
Fleiri atriði mætti skoða betur, svo sem endurnýjun dælupípa í Skeljanesi, sem reiknast
arðsöm breyting.
Við skoðun á viðbrögðum kerfisins við aukningu í rennsli samfara nýrri byggð kom í ljós
að gera þarf ráðstafanir til að veitan uppfylli áfram reglur um rennsli um yfirfall. Sem
lausn við þessu mætti athuga miðlunarmannvirki til að miðla rennslistoppum og jafna
rennsli fremur en að stækka kerfið. Svo virðist sem nýta megi miðlanir til að lækka kostn-
að við dælingu töluvert, þó ekki nógu mikið til að þær borgi sig eingöngu þess vegna.
Loks ber að geta þess að minnka mætti umrædd vandamál vegna aukningar rennslis með
því að minnka vatn inn í kerfið. Almennt er lítill hvati til að fara vel með vatn og er því
vatnsnotkun mikil. Auk þess er stærstur hluti vatnsins, bakrennslisvatn hitaveitu,
upphaflega hreinn og ómengaður. Því er það verðugt verkefni að minnka vatnið sem sett
er inn í fráveitukerfi Reykjavíkur í samstarfi við vatnsveitur.
2 0 0
Arbók VFl/TFl 2004