Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.05.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Mánudagur skoðun 14 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Fólk Fasteignir.is 14. maí 2012 112. tölublað 12. árgangur H önnunarMars hefur fest sig í sessi sem einn af stærstu viðburðum ársins í íslensku menningar-lífi. „Við fengum fleiri á hátíðina nú en í fyrra en þá mættu um þrjátíu þúsund manns sem eru tíu prósent þjóðarinnar. Vitund þjóðarinnar um hönnun sem atvinnugrein er að aukast og hönnuðir og aðstandendur viðburðarins eru mjög ánægðir með viðtökurnar,“ segir Greipur Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars hjá Hönnunarmiðstöð Íslands.Viðburðurinn í ár fékk töluverða umfjöllun í erlendum miðlum og hefur umfjöllunin aukist ár frá ári. „Markmiðið með Hönnunarmars er að vekja athygli á íslenskri hönnun bæði hérlendis og erlendis. Öll umfjöllun er góð og þ ðer gott ð tíðarinnar hafi fundið fyrir miklum áhuga fagaðila erlendis frá. Hátíðin þyki sérstök og íslensk hönnun áhugaverð. Hönnuðirnir sem tóku þátt í síðustu hátíð hafa fengið fleiri fyrirspurnir eftir hana að sögn Greips. Umfjölluninni fylgir ákveðin vakning meðal almennings í útlöndum. Við vitum af skipulögðum hópum sem komu á síðustu hátíð en aðalatriðið er að öll umfjöllun vekur athygli, þó ferða-mennirnir komi ekki endilega á ákveðinn atburð eins og HönnunarMars eða Ice-land Airwaves eða Listahátíð þá sjá þeir sem áhuga hafa á þessum viðburðum um- fjöllun um þá í erlendum miðlum og láta verða af því að koma til landsins “„Við hjá Hö VITUND ALÞJÓÐAMARGIR Á HÖNNUNARMARS Fleiri mættu á HönnunarMars í ár en í fyrra. Hátíðin hefur fest sig í sessi og er nú ein af fjórum stærstu hátíðum ársins. MIKILL ÁHUGI Greipur segir aðstandendur HönnunarMars hafa fundið fyrir miklum áhuga fagaðila erlendis frá.MYND/STEFÁN BLÁA LÓNIÐ STYÐUR VIÐ HÖNNUN Bláa lónið og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning. Hönnun skipar mikilvægan sess í starfsemi Bláa lónsins og hefur hönnun fyrirtækisins hlotið margar viðurkenningar. Með samstarfinu vill Bláa lónið stuðla að því að efla íslenska hönnun frekar. SÉRFRÆ Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja FASTEIGNIR.IS 14. MAÍ 2012 19. TBL. Einbýlishús við Traðarland í Fossvogi. Boðið er upp á opið hús á morgun, þriðjudag. Fold fasteignasala kynnir opið hús í Traðarlandi 8, þriðjudaginn 15. maí frá kl. 17.30 til 18.00. F asteignasalan Fold kynnir fallegt og vel skipulagt einbýli á einni hæð við Traðarland í Fossvogi. Lýsing eignar: Anddyri með flísum og fataskáp og lítil gesta stofa með parketi. Gengið er út á stóran pall frá sjónvarpsstofunni. Í dag eru fjögur svefnherbergi í eigninni. Þar af er eitt sem áður var tvö herbergi sem auðvelt væri að breyta aftur. Hjónaherbergið er með skápum og parketi og barna- herbergin með parketi á gólfi. Bað- herbergi er með baðkari, flísum og hvítum tækjum. Inn af eldhúsinu er þvottahús með sturtu. Frá þ tt hú i sögn seljanda eru stofur hússins samkvæmt teikningum stærri en mæling Fasteignamats ríkisins segir til um. þar að auki er 18 fer- metra sólstofa sem er óskráð í fer- metratölum. Samtals stærð hússins er um 245 fermetrar. Árið 2007 var lóðin tekin í gegn; skipt var um lagnir að húsi, hiti settur í plan, ljós- leiðari tengdur og planið hellu Fallegt hús í Fossvogi3ja herbergja íbúð í lyftublokk með flottu útsýni og yfirbyggð-um svölum í næsta húsi við Smáralind. 89,2 fm. kr. 24,9 m Rúnar Gíslason Lögg. fasteignasali Auður Kristinsd. Sölufulltrúi audur@fasteignasalan.is OP IÐ HÚ S Vegna mikillar sölu vantar eignir á skrá! Gullsmári 10, íbúð 503 Opið hús þriðjudaginn 15. maí kl. 17:30 - 18:00. Landmark leiðir þig heim! * Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Fjórir löggiltir fasteignasalar. Áralöng reynsla. Við erum Landmark* Sími 512 4900 landmark.is Magnús Einarsson Löggiltur fasteignasali Sími 897 8266 Sigurður Samúelsson Löggiltur fasteignasali Sími 896 2312 Bergur Steingrímsson Löggiltur fasteignasali Sími 896 6751 Sveinn Eyland Löggiltur fasteignasali Sími 690 0820 Þórarinn Thorarensen Sölustjóri Sími 770 0309 Kristberg Snjólfsson Sölufulltrúi Sími 892 1931 Eggert Maríuson Sölufulltrúi Sími 690 1472 Júlíus Jóhannsson sölufulltrúi sími 823 2600 Haraldur Ómarsson sölufulltrúi sími 845 8286 HVETTU BARNIÐ TIL AÐ VERA GÆTIÐ ÞEGAR ÞAÐ VEITIR PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR Á NETINU SÉRVERKEFNI www.iss.is • Teppahreinsun • Steinteppaþrif • Parkethreinsun • BónvinnaNÝ KILJA! Staðgreiðum allt gull, silfur, demanta og vönduð úr. Græddu á gulli á Grand Hótel Í dag frá kl 11:00 til 19:00 Upplýsingar og tímapantanir, Sverrir s. 661-7000 • sverrir@kaupumgull.is Mikill áhugi á ballett Ballettskóli Sigríðar Ármann fagnar sextugs- afmæli. tímamót 16 Einvalalið með Ferry Einvalalið verður með Bryan Ferry á tónleikum hans í Hörpu í lok maí. fólk 30 VEÐURFAR Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar höfðu í nógu að snúast í gær vegna óveðurs víða á landinu. Fyrsta útkall dagsins barst um klukkan hálftíu í gærmorgun, en þá voru tekin að fjúka á Hvammstanga trampólín og aðrir lausa- munir. Veðurstofan varaði fyrir helgi við því að búast mætti við vonskuveðri víða um land í gær og fram á daginn í dag. Um miðjan dag höfðu björgunarsveitir aðstoðað franska ferðamenn niður af Klettshálsi þar sem snjór var yfir öllu og veður tekið að versna. Þá aðstoðaði björgunarsveitin á Hólmavík ökumenn sem lent höfðu í „snælduvitlausu“ veðri á Stein- grímsfjarðarheiði. Þá var kölluð út sveit frá Blöndu- ósi um miðjan dag til að aðstoða bíl á Þverár- fjallsvegi. Síðdegis höfðu svo verið kallaðar út björgunarsveitir á Austurlandi þar sem veður og færð á Fjarðarheiði var orðin mjög slæm. Í gær- kvöldi festu björgunarsveitarmenn þakplötur á höf- uðborgarsvæðinu og í Vestmannaeyjum. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar var færð almennt ágæt á Vestur-, Suður-, og Suðaustur- landi. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi var hins vegar víða þæfingur og hálka og ófært til fjalla. Veðurstofan varaði síðdegis í gær við því að áfram mætti búast við hvassviðri eða stormi í dag, 15 til 23 metrum á sekúndu, með hvössum vindhviðum hlé- megin fjalla, einkum suðaustantil á landinu. - óká Björgunarsveitir aðstoðuðu ferðafólk á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi: Snælduvitlaust veður í sumarbyrjun Á AKUREYRI Í GÆR Fáir voru á ferli á Akureyri um miðjan dag í gær enda leiðindaveður, kalt, snjókoma og rok. Líklegt má telja að ferðafólk sem taldi sig hingað komið til að upplifa vorkomuna hafi orðið undrandi á samspili iðagræns grass og snjós í vorhretinu sem nú gengur yfir. MYND/AUÐUNN NÍELSSON ÁFRAM HVASST Í dag má búast við norðanstrekkingi víðast hvar, hvassast verður við A-ströndina. Horfur á éljagangi víða norðan til en sunnanlands verður bjart með köflum. Svalt í veðri. VEÐUR 4 2 -3 -1 -1 4 Valdaskipti á Englandi Manchester City varð enskur meistari eftir dramatískan lokadag. sport 24 STJÓRNSÝSLA Sérstök úrskurðar- nefnd í málefnum hælisleitenda verður líkast til sett á laggirnar. Nefnd sem nú endurskoðar útlend- ingalöggjöfina hér á landi telur það vænlegan kost. Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður nefndar um málefni útlendinga utan EES. Nefndin hefur skoðað löggjöf um málefni hælisleitenda, dvalar- leyfi og atvinnuleyfi í vetur og er gert ráð fyrir því að nýtt frum- varp að lögum um útlendinga verði lagt fyrir á Alþingi í haust. Meðal þess sem verið er að skoða er fram- kvæmd mála þegar einstaklingar koma með fölsuð skilríki hingað. „Við erum að skoða möguleikann á úrskurðarnefnd í málefnum hælis- leitenda sérstaklega. Það hefur verið alþjóðlegur þrýstingur á okkur að taka upp úrskurðarnefnd, það sé ekki eðlileg framkvæmd í þessum málaflokki að ráðuneyti úrskurði í málefnum undir stofnunar,“ segir Halla. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, Flóttamannahjálp SÞ og Rauði krossinn hafa meðal annars gert athugasemdir við framkvæmd þessara mála hér á landi. Halla bendir á að í Danmörku og Noregi séu slíkar úrskurðarnefndir starf- ræktar, og í Svíþjóð er sér stakur dómstóll sem tekur á þessum málum. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna á svæðisskrifstofu Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna hefur bent íslenskum stjórnvöldum á að skipu- lagið í þessum málum í Danmörku gæti hentað íslenskri stjórnsýslu, ef ákveðið verði að stofna sjálfstæða úrskurðarnefnd hér á landi. Nefndin í Danmörku hefur undanfarin tíu ár verið skipuð dómara, lögmanni og einstaklingi sem dómsmálaráðu- neytið tilnefnir. Tuttugu ár þar á undan var nefndin einnig skipuð einstaklingi sem utanríkisráðu- neytið tilnefndi og einstaklingi frá mannréttindasamtökum. Verið er að skoða möguleikann á því að koma slíkum fulltrúa aftur inn í nefndina. Ef hælisleitanda er neitað um stöðu flóttamanns á fyrsta stjórn- sýslustigi er málið sjálfkrafa sent til nefndarinnar. Hælis leitandinn kemur þá í eigin persónu fyrir nefndina ásamt lögmanni sínum, og fær þannig tækifæri til að tala máli sínu. - þeb Þrýst á stjórnvöld að stofna úrskurðarnefnd hælisleitenda Líklegt er að sett verði á stofn sérstök úrskurðarnefnd í málefnum hælisleitenda hér á landi. Sameinuðu þjóðirnar og Rauði krossinn hafa gert athugasemdir við framkvæmd mála hér. Von á frumvarpi í haust. Það hefur verið al- þjóðlegur þrýstingur á okkur að taka upp úrskurðar- nefnd. HALLA GUNNARSDÓTTIR FORMAÐUR NEFNDAR UM MÁLEFNI ÚTLENDINGA UTAN EES KOSNINGAR „Ég hlyti að íhuga það mjög alvarlega,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um það hvort til greina kæmi að vísa kvótafrumvörpum ríkis- stjórnarinnar í þjóðaratkvæða- greiðslu. Ólafur hóf kosningabar- áttu sína með ítarlegu við- tali í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær. „Ég tel að eðli málsins sé þannig að það séu fá mál jafn- vel fallin til þess að fara í þjóðaratkvæða- greiðslu eins og kvótamálin,“ sagði Ólafur. „Ég gæti ekki séð að nokkur forystumaður núverandi ríkisstjórnar – hvorki Jóhanna eða Steingrímur – gætu gagnrýnt það, að forsetinn mundi vísa slíku frumvarpi í þjóðaratkvæði ef þess er krafist.“ - sh / sjá síðu 6 Forsetinn hefur baráttuna: Íhugar eina synjunina enn ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.