Fréttablaðið - 14.05.2012, Side 14

Fréttablaðið - 14.05.2012, Side 14
14 14. maí 2012 MÁNUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verð- vernd bjóða nefnilega ekki lægsta verðið hjá sjálfum sér, heldur hjá öðrum – hjá keppinautum sínum. Ómerkilegri auglýsinga- brella er vandfundin. Sá sem býður verðvernd getur þess vegna verið með hæsta verðið. Eina lof orðið sem felst í verðvernd er að ef viðskiptavinur finnur lægra verð annars staðar þá fær hann mismuninn kannski endurgreiddan. Verðvernd er ódýr mark- aðssetning, því fólk hefur sjaldnast ávinning af ómældri fyrirhöfn sinni. Dæmi: Viðskiptavinur kaupir vöru á 6.000 kr. í verð- verndar verslun og finnur sambærilega vöru á 5.500 kr. í annarri. Hann þarf þá að útvega sönnun fyrir ódýrari vörunni, hún má ekki vera á tímabundnu tilboði og ekki til sölu á netinu. Með kvittun eða auglýsingu í hönd þarf viðskiptavinurinn að fara aftur í verðverndarversl- unina. Ef krafa hans er sam- þykkt (sem er alls ekki víst), þá fær viðskiptavinurinn 500 kr. mismuninn endur- greiddan og svo til viðbótar 10-12% af lægri upp hæðinni. Samtals rúmlega þúsund krónur. Hugsanlega, en varla þó, dugar peningurinn fyrir bensíninu í þessar við- bótarferðir. Tímakaup: núll krónur. Það getur seint talist hag- kvæmt fyrir fólk að fara þrjár ferðir til að fá lægsta verðið. Að því leyti stríð- ir verðvernd gegn mark- miðum samkeppnislaga um að vinna að hagkvæmri nýt- ingu framleiðsluþátta þjóð- félagsins. Eina skynsamlega verð- verndin er auðvitað að neyt- endur beri saman verð milli verslana áður en þeir kaupa. Verðvernd er rökleysa Viðskipti Ólafur Hauksson almannatengill Eina skyn- samlega verðverndin er auðvitað að neyt- endur beri saman verð milli verslana áður en þeir kaupa. www.ms.is Með D-vítamíni sem hjálpar þér að vinna kalkið úr mjólkinni. Meira fjör með Fjörmjólk! Fáðu D-v ítamín úr Fjörmjó lk! Ó lafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist lands- mönnum í gamalkunnugum, pólitískum árásarham í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær morgun. Hann gagnrýndi þar einkum og sér í lagi Þóru Arnórs- dóttur mótframbjóðanda sinn býsna harkalega. Hann talar harðar um mótframbjóðendurna en þeir hafa talað um hann. Ólafur ætlar að heyja alvöru kosningabaráttu; opna kosninga- miðstöð, fara í fundaherferð um landið, opna heimasíður og nýta samfélagsmiðla eins og flestir mótframbjóðendur hans gera. Þetta kann að koma einhverjum á óvart, því að yfirleitt þegar sitjandi forseti hefur fengið mótframboð hefur hann ekki farið í neinn slag við andstæðingana, heldur gætt orða sinna og haldið áfram að vera forsetalegur. Nú er tilfellið hins vegar að skoðana- kannanir sýna að Ólafur getur orðið undir í kosningunum. Hann telur sig því væntanlega ekki eiga annan kost en að bíta frá sér. Og þá kemur heldur ekki á óvart að hann beini spjótum sínum einkum að Þóru, sem samkvæmt könnunum veitir honum harðasta keppni, en tali heldur fallega um aðra frambjóðendur. Ólafur Ragnar hyggst hefja kosningabaráttu sína í sjávarplássinu Grindavík og ætlar greinilega að nýta sér óvinsældir kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar á lands- byggðinni. Hann gefur í skyn að hann kunni að synja lögum um breytingar á fiskveiðistjórnuninni staðfestingar og segir það mál henta öðrum betur til að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er rétt hjá Ólafi Ragnari að spurningin um þjóðareign á fiski- miðunum og gjald fyrir afnot af þeirri auðlind getur átt fullt erindi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eins og málið liggur hins vegar nú fyrir á Alþingi, þar sem blandað er saman annars vegar þessu grund- vallaratriði og hins vegar margvíslegum breytingum á fiskveiði- stjórnunarkerfinu, liggur það ekki beint við. Sá sem er hlynntur skýrari lagaákvæðum um þjóðareign og afnotarétt getur verið alveg andvígur breytingum á fiskveiðistjórnuninni sem slíkri. Þess vegna er þjóðaratkvæðagreiðsla sem kæmi í kjölfar synjunar forseta á lögunum ekki til þess fallin að leggja skýrar línur í því máli. Ólafur Ragnar ætlar greinilega að spila á óvinsældir núverandi ríkisstjórnar, meðal annars með því að vísa til ummæla andstæðings síns Þóru um að hún telji ekki að forsetinn eigi að ganga gegn utan- ríkisstefnu sitjandi ríkisstjórnar. Það er auðvit að hans útlegging á hlutverki forsetans og í fullu samræmi við það hvernig hann telur forsetann eiga að reka sjálfstæða pólitík. Þeir mótframbjóðendur hans sem mælast með mest fylgi, Þóra og Ari Trausti Guðmundsson, tala hins vegar fyrir hefðbundnari túlkun á forsetaembættinu og ætla sér augljóslega fremur hlutverk sameiningartáknsins. Ólafur Ragnar hefur rétt fyrir sér um það að í kosningunum eru línur að þessu leyti skýrar. Margir kjósendur munu vafalaust láta það ráða atkvæði sínu hvora útgáfuna af forsetaembættinu þeir kjósa fremur. Hugsanlega mun hinn árásargjarni málflutningur hjálpa Ólafi Ragnari að rétta hlut sinn á þeim tæplega sjö vikum sem eru til kosninga. En það er líka til í dæminu að hann hafi fært öðrum fram- bjóðendum tækifæri til að setja sig í forsetalegri stellingar með því að afþakka boðið um að láta draga sig ofan í pólitíska drullupollinn sem forsetinn ætlar nú greinilega að ösla í gegnum. Forsetinn í pólitískum árásarham: Skýrar línur Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Bestu og verstu Stéttarfélagið SFR hefur venju sam- kvæmt útnefnt stofnanir ársins. Niðurstöðurnar byggja á margþættri könnun meðal starfsfólks á gæðum vinnustaðarins. Sérstakur saksóknari má vel við una, enda trónir hann á toppnum meðal stórra stofnana annað árið í röð. Persónuvernd og Landmælingar Íslands eru síðan bestu vinnustaðirnir í flokkum smárra og meðalstórra stofnana. Á hinum endanum eru stofnanir þar sem einhverjir þurfa að líta í eigin barm – til dæmis Sýslumaðurinn á Eskifirði, Heil- brigðisstofnunin á Blönduósi, Landlæknisembættið og Vinnumálastofnun, sem ætti reyndar kannski öðrum stofnunum fremur að gæta þess að andrúmsloftið á vinnustaðnum sé gott. Hvað breyttist? Ólafur Ragnar Grímsson hóf kosninga- baráttu sína í gær með látum. Áður hafði komið fram að það hygðist hann ekki gera fyrr en framboðs- frestur rynni út 25. maí. Þangað til eru enn ellefu dagar. For- setinn er í stuði og það er óneitanlega hressandi að fá hann í slaginn, en það væri samt gaman að vita hvað breyttist. Kaffi í Ráðherrabústaðnum Þingflokkur Hreyfingarinnar mætti – eins og hann leggur sig – á vinnu- fund ríkisstjórnarinnar í gær. Það er óvenjulegt og gerist varla nema mikið liggi við. Steingrímur J. Sigfússon gerði samt lítið úr því – sagði að þau hefðu verið að diskútera stjórnar- skrármál, en þó alls ekki vegna þess að ríkisstjórnin óttaðist að hafa ekki meirihluta fyrir málinu á þingi. Eins og þau hafi bara litið við í sunnudagskaffi. Auðvitað er það samt ekki málið. Menn hafa ekki samráð við stjórnarand- stöðuna að ástæðulausu, eins og mun eflaust koma í ljós á næstu dögum. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.