Fréttablaðið - 14.05.2012, Page 15

Fréttablaðið - 14.05.2012, Page 15
MÁNUDAGUR 14. maí 2012 15 AF NETINU Umræða um umræðu Það er mjög mikil þörf á að bæta „umræðuna“ hér á landi, og eitt það gagnlegasta sem hægt væri að gera væri ef fólk hætti að búa sér til and- stæðinga – það er að segja leggja mótstöðumönnum sínum orð í munn, og slást svo við ímyndaða andskota, í stað þess að takast með rökum á við það sem mótstöðu- maðurinn segir. blog.eyjan.is/illugi Illugi Jökulsson Þröng staða Hér hefur því verið haldið fram að kosningabaráttan stofnaði forseta- embættinu í hættu vegna aðferða Ólafs Ragnars við að brjótast úr þröngri stöðu. Þetta hefur sannast fyrsta daginn sem Ólafur Ragnar fer af stað. Hann ætlar greinilega að kæfa alla andstöðu við sig með leiftursókn og setur virðingu embættis forseta Íslands ekki fyrir sig í því sambandi. www.bjorn.is Björn Bjarnason Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virð- ingar í samfélaginu. Kannski bændur upp að vissu marki – við verðum örlítið dreymin á svip þegar við hugsum til þeirra og kannski lifna gamlar marka- skrár í hausnum en ætli það nái öllu lengra; kannski umönnunar- stéttir – kannski líka kennarar – en sú virðing á meira skylt við almenna velvild og þakklæti en að fólk líti beinlínis upp til stéttanna. Íslendingar hafa aldrei skilið fínt fólk. Þegar fólk var að reyna að taka sér aðalssess í samfélaginu á almestu markaðs- hyggjuárunum upp úr síðustu aldamótum var það hlegið ofan af sviðinu. Við munum segja sögur af útrásarvíkingunum að minnsta kosti næstu þrjú hundruð árin. Allir vita hvernig komið er fyrir stjórnmála- mönnum í almenningsálitinu og hið sama gildir um aðrar yfir- stéttir: þær njóta lítilsvirðingar. Ein er þó sú stétt sem Íslend- ingar bera almennt virðingu fyrir. Það eru sjómenn. Gjöf og ágjöf Þegar ég var lítill höfðu sjó- menn sérstakan óskalaga- þátt í útvarpinu – einir stétta – og maður hlustaði þar opin- mynntur á 14 fóstbræður tralla um Þórð sjóara sem elskaði þil- för og einhvern bát sem gefið var á við Grænland. Þetta var á þeim árum þegar þurfti orð- skýringar við íslenska dægur- lagatexta og ekki fyrr en löngu síðar að rann upp fyrir manni að ágjöf er engin gjöf. En gjöfum gefa fylgt ágjafir. En sem sagt: sjómenn. Það þurfti efnahagshrun til að hrófla við sjómannaafslættinum og þær raddir voru strjálar og veikar sem mótmæltu honum. Um ekkert starf leikur við- líka óttablandinn ljómi í vitund margra landsmanna; sjómenn eru hetjur hafsins sem leggja á sig hættur, fjarvistir, vosbúð og erfiði til að færa björg í bú og má þá einu gilda þó að dregið hafi til allrar hamingju úr hættum og fjarvistum og allur aðbúnaður hafi batnað mjög hin seinni ár til sjós. Sjómenn eru eina stéttin sem þjóðinni þykir í rauninni vænt um. Hver sem við erum, hvar og hvernig: við tengjumst flest sjómönnum á einhvern hátt og finnst við vera þeim skuldbundin – höfum jafn- vel samviskubit yfir því að vera ekki til sjós. Það er því eitthvað verulega óþægilegt við auglýsingu þar sem sýnd er íslensk sjómanns- fjölskylda og spurt: Hvað höfum við gert ykkur? Og látið sem svo að stuðningsmenn veiði- gjalds vilji taka lífsbjörgina frá íslenskum sjómönnum, gott ef ekki hrifsa matinn frá litlu sjó- mannsbörnunum. Þessi aug- lýsing er svo ófyrirleitin í við- leitni sinni til að spila á kenndir landsmanna í garð sjómanna að leitun er á öðru eins. Hættum að froðufella Er kannski að verða tímabært að fara að tala saman öðruvísi en með auglýsingastofum? Er hugsanlega hægt að reyna að tala saman um þessi mál af smá yfirvegun? Þessi stöðugi ófriður um undirstöðuatvinnuveg og helstu auðlind þjóðarinnar eitrar andrúms loftið í þjóð- fé laginu meira en við gerum okkur sennilega grein fyrir. Þessum tryllta málflutningi verður að linna: við getum ekki staðið svona endalaust og gargað hvert á annað. Útgerðarmenn verða að horfast í augu við það í eitt skipti fyrir öll að auðlindin sjálf er í þjóðareigu og bæði sann- gjarnt og rétt að þeir greiði fyrir nýtingu á henni. Sjómenn og aðrir sem starfa við sjávar- útveg verða að átta sig á því að það jafngildir ekki því að ætla að rústa lífi þeirra að vilja ekki að útgerðarmenn geti um gengist þessa sameign þjóðarinnar sem prívat-eign sína sem þeir geti veðsett og ráðstafað að vild. Þeir verða líka að horfast í augu við að fólk þarf ekki að kunna pelastikk til að hafa skoðanir á þessum málum. Þetta kemur öllum við. Fylgjendur veiðigjalds verða að leggja eyrun við málflutningi þeirra sem vinna við sjávarút- veg og viðurkenna að arðsemi verður að vera góð í greininni, góð laun fólks í landi og á sjó (mætti kannski jafna þann mun aðeins) og gróði útgerðarinnar þarf að vera verulegur. Það þarf kannski ekki að tönnlast svona á þyrlunni hans Guðmundar í Brimi og eignahaldsfé lögunum á Tortola sem við vitum að ýmsir útgerðarmenn hafa notað til að skjóta undan gróða. Við vitum að fjöldi útgerðarmanna hefur lagt sig fram um að reka fyrirtæki sín vel og heiðarlega, greitt sín gjöld, skapað mikil verðmæti, keypt sinn kvóta með ærnum tilkostnaði og byggt upp sinn rekstur af hagsýni og áhuga en óttast nú um sinn hag. Þetta er ekki spurning um landsbyggð og Reykjavík – enda búa kvótaeigendur unn vörpum fyrir sunnan og Reykjavík er stærsta höfn landsins, svo að rangt er að tala um lands- byggðar skatt. Unnendur núver- andi kerfis – ekki síst þingmenn Vestfjarða – þurfa að svara því hvers vegna kvótinn hefur í æ ríkari mæli sogast suður til Reykjavíkur; hvers vegna sífellt erfiðara verður að halda uppi lágmarksþjónustu í dreifðum byggðum landsins – hvers vegna Guggan er ekki lengur gul og hvað þá gerð út frá Ísafirði. Það gefur á bátinn … Þegar ég var lítill höfðu sjómenn sérstak- an óskalagaþátt í útvarpinu – einir stétta – og maður hlustaði þar opinmynntur á 14 fóstbræður tralla um Þórð sjóara sem elskaði þilför og einhvern bát sem gefið var á við Grænland. Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.