Prentarinn - 01.12.2001, Blaðsíða 23

Prentarinn - 01.12.2001, Blaðsíða 23
Isafoldarprentsmiilja hf. F.v.: Arnar Ólafsson ogArnar Richardsson prentarar keyra blaðavélina. internetið hefur aukist til muna og voru gerðar ráðstafanir í sam- vinnu við Islandssíma um að öll samskipti yrðu sem auðveldust og settar upp öflugar tengingar þar að lútandi. Starfsmenn prentsmiðjunnar eru rúmlega 50 og framkvæmda- stjóri er Ólafur Haukur Magnús- son. Vinnutími í prentsmiðjunni er frá kl. 7 á morgnana þegar vinna hefst við plötutöku á DV og stendur fram til kl. 4-5 á morgn- ana þegar prentun á Fréttablaðinu iýkur, þannig að það vantar ekki nema 2-3 tíma uppá að það sé unnið allan sólarhringinn. Verkefni prentsmiðjunnar eru mjög margbreytileg enda býður vélakostur upp á mikla fjöl- breytni. I arkavélunum eru upplög frá nokkrum hundruðum en þegar kemur að rúlludagblaðavélunum fara upplög upp í 70-100 þúsund eintök og einstök verk jafnvel í nokkur hundruð þúsund. Ætla má að í gegnum dagblaðavélina renni um 5-600 þúsund eintök á viku af 24 síðna dag- og vikublöðum. Flntl í Garðahæ eltir 123 ár í miðbæ Reykjavíkur Um síðastliðna páska var ísafold- arprentsmiðja flutt í Molduhraun í Garðabæ. Þessi elsta prentsmiðja landsins, stoíhuð 16. júní 1877 af Birni Jónssyni, hefur alla tíð verið starfrækt í Reykjavík. Fyrst í Austurstræti 8, síðan í bingholts- stræti 5 og árið 1994 var flutt í Þverholt 9. Sökum strangra reglna um hávaðamengun og þrengsl var ekki hægt að fara út í stækkun á blaðavélinni, og þurfti því að finna prentsmiðjunni hentugra húsnæði. Húsnæðið að Suður- hrauni 3 í Garðabæ hentar í alla staði mjög vel fyrir rekstur prent- smiðjunnar, þar er öll vinnsla á einu gólfi nema forvinnslan sem er á 2. hæð. Húsnæðið er um 2500 fin. að stærð og var áður í eigu Plastos. Eins og áður þjónar ísafoldarprentsmiðja sínum við- skiptavinum á mörgum sviðum prentunar, það er hin hefðbundna arkapentun, þá rúlluprentun á stærri upplögum, tímarit og íjöl- póstur og svo dagblaðaprentun eins og Fréttablaðið. Samhliða flutningnum var blaðaprentvél íyrirtækisins stækkuð og endur- nýjuð og getur hún nú prentað 32 síður, þar af 24 síður í 4-lit í einu. Einnig var pökkunardeildin end- urnýjuð og bætt við tækjum þar. Öll verkefni eru nú sett beint á plötur, og er það mikil hagræðing og flýtir vinnsluferlinu töluvert. Gagnamóttaka i gegnun FTP og F.v.: Sigrím Leifsdóttir og Steinar Ragnarsson prentsmiðir umvafin tölvum. PRENTARINN ■ 23

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.