Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1996, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 15.10.1996, Blaðsíða 48
720 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Aðalfundur Læknafélags íslands 1996 Samþykktir i Aðalfundur Læknafélags ís- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi felur stjórn félags- ins að skipa starfshóp sem skili tillögum til stjórnar um hvernig samskiptum lækna og þeirra sem æskja upplýsinga úr sjúkra- skrám skuli fyrir komið. II Aðalfundur Læknafélags ís- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi ályktar að stjórn LÍ skuli beita sér fyrir því að ekki verði í auglýsingum um stöður lækna gerðar ákveðnar kröfur um búsetu. III Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi átelur harðlega, að enn séu skorin niður fjárfram- lög til stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík og á Akureyri. Mikilvægt er að hlutverk þeirra sé skilgreint, staðall þeirrar þjónustu skilgreindur, sem þeim er ætlað að veita og að þeim séu tryggð fjárframlög til að starfa í samræmi við þær kvaðir sem þessu fylgja. Þessi sjúkrahús mynda burð- arás sérfræðilegrar læknisþjón- ustu og þjóna öllum landsmönn- um. í þessu Ijósi er ekki síður mikilvægt að hlutverk og fjár- veitingar annarra sjúkrahúsa taki mið af þeirri staðreynd. IV Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi heimilar stjórn LÍ að ráða formann félagsins í 100% starf. Stjórnin semur við formann um laun og starfskjör. V Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi skorar á Alþingi og ríkisstjórn að standa vörð um velferðarkerfið og tryggja að framfærslueyrir bótaþega verði ekki skertur frekar. VI Aðalfundur Læknafélags ís- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi átelur að læknar séu ráðnir í stöður án undan- genginnar auglýsingar og hæfn- ismats. Fundurinn felur stjórn LÍ að skipa nefnd er hafi það hlutverk að hafa eftirlit með ráðningum og stöðuveitingum. Stjórn LÍ er falið að halda áfram viðræðum við stjórnend- ur heilbrigðisstofnana og þeir beiti sér fyrir því að þær læknis- stöður sem nú eru setnar séu heimilaðar og auglýstar. Þessu til stuðnings er vísað í bókun um þetta efni, sem gerð var í síðustu kjarasamningum sjúkrahús- lækna. vn Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi mótmælir harðlega því takmörkunarákvæði í samn- ingi sérfræðinga og viðsemj- enda þeirra sem getur hindrað aðgengi nýrra sérfræðinga að samningnum. Ákvæðið gengur gegn stefnu félagsins (sbr. ályktun aðalfundar 1995). Fundurinn skorar á samninga- nefnd LR að höfuðkrafa verði að ákvæðið falli brott við næstu samninga og skrifi ekki undir slíkt ákvæði undir nokkrum kringumstæðum. Jafnframt er vakin athygli á óeðlilega lítilli nýliðun heimilis- lækna á höfuðborgarsvæðinu sem búa við lokað kerfi stöðu- veitinga. VIII Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi telur afar brýnt að læknar komi sér saman um stefnu í heilbrigðismálum. í því skyni stofni stjórn LÍ starfshóp sem undirbúi læknaþing, sem haldið verði innan sex mánaða og fjalli um skipulag og stefnu í heilbrigðismálum. Starfshópur- inn starfi síðan áfram eftir læknaþing og skili áfanga- skýrslu á formannaráðstefnu með fullnaðarafgreiðslu á næsta aðalfundi. IX Aðalfundur Læknafélags Is- lands haldinn dagana 20. og 21. september 1996 að Hlíðasmára 8 í Kópavogi felur stjórn LÍ að tryggja að uppbygging lækna- samtakanna verði rædd ofan í kjölinn á næstu mánuðum. Nið- urstaða þessarar umræðu verði kynnt á formannaráðstefnu að vori með það í huga að afgreiða breytingar á aukaaðalfundi í maí 1997. X Með vísan í siðareglur lækna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.