Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 50

Læknablaðið - 15.10.1998, Qupperneq 50
758 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Sjúklingurinn er stundum sá síðasti sem fær eitthvað að vita - Rætt viö Magnús Hjaltalín læknanema um alþjóðlega ráöstefnu læknanema um siöfræöi í læknisstarfinu í byrjun ágústmánaðar efndu samtök læknancma við háskólann í Árósum í Danmörku til ráðstefnu eða öllu heldur sumarskóla um siðfræðileg álitamál innan læknisfræðinnar. Par var spurt stórra spurninga eins og þeirrar hvort læknar um allan heim eigi sér sameigin- Iega siðfræði, hvort til séu altækir siðfræðilegir mæli- kvarðar á störf lækna. Is- lendingar komu nokkuð við sögu þessarar ráðstefnu því prófessor Vilhjálmur Árna- son var meðal frummæl- enda og ungur læknanemi, Magnús Hjaltalín, tók þátt í undirbúningnum og sat ráðstefnuna. Læknablaðið tók Magnús tali um þessa ráðstefnu en hana sóttu læknanemar frá fjölmörg- um löndum. Sumir voru langt að komnir eins og þeir sem kornu frá Kína, Súdan, Egypta- landi og Mexíkó, annar hópur var kominn frá löndum í aust- anverðri Evrópu og einnig voru þama læknanemar frá Banda- ríkjunum og ríkjum Vestur- Evrópu. En hvemig bar þennan suinarskóla að, Magnús? Sjálfræði sjúklingsins afstætt „Þetta er í annað sinn sem hann er haldinn á vegum starfshóps innan alþjóðasam- taka læknanema í Árósum (IMCC). Frumkvæðið átti hóp- ur læknanema sem hefur áhuga á að ræða um hin fjölmörgu sið- fræðilegu álitamál sem snerta Magnús Hjaltalín læknanemi. störf lækna en finnst sú um- ræða ekki setja nógu mikið mark á læknanámið. Við höfð- um áhuga á að fá til fundar fólk frá mörgum löndum og ólíkum menningarheimum því það er góð leið til þess að gera sér grein fyrir sínum eigin skoð- unum og viðhorfum að bera þau saman við önnur og ger- ólík, jafnvel andstæð viðhorf. Ég finn það á sjálfum mér að það er gott að fara utan og kynna sér viðhorf annarra þjóða. Þess vegna ákvað ég að fara út til Danmerkur og taka þar þriðja árið í náminu. Ég hvet íslenska læknanema til þess að taka hluta af námi sínu utanlands og víkka með því sjóndeildarhringinn, mynda tengsl við starfssystkini okkar erlendis og upplifa eitthvað annað en lestur og messu- göngu meðan á þessari löngu göngu stendur. Bæði einstak- lingurinn og læknadeildin nýtur góðs af því.“ - Þama var spurt stórra spuminga eins og þeirrar hvort til sé einhver altæk siðfræði sem allir læknar veraldar geta skrifað upp á. Er hún til? „Já, vissulega eiga læknar ákveðin grundvallaratriði sameiginleg hvar sem þeir eru, mannkærleikann og þá viðleitni að lina þjáningar þeirra sem eiga um sárt að binda. En þegar talið berst að einstökum atriðum á borð við fóstureyðingar eða líffæra- flutninga er grunnt á ágrein- ingnum. Það sem kom mér hvað mest á óvart á ráðstefnunni er hversu mismikil áhersla er lögð á sjálfræði sjúklingsins, að hve miklu leyti hann fær að vera með í ráðum. Á Norðurlöndum leggjum við mikið upp úr því að hann sé með í öllu sem gert er og erum í raun bara að ráð- leggja honum hvað hagstæðast sé fyrir hann að gera. Hér er hamrað á hinu upplýsta sam-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.