Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 20

Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 20
14 NÝTT HELGAFELL norrænar, norrænar, gamalnorskar, norskar, gauzkar o. s. frv. En engum hcfur þótt akkur í því að telja seinni alda bókmennt- ir vorar annað en íslenzkar, þótt þjóðin væri þá orðin miklu háðari erlendum áhrif- um og yfirráðum en fyrrum. Nú er einsætt, að aldrei verður bent svo á tiltekið ártal, sem marki greinileg tíma- mót milli fornra og nýrra mennta, að ekki mesi um deila. Slíkt er ólíku torveldara í menningarsögu en atburðasögu. Kristni- tökuna á alþingi er unnt að ársetja og jafn- vel dagsetja. En hitt er á einskis manns færi að skera úr því, hvenær íslendingar hættu að vera heiðnir, ef þeir hafa nokkurn tíma verið það, eða urðu raunverulega krist- in þjóð, ef þeir h.afa þá nokkurn tíma orð- ið það. í ís'lenzkum kveðskap er engin eyða, hvergi svo snögg umskipti, að horf- íð sc frá gömlum erfðum, þó að brotið só upp á nýjungum. Kveðskapurinn er elzti grunnur bókmenntanna, og hann lifir eins og rótarstöngull í moldu, þó að öll önnur bókmenntastarfsemi virðist vera sölnuð. 1 samanburði við hann er hin forna sagnrit- un skammæ. Það tímabil, sem sögur voru ritaðar á íslandi (þegar frá eru taldar eftir- hreytur riddarasagna), er nokkurn veginn afmarkað: frá því er Eiríkur Oddsson samdi Hryggjarstykki, um i 170, til þess er Ein- at Hafliðason skráði Laurentius sögu, um miðja 14. öld. En hin forna íslenzka sagnaritun á sór samt lengri aldur, því að á undan Eiríki Oddssyni voru komin rit Ara Þorgilssonar og annarra fróðra manna, — þótt þau væru ekki sögur, — og annálana var haldið áfram að skrásetja, eftir að hætt var að semja sögur um samtíðaratburði. Fróðleikurinn er sá grunnur, sem sögurn- ar rísa upp af. Hann helzt enn um skeið, eftir að þrótturinn til mótunar samfelldra sagna er þorrinn — og að þeim grunni er horfið á 16. öld, þegar fslendingar fara aftur að bera við að færa söguleg fræði í letur. Þegar þessa er ga:tt, verða lök Nýja annáls tímamark, sem vert er að veita at- hygli — og því greimlegra sem tiltekmr atburðir virðast valda því, að honum var ekki haldið lengra áfram. Þrátt fyrir öll önnur verðmæti íslenzkra fornmennta og vöxtu verða ekki bornar brigður á það, að sagnaritunin er þar frum- legasta og einstæðasta afrekið. Því má með- al annars ekki gleyma, hvað kveðskapurinn á henm að þakka. Þótt hann só bæði eldri og reyndist lífseigari, er vafasamt, hvort Is- lendingar hefðu fest á bókfell og varðveitt svo til langframa nokkuð af þeim kvæðum, sem voru eldri en ritöld, ef þeir hefðu ekki lagt slíka stund á söguleg fræði. Allur síð- ari alda skáldskapur þeirra hefði þá staðið á veikari rótum. En auk alls annars, sem hin forna sagnaritun hefur sór til ágætis og of langt yrði hór upp að telja, er ferill henn- ar sjálfrar, þegar hann er allur ralunn, áhrifamikil örlagasaga, sem getur minnt á Eglis sögu eða Glúmii. Vór getum horft á hana spretta upp iir íslenzkum jarðvegi, blómgast þar og þroskast, bæði af eigin orku og reynslu og af erlendu hlutskipti, sjáum hana reskjast, hrörna og falla í strá. Það er ekki að ófyrirsynju, þótt vór reyn- um að rekja þennan feril sem rækilegast og skilja hann, allt frá því upphafi, er ,,Ari prestur hinn fróði ritaði fyrstur manna hór á landi að norænu máli fræði bæði forna og nýja“, — og til þeirra loka, er höfundur Nýja annáls lagði frá sór fjöðrina fyrir fullt og allt og enginn annar tók þar við, sem hann hætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.