Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 35

Nýtt Helgafell - 01.04.1956, Blaðsíða 35
HALLDOR KILJAN LAXNESS 29 nnklu um skapgcrð manna og athafnir, umhverfinu, er þeir alast upp við og lifa í. higurður Nordal hefur vikið að þessu í eftirnnnmlegri erein, er hann reit um Ör- o o æfin og Öræfinga fynr nær þrjátíu árum. Hann lýsir þar, hvermg smalinn í Svína- felli uni sér, augu hans hressist, líkannnn þjálfist og andinn skapi sér ævintýri við erfiðleikana 02 mikilfengleik náttiirunnar o 0 austur þar. Allt þetta ber hann saman við hlutskipti mjólkurpóstsins úr nágrenm Reykjavíkur: ,,Hann situr í kerru, sem hlaðin er blikkbrúsum, Lygmr augunum og reynir að sofa. Hesturmn labbar þráðbeinan ak- veginn eins og vél. Hnnglið í brúsunum svæfir og truflar í einu, og heldur strákn- um í einhverju hlutleysisástandi, sem lesa tná tir svipnum. Bíll kemur eftir veginum. Klárinn og strákurinn leggja kollhúfur og þoka sem nnnnst. Þeir vita, að bíllinn má ekki drepa þá, þó hann 'blási. Ymsir veg- farendur mæta strák. Flestir líta ckki við honum, fáeinir sveitunsar hans kasta á hann kveðju, en hann tekur luntalega und- ir. Hann er leiður á að vera að mæta þessu fólki, oft því sama dag eftir dag. Það trufl- ar hann og er þó eins og dauðir hlutir fyr- u honum. Það er einn liður í þeirn sífelldu endurtekningu, sem dagar hans eru, leið- mlegri og tilbreytingarlausri vmnu“. Svo mörg eru þessi orð hins fremsta bók- menntafræðings þjóðarinnar. Eftir þessan lysingu skyldi enginn ætla, að úr piltinum, sem við þvílíkt umhverfi átti að búa, yrði mikill andans maður. En því rifja ég þetta upp nú, að hið eina starf, sem ég veit til, að Halldór Kiljan Laxness hafi gengt auk bess að vera rit- höfundur, er, að hann var á æskuárum sín- um mjólkurpóstur í Mosfellssveitinni, og er hann efalaust nafnfrægastur allra þeirra, sem því starfi hafa gegnt. Hitt veit ég ekki, hvort Siourður Nordal hefur haft hann O sérstaklega í huga, þegar hann ritaði hina tilvitnuðu lýsingu, en hafi svo verið, sann- ast, að jafnvel hinum skýrasta getur stund- um skotizt. Nei, umhverfið hefur sín áhrif, en fulln- aðarskýnngu á því fynrbæri, sem við nú fáumst við, gefur það ekki. Ymsar fléin skýringar mætti sjálfsagt telja, cn víst er, að hvorki nein ein þeirra né þær allar saman nægja til þess að skýra það, sem skýra þarf: Af hverju eru sumum gefnir afburða- hæfileikar, sem aðnr hafa ekki? Þó er til á þessu skýring, sem sunnr telja raunar enga skýrmgu, en aðrir þá einu, sem nægir. Það er skýringin, sem fyrsta höfuðskáld Islendinga, Egill Skallagríms- son gaf á skáldgáfu sinni. Þegar sú skýr- íng er metin skal játað, að Egill hlaut ekki sérstaka viðurkennmgu Akademíunnar sænsku, enda var hún þá ekki til. Nokkur bót í máli fyrir það er, að nafn Egils hef- ur nú venð uppi í eitt þúsund ár og mun lifa á meðan norrænar bókmenntir eru nokkurs metnar. En Egill sagði, að það væri Míms vinur, Óðinn, sem hefði feng- íð sér þær bölva bætur, er hann taldi skáld- skapargáfu sína vera. Þó að við séum um margt fróðari en Eg- o o ill, forfaðir okkar, þá hygg ég, að við kunn- um eigi á þessu betri skil en hann, og eig- um því að hafa hans orð — ef ekki ann- arra — fyrir því, að skáldgáfuna geti eng- inn gefið annar en sjálft hið æðsta goð- magn, hverju nafni sem við nefnum það. Hitt vitum við, að ýms ytri skilyrði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.