Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 18

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 18
ast þér — því miður. Hún var nefnilega byrjuð innan við fermingu. FINNA — Það er ekki satt NATAN — Það var blaðamál á sínum tíma og kallað barnaskólahneykslið á Gríms- staðaholtinu. FINNA — Ég ætlaði einmitt að fara að segja honum frá því — nú eyðileggurðu. NATAN — Slæmar afsakanir. FINNA — Heldurðu að ég hafi ekki mínar afsakanir — jú — ég var alveg saklaus þá — ég sver það. NATAN — (hlær stcrkandi). FINNA — Mér er sama núna — en mér var ekki sama þá. Og um nóttina þegar þú kysstir mig upp við steininn — og gerðir svo ekki neitt — þá hélt ég að þú vissir það og það væri þessvegna . . . NATAN — Hóra. FINNA — Þú getur kallað mig það núna — en ég var það ekki þá. NATAN — Hóra — þá og ævinlega (sezt). En auðvitað er allt í lagi með það. Hór- ur og morðingjar eru beztu fulltrúar nú- tímans (lyftir glasi). Skál. STEFÁN — Skál. FINNA — (við N.). Þú hefur drepið allt innan í mér. NATAN — Ekki ennþá, beibí — seinna. það er ennþá lífsneisti í þér (við St.). Og þú bankastjóri tilverunnar segðu okkur fleira úr dúkkuhúsinu, fleira úr því hetjulífi (hlær við). FINNA — (við N.). Þú ættir að skammast þín að hæðast að honum. NATAN — Ég er ekkert að hæðast að hon- um. Mér er alvara. Eða heldurðu að ég sé að hæðast eitthvað að þér? STEFÁN — Ég veit ég er engin hetja. NATAN — Góði vinur — hver er svo aumur að vera ekki hetja í sjálfs sín sögum? FINNA — En fékkstu stöðuna — í bankan- um? STEFÁN — Ég varð fulltrúi eftir Valdimar. Vernharður bankastjóri kallaði mig upp til sin, en í miðjum klíðum þegar við vor- um að tala um bankastörfin sagði hann allt í einu: Það var málvilla í greininni. FINNA — Hvaða grein? STEFÁN — I minningarorðunum eftir Valda. NATAN — (hlær). Málvilla. STEFÁN — Hún hlýtur að hafa komið inn hjá setjurunum. Hún hefur áreiðanlega ekki hrotið úr penna hjá mér — það er útilokað. FINNA — En var nokkur ástæða að taka það svo nærri sér? STEFÁN — Málvilla. Hugsaðu þér Vernharð- ur bankastjóri les varla annað en Sturlungu fyrir utan fjármálatíðindi — og gerast sekur um málvillu, það er voðalegur hlut- ur í hans augum. Hann hefur byggt sér villu í íslenzkum sveitabæjarstíl með torfþaki. Nei — þið skiljið það ekki — Ég stóð þarna fyrir framan hann og vissi að ég var sekur um höfuðsynd, eftir fjórtán ára þjónustu, og ég gat ekki á- frýjað dóminum til neinna hugsanlegra dómstóla því að Vernharður bankastjóri er réttlætið og annað réttlæti er ekki til. NATAN — Ágætt — áfram með smjörið. Stattu upp og haltu ræðu yfir gröf óþekkta hermannsins. STEFÁN — (stendur upp vandræðalegur). Ég hef ekkert að segja. (forsviðið byrjar að myrkvast). Ég hef bara Iifað mínu fá- brotna lífi og reynt að gera skyldu mína, já alltaf reynt að gera skyldu mína þó að mér kannski mistekizt það . . . O O O Höfundur óskar þess getið, að þessi atriði leikrits hans séu enn á uppkasts- stigi og hann kunni að gera á þeim nokkr- ar breytingar, áður en leikritið hlýtur endanlega gerð. Ritstj. 16 DAGSKRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.