Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 31

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 31
fimm í fyrramálið og fara til Hamborgar, eða hvert sem það nú er. Sækja Eisenhower-jakka á allt stóðið." X leit til hans, illskulega; kvaðst ekki langa í neinn Eisenhower-jakka. Svo var að sjá sem Clay yrði hissa, alltað- því særður. „Nú, þeir eru prýðilegir! Þeir eru fallegir. Því ekki?“ „Skiptir engu. Hversvegna ætti maður að vera rífa sig upp klukkan fimm? Fjandinn hafi það — það er þó ekki stríð lengur.“ „Ekki veit ég það — en við eigum að vera komnir fyrir hádegið. Þeir eru með einhver eyðublöð á ferðinni, sem maður á að hafa útfyllt fyrir mat. . . . Ég spurði Bulling, því við gætum ekki útfyllt þau í kvöld — hann hejur þessa blaðafjanda nefnilega í skrifborðs- skúffunni hjá sér. En hann vill ekki opna um- slögin strax, hórunginn sá arni.“ Báðir sátu þöglir um stund, sárgramir Bull- ing. Alltíeinu leit Clay á X, af nýjum og aukn- um áhuga. „Heyrðu mig nú,“ sagði hann. „Veizt’ að þú ert með krampa allsstaðar í smettinu öðrumeginn?" X kvaðst vita það mætavel, og bar hönd- ina fyrir. Clay horfði á hann andartak; sagði síðan hinn hreifasti, einsog hann kæmi með ein- dæmagóðar fréttir: „Ég skrifaði Lorettu, að þú hefðir fengið taugaáfall.“ „Jæja?“ „Ojájá. Hún hefur svo skratti mikinn á- huga á öllu slíku. Hún grúskar í sálarfræði." Clay hallaði sér endilöngum ofan á rúmið, í skónum. „Veiztu hvað hún sagði? Hún segir að enginn maður fái taugaáfall bara af stríð- inu og því. Hún segir þú hafir líklega alltaf verið svona tæpur alla þína hundstíð." X skyggði með höndum fyrir augun — ljósið yfir rúminu virtist blinda hann — og sagði, að skilningur Lorettu á hlutunum væri jafnan mikið ánægjuefni. Clay gaut til hans hornauga. „Takt’ eftir því, Iagsi minn,“ sagði hann. „Hún hefur svo sannarlega meira vit á sálarfræði en þú." „Heldurðu þú getir fengið af þér að draga þessar óhreinu býfur þínar ofanaf rúminu mínu?“ spurði X. Clay hélt löppunum kyrrum stutta stund, svosem tilað gefa í skyn, að enginn þyrfti að skipa sér fyrir, hvar hann ætti að hafa þær; sveiflaði þeim síðan snögglega og settist framá. „Ég er hvortsemer að fara niður. Þeir hafa útvarpið opið innihjá Walker." Samt stóð hann ekki upp af rúminu. — „Æjá. Ég var rétt áðan að tala við hórungann hann Bernstein þarna niðri. Manstu þegar við, þú og ég, vorum á leiðinni til Valognes og þeir baunuðu á okkur í tvær klukkustundir sam- fleytt, að minnsta kosti; og að ég skaut katt- arfjandann sem stökk uppá vélarhúsið á jepp- anum meðan við héldum kyrru fyrir í göng- unum? Manstu?“ „Já — farðu bara ekki að tala enn einu- sinni um þennan kött, Clay, fari hann norður og niður. Ég vil ekki heyra hann nefndan." „Nei, ég ætlaði bara að segja þér, að ég skrifaði Lorettu um það allt. Hún og öll sál- fræðideildin ræddu málið fram og aftur. í sjálfum kennslustundunum, meira að segja. Prófessorshelvítið og al!ir.“ „Stórfínt. En mig langar bara ekki til að vita það Clay.“ „Nei, en veiztu hvaða ástæðu Loretta nefn- ir fyrir því, að ég skellti skoti á köttinn? Hún segir að ég hafi verið haldinn augnabliks geð- bilun. í alvöru. Eftir skotárásina og allt það.“ X fór með fingurna gegnum óhreint hárið, einu sinni; byrgði síðan augu sín fyrir Ijósinu aftur. „Þú varst ekkert geðbilaður. Þú gerðir bara ofur einfaldlega þaðsem þér bar að gera. Þú sálgaðir kattarkvikindinu á eins drengi- legan og djarflegan hátt og frekast var unnt undir slíkum kringumstæðum." Clay leit á hann, tortrygginn. „Um hvað í djöflinum erru að tala?“ „Kötturinn sá arna var njósnari. Þú neydd- ist til að hleypa á hann meðan færi gafst. Þetta var útspekúleraður þýzkur smápúki, klæddur loðfeldi af ódýrasta tagi. Það var því enganveginn ómannúðlegt, grimmt, óhreint eða svo mikið sem — “ „Fari það norður og niður!“ hvæsti Clay 29 DAGSKRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.