Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 66

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1957, Blaðsíða 66
Jónas segir frá heilbrigðum hversdagsmönn- um, sem stunda sjó. Hann segir frá stórvið- burðalitlu lífi þeirra og starfi af slíkum inni- leik og tildursleysi, að mennirnir og atburðirnir rísa upp af frásögninni fyrir augum manns, eins og við hefðum séð þá í gær. En þótt Jónas knýi hörpu sína af mikilli leikni, verður vart sagt, að tónsvið hans sé vítt eða fjölbreytilegt. Yfirleitt er hann nokk- uð eintóna, og þó það hafi ekki komið að sök, það sem af er, gæti það orðið Ieiðigjarnt til lengdar. En hvers vegna er maðurinn að segja þetta frá sjóurum við Langanes og Jökuldjúp. Hví yrkir hann ekki um dul og úð og firrð og kyrrð og það, sem er, og það, sem ekki er, og allt, sem er, og lætur einskis spurt — hvurt? I öllum skrifum Jónasar vakir yfir honum ein hugsjón: — Hinn heilbrigði maður. Hann er ómyrkur í fordæming sinni á þeim óheil- indum, sem hann eygir í orðum manna, sem eru þjóðhetjur í munninum, en undirlægjur í hjartanu. I skrifum sínum mærir hann hinn íslenzka erfiðismann, sem fremur gerir út á skak frá Nr rðfirði en að fara á Völlinn, þótt það kynni að gefa honum meira í aðra hönd. Aftast í bókinni er grein, sem ber tákrænt heiti fyrir stefnu Jónasar: — Vertu maður. Það er ádrepa á þá taumlausu dýrkun pen- inga, sem í æ ríkara mæli setur svip á íslenzkt þjóðlíf og mótar sífellt meira hugsunarhátt almennings. Hann tekur dæmi af mismun þess að hreinsa öskutunnur setuliðsins á Keflavík- urflugvelli handa íslenzkum alisvínum og hins að elta ær um Mývatnsöræfi eða veiða þorsk á Norðfjarðarflóa. Hann segir: „Og hvað sem líður baráttunni fyrir hækk- uðu kaupi, hækkuðu fiskverði, auknum lífsþæg- indum, þá hlýtur æðsta takmark sllkrar bar- áttu alltaf að vera: hamingja jólksins. Og ég er hræddur um, að íslenzk alþýða fari villi- götur, ef hún þykist geta fundið hamingju slna annars staðar en við heilbrigð störf á sínu landi og sínum sjó. Eitt er að minnsta kosti alveg víst, að hamingju sína finnur ís- lenzk alþýða aldrei I amerískum sorptunnum.“ Hér segir Jónas mikinn sannleika, og hann heldur áfram: „Að vísu kunna stundum að vera til ein- hverjar afsakanir fyrir aumingjaskap, en hitt er alveg víst, að það læknar enginn aumingja- 64 skap, hvorki sinn eiginn né annarra, með þeirri afsökun, að hann sé öðrum að kenna. Slíkt getur aldrei leitt til annars en enn þá meiri aumingjaskapar. Þeim mun ákafar, sem ein- hver leitast við að gera þig að ræfli, þeim mun meiri manndóm verðurðu að sýna, ann- ars ertu glataður. I stuttu máli sagt: Við þeirri spurningu, hvað maður skuli gera til að forða sér frá því að verða ræfill, er aðeins til eitt svar: Vertu maður." Ég met Jónas mest fyrir það, að mér virð- ist hann mæla þessi orð heils hugar. Nú er það harmsaga okkar aldar, að það er ekki borin sérstaklega mikil virðing fyrir því að vera maður. Einstaklingurinn, hagsmunir hans og óskir eru tlðum léttvæg fundin hjá „hags- munum heildarinnar“. Það eru haldnar stórar ráðstefnur um frið og rétt hins kúgaða manns. Tárvrtar greinir eru ritaðar til vamar mál- stað undirokaðra þjóða. En langfræg „lýðræði" heimsins sýna heilindi boðskapar síns með því að murka niður Serki og Svertingja I Afríku og konur og börn I Búdapest. Það er mikill boðskapur að vera maður, kannske hinn eini, sem nokkurs virði er. Mönnum kann að ganga misjafnlega að fylgja þeirri hugsjón, en viðleitnin að vera maður er ætíð jafnvirðingarverð. Og þrátt fyrir allar ógnir tveggja heimstyrjalda, jafnvel þrátt fyrir öll morðin, sem framin hafa verið I nafni „lýðræðanna“ að austan og vestan, held ég, að mannkyninu I heild hafi þokað áfram I áttina að hinu mikla marki, þar sem öllum einstaklingum tegundarinnar homo sapiens verður kleift að rísa undir heiti sínu — vera menn. Ég met bók Jónasar mest fyrir þá heilbrigðu mannhugsjón, sem ég þykist greina I skrifum hans. En þeim volduga boðskap fylgir mikil ábyrgð boðandans. Það er mikill mannleysu- skapur, Jónas, að þegja þunnu hljóði við tröðkun á manninum sjálfum, ef aðeins þeir, sem traðka bera vörumerki ákveðinnar heildar eða flokks. Ég fagna boðskap Jónasar cg heilbrigðum flutningi hans. Ósk mín til hans að lestri lokn- um verður sú, að hann reynist þess umkominn að vera maður. S. S. DAGSKRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.