Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1957, Blaðsíða 53
Sinfóníuhljómsveit íslands
segja má, að nú í byrjun þessa starfs-
árs horfi betur í þeim efnum en
nokkru sinni fyrr. Nú eru henni með
lögum af alþingi veittir viðunandi
styrkir frá ríki og bæ og samningar
hafa tekizt við Þjóðleikhúsið og Rík-
isútvarpið.
— Hvað eru starfandi margir hljóð-
færaleikarar, þegar mest er?
— Fimmtíu til fimmtíu og fimm.
Það er samt það minnsta, sem hægt er
að komast af með og ánægðir getum
við ekki verið fyrr en þeir verða sjö-
tíu til áttatíu.
— Eru einhverjar horfur á, að þeim
fjölgi á næstunni?
— Já, það eru margir bráðefnilegir
hljóðfæraleikarar við nám hér heima
og erlendis, strokhljóðfæraleikarar,
en á þeim tel ég hvað mesta vöntun.
Þeir dagar eru eygjanlegir, að vísu í
miklum fjarska, að tréblásararnir
verða þrískipaðir (nú tvískipaðir)
hornin verði sex til átta (fjögur) og
strengjunum verði fjölgað að miklum
nnin. Þetta er nauðsynlegt við flutn-
ing á öllum stærri síðrómantískum
tónverkum, að ég ekki tali um þau,
sem skrifuð eru í dag.
— Hver eru helztu viðfangsefni
hljómsveitarinnar, eða öllu heldur,
hver eru æskilegustu viðfangsefnin,
eins og málin standa?
— Það eru vissir hlutir, sem verður
að gera góð skil, ef byggja skal upp
trausta tónmenningu. Ég tel meðal
annars nauðsynlegt, að allar sinfóní-
ur Beethovens séu fluttar hér á
dagskrá
51