Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Blaðsíða 20
/ Sun
Investments S.L
FASTEIGNASALA A SPANI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757
lindarosg@hotmall.com
www.suninvftstmentsl.com
piús 14]
■“ ÍÍSi
UMBGÐÍE'YJiJiV]:
l?jÆ)jlrJjriiljr
3y]slsJJJsJ&ú}jjirJ3jLb
STAFRÆN PRENTUN
Boðskort - Veggspjöld - Nafnspjöld
Ársskýrslur - Sönghefti - Félagaskrár
og hvað sem þig vantar prentað.
EVJASVIXI
Er JAPRENT • fNÉTTW • FJÖISYN .
Strandvegi 47 | s.481 -1 300
ÖGMUNDUR á fundi með starfsfólki Heilbrigðisstofnunar.
Ögmundur Jónsson, heilbrigðisráðherra í heimsókn:
Hugmyndir um sameiningu
slegnar út af borðinu
-Heilbrigðisstofnunin í Vestmanneyjum þarf að takast á við
niðurskurð eins og aðrar heilbrigðisstofnanir
Ögmundur Jónsson, heilbrigðis-
ráðherra, heimsótti Vestmannaeyjar
í síðustu viku og fundaði með
bæjarstjórn, framkvæmdastjóm og
starfsfólki Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja. Ögmundur upplýsti
að Heilbrigðisstofnunin yrði ekki
sameinuð annarri heilbrigðisstofnun
í andstöðu við vilja heimamanna.
„Þetta var mjög ánægjuleg heim-
sókn og ég átti fund með forstöðu-
ntönnum heilbrigðisstofnunarinnar
og starfsfólki. Megintilgangur ferð-
arinnar var að heyra í og hiusta á
starfsfólkið og kanna hug þess til
fyrirhugaðra áforma um sameiningu
við aðrar heilbrigðisstofnanir. A
þessi áform kom mjög ákveðin og
vel rökstudd gagnrýni og fallið
hefur verið frá áformum um sam-
einingu þessara stofnana. Afram er
stefnt að góðu samstarfi og sam-
legðaráhrifum en Heilbrigðisstofn-
unin í Vestmanneyjum þarf að takast
á við niðurskurð eins og aðrar heil-
brigðisstofnanir samkvæmt fjár-
lögum. Það bitnar á öllum stofn-
unum og höfð voru uppi góð orð um
að leita eftir samstarfi milli stofn-
ana.
Niðurstaðan var mjög góð og mín
tilfinning er að menn séu sáttir bæði
í Vestmannaeyjum og heilbrigðis-
ráðuneyti," sagði Ögmundur og er
sjálfur sannfærður um að árangur
náist ekki nema með sameiginlegri
niðurstöðu.
Sameiningarhugmyndir Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar, fyrrverandi heil-
brigðisráðherra, um sameingu eru
þar með úr sögunni en gert var ráð
fyrir sameiningu Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Heilbrigðistofnun Vest-
mannaeyja og Heilbrigðisstofnunar-
innar á Höfn.
Frjálslyndir:
Hanna
Birna ritari
Hanna Birna Jóhannsdóttir var
kosin ritari
Frjálslynda
flokksins á lands-
þingi sem fór
fram í Stykkis-
hólmi um síðustu
helgi.
Guðjón Arnar
Kristjánsson var endurkjörinn
sem formaður flokksins og
Asgerður Jóna Flosadóttir var
kjörin varaformaður.
„Þingið var mjög gott og bar-
áttuhugur í þingfulltrúum. Eg var
ein í framboði til ritara þannig að
ég fékk eiginlega rússneska kosn-
ingu. Guðjón Amar fékk afger-
andi kosningu í formanninn og
Asgerður Jóna var kjörinn vara-
formaður en þrír sóttust eftir því
embætti. Þetta er gott teymi og
ánægjulegt að tvær konur séu nú í
framvarðasveit flokksins. Það
verður mikil vinna hjá fram-
kvæmdastjóm fram að kosningum
og ég hef ég meiri áhrif á fram-
vinduna með því að eiga sæti í
stjórninni," sagði Hanna Birna
þegar Fréttir ræddu við hana á
mánudag.
Grunnskóli Vestmannaeyja:
Leiðbeinendur og
lausráðnir kenn-
arar í óvissu
-Fleiri réttindakennarar en áður
Lausráðnum kennurum og leið-
beinendum við Grunnskóla Vest-
mannaeyja brá í brún þegar þeir
fengu bréf þar sem þeim var tilkynnt
um að ekki væri ömggt að þeir
héldu starfi sínu við skólann næsta
haust.
Jón Pétursson, forstöðumaður
fræðslu- og fjölskyldusviðs, sagði
að skólastjóra bæri að upplýsa
starfsmenn um stöðuna og hún væri
því að framfylgja þeim reglum og
vinnulagi sem gildir hjá bænum.
„Fleiri réttindakennarar eru við
skólann en áður og það kemur niður
á leiðbeinendum og nýútskrifuðum
kennurum. Þessi þróun á líka við um
leikskóla, starfsmenn sem eru ekki
með réttindi eru ekki eins ömggir
með störf og áður. Nú eru færri
nemendur í árgöngum við gmnn-
skólann og það gildir almennt um
skóla á landinu. í kreppunni hafa
sveitarfélögin verið að draga saman
og í raun erum við ekki að skerða
úthlutaðar kennslustundir frá því
sem verið hefur því kennslustundum
er úthlutað eftir sama reiknilíkani og
áður.
Við höfum verið að skerpa á ferli
sem á að viðhafa innan fræðslu- og
fjölskyldusviðs og eðlilega bregður
fólki við að fá bréf en þetta er ekki
uppsagnarbréf. Ég held að það séu
fjórir leiðbeinendur starfandi hjá
skólanum og fjórir til sex lausráðnir
kennarar.
Lausráðnir kennarar hafa verið
nokkuð öruggir hingað til og nú er
verið að fara yfir hversu margir
kennarar verða starfandi við skólann
næsta vetur. T.d. á eftir að fara yfir
hvort kennarar verða í námsleyfi eða
frá vegna annarra ástæðna. Ég vil
taka fram að bæði lausráðnir kenn-
arar og leiðbeinendur hafa staðið sig
afskaplega vel í starfi,“ sagði Jón.
VIKUTILBOÐ
19. - 25. mars
Coke dós o,5 itr
verð nú kr 99,-
verð óður kr 125,-
1
Orville örbylgjupopp 3 pokar
verð nú kr 278/"
verð óður kr 348,-
Gevalía ekologiskt soo gr
verð nú kr 398/"
verð óður kr 738,-
N.Y. hamborgarar 2*125 gr
verð nú kr 399/"
verð úður kr 540,-