Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 84

Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 84
Gjafavöruverslun með íslenska & erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja Goðaglösin eru rammíslensk hönnun með hin fornu goð í aðalhlutverki Hönnuður: Loftur Ólafur Leifsson, sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður Glösin koma í fallegum gjafaumbúðum og kosta kr. 2.990 stk. Þór erþrumuguð og sterkastur ása Sif er fegurst gyðja Frigg er höfuðgyðja og þekkir örlög manna Óðinn er æðstur guða, guð visku, sigurs og skáldskapar Sól í Tógó á Laufásborg É g lærði upphaflega myndlist en mér leið alltaf eins og ég ætti ekki heima í þeirri orðræðu,“ segir Hildur Yeoman fata- hönnuður, sem hlaut tveggja milljón króna styrk til vöru- þróunar úr Hönnunarsjóði Auroru. „Ég var meira fyrir að fegra en að hafa nauðsyn- lega mjög djúpar pælingar á bak við hlutina. En svo hefur þetta kannski snúist dálítið við því í dag er ég komin með dýpri pælingar á bak við hlut- ina en ég var í áður,“ segir Hildur. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2006, eftir að hafa lært myndlist í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Umvafin sterkum konum „Ég byrjaði á því að hanna aukahluti eins og til dæmis heklaðar töskur í formi svana og púðluhunda og fleira úr nótagarni, sem seinna þróuð- ust út í bróderuð hálsmen,“ segir Hildur sem setur oft gamlar handverksaðferðir í nýtt samhengi í sinni hönn- un. „Öll mín vinna byrjar með teikningu, ég bý til heim með teikningunni sem eru engin takmörk sett og út frá honum skapast vöru- lína. Teikningin er því minn útgangspunktur í sköpunar- ferlinu, sem seinna þróast yfir í prent, útsaum, flíkur og skart.“ Hildur vinnur allar sínar fatalínur út frá einhverri músu, en fyrirmynd þeirra finnur hún í sterkum konum í kringum sig, vinkonum og ættingjum. Síðasta fatalínan var unnin út frá ömmu henn- ar. „Amma Julia var hús- móðir sem bjó í New Jersey en stakk af frá fjölskyldunni sinni til að ferðast um Banda- ríkin með mótorhjólagengi. Ég hitti hana ekki oft þegar ég var lítil enda bjó hún í Bandaríkjunum en þegar ég hitti hana þá var ég alltaf logandi hrædd við hana og fannst hún alltaf vera hálf- gerð norn. Mér hefur seinna verið sagt að hún hafi verið rammgöldrótt týpa með ung- verskt sígaunablóð í æðum. Ég rannsakaði allskyns orku- gefandi steina fyrir línuna, sem koma fram í prentum í fatnaðinum og svo eru stein- ar með heilandi orku bróder- aðir í hálsmenin.“ Skapandi fólk eru töfra- menn Hildur hefur ekki sagt skilið við áhrif galdranna því í næstu línu heldur hún áfram að velta þeim fyrir sér. „Ég hef verið að skoða galdra fyrri tíma á Íslandi og flóru Íslands í því samhengi. Ég setti mig í samband við Kristbjörgu Kristmundsdóttur sem er fjölskylduvinur og algjör galdrakona sem blandar orku- gefandi blöndur. Við ætlum að brugga eitthvað saman í desember sem verður þá upp- hafið að næstu fatalínu sem planið er frumsýna í mars.“ „Þegar þú skoðar uppruna orðsins galdrar þá er það „The art”. Ég trúi því að skap- andi greinar séu galdrar sam- tímans, hvort sem það séu kvikmyndir, tónlist, myndlist eða hönnun og að þetta fólk sem starfar innan þessara geira séu okkar töframenn. Ég er samt ekki að segja að allt sem sé gert er sé gætt göldrum, en þú finnur það þegar galdrarnir eru með í spilinu,“ segir Hildur. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  Hönnun Hildur Yeoman Hlaut stYrk úr Hönnunarsjóði auroru Bruggar seyði og töfrar ný föt Fjölskyldutónleikar til styrktar Sól í Tógó verða haldnir á sunnudaginn á Laufásborg. Sól í Tógó eru frjáls félagasamtök sem styrkja heimili fyrir varnarlaus börn í Gliji í Tógó. Peningarnir sem safnast á tónleik- unum og á markaðnum breytast því í leikskólamenntun fyrir 2ja til 5 ára börn sem áttu áður engan en eiga nú þig og alla þá sem styðja starf Sól í Tógó. Vinir, vinkonur og velunnar- ar leikskólans Laufásborgar standa að tónleikunum sem verða haldnir á annarri hæð skólans þennan til- tekna dag, milli klukkan 13 og 17. Þeir sem koma fram á tónleikunum eru Hamingjukór Laufásborgar, Þórir og Júlía, Steindór Andersen, Kira Kira, Alda Dís, María og Bragi Þór, Borkó, Kiss The Coyote, Val- geir Guðjónsson, Védís Hervör og Helgi Valur. Kynnar dagsins verða yngstu kennararnir á Laufásborg, þau Alda Dís og Hávarr. Sól í Tógó eru frjáls félagasamtök sem styrkja heimili fyrir varnarlaus börn í Gliji í Tógó. Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman hlaut í vikunni tveggja milljón króna styrk úr hönn- unarsjóði Auroru til að þróa næstu vörulínu. Línan mun spretta úr töfraheimi seið- kvenna og flóru Íslands en Hildur hefur undanfarið unnið með gömul íslensk seyði og galdra. Hildur er sannfærð um að skapandi greinar séu galdrar samtímans. Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fékk í vikunni þróunarstyrk úr hönnunarsjóði Auroru. Hún ætlar að galdra fram nýja fatalínu í mars, sem mun spretta úr hugar- heimi seiðkvenna og flóru Íslands. Ljósmynd/Hari Amma Julia var húsmóðir sem bjó í New Jersey en stakk af frá fjöl- skyldunni sinni til að ferðast um Banda- ríkin með mótor- hjóla- gengi. 84 menning Helgin 28.-30. nóvember 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.