Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
DAGBÓK I N
13. apríl
Kaupþing 795.
stærsta fyrirtæki
heims
Sagt var frá því að samkvæmt
nýlegum lista tímaritsins
Forbes væru fjögur íslensk
fyrirtæki á listanum yfir 2000
stærstu fyrirtæki í heimi.
Kaupþing banki er í 795. sæti
á listanum, Landsbankinn í
1151. sæti, Glitnir í 1170. sæti
og Exista í 1532. sæti.
Bandaríska
fjármálafyrirtækið Citigroup
er stærsta fyrirtæki heims
að mati Forbes, en í næstu
sætum eru Bank of america,
HSBC Holdings í Bretlandi,
14. mars
MBA-nemar frá HÍ í Kína
Þessi fína mynd barst okkur úr nýlegri námsferð MBA-nema við Háskóla Íslands til Kína. Ferðin
var farin dagana 9. til 18. mars og var víða komið við. Hér er hópurinn á vísindagarði í Shanghai.
Glæsilegur hópur, ekki satt?
Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums-
Burðaráss, í ræðustól á aðalfundinum.
8. mars
STrauMur-BurðaráS:
Kannar fLutning tiL annars Lands
Orð Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns
Straums-Burðaráss, um að bankinn sæi sig knúinn til að
kanna möguleika á því að fara með höfuðstöðvar sínar til
annars lands urðu tilefni mikilla umræðna. Björgólfur sagði
ástæðuna vera þá að reglur, sem fjármálaráðherra setti
nýlega um veitingu heimildar til færslu bókhalds og samninga
ársreiknings í erlendum gjaldmiðli, væru hamlandi. Samkvæmt
reglunum þarf að leita umsagnar Seðlabankans ef lánastofnun
sækir um heimild til uppgjörs í erlendum gjaldmiðli.
General Electric, JPMorgan
Chase, american intl. Group og
ExxonMobil.
13. maí
jón Ásgeir
flytur til new York
Fram kom í þættinum
Sjálfstæðu fólki þar sem
fjallað var um Jón ásgeir
Jóhannesson, forstjóra Baugs,
að hann og sambýliskona hans,
ingibjörg Pálmadóttir, myndu
flytjast til New york nk. haust.
Þau hafa keypt glæsilega íbúð í
borginni en ingibjörg mun hafa
búið þar áður þegar hún nam
innanhússarkitektúr.
Ys og þys í New York.
Magnús Kristinsson hefur bætt
Domino´s á Íslandi í safnið.
22. maí
Magnús Kristinsson
kaupir domino´s
Magnús Kristinsson, útgerðar-
maður í Vestmannaeyjum og
fjárfestir, hefur verið duglegur
við að kaupa fyrirtæki undan-
farin tvö ár. Þau hafa flest
tengst bílgreininni. En í þetta
skiptið fór hann í matvælin því
Viðskiptablaðið sagði að félag
hans, Smáey, hefði eignast
Futura, rekstrarfélag domino’s
á Íslandi, að fullu.
domino´s er stærsta
pítsafyrirtæki landsins með yfir
350 starfsmenn á landsvísu og
13 verslanir.