Frjáls verslun - 01.11.2007, Blaðsíða 134
Lífsstíll
134 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 7
kvikmyndir:
hiLmar karLsson
Sena og Samfilm
ráða ferðinni
Sem fyrr eru það tvö fyrirtæki,
Sena og Samfilm, sem ráða
mestu um hvað kvikmynda-
húsin sýna. Þau reka öll
kvikmyndahúsin, fyrir utan
Laugarásbíó, sem Myndform
rekur. Sena og Samfilm eru
einnig langstærstir í innflutn-
ingi kvikmynda. Hjá þeim er
hlutur bandarískra kvikmynda
langstærstur og stóru mynd-
irnar frá Hollywood fá mestu
markaðssetninguna og um leið
mestu aðsóknina þegar á heild-
ina er litið. Fer nokkurn veginn
saman vinsældir þessara kvik-
mynda hér á landi og í öðrum
löndum.
Yfirburðir bandarískra kvik-
mynda gagnvart kvikmyndum
frá öðrum þjóðum hafa samt oft
verið meiriri en hún var á þessu
ári. Ef tekinn er heildarfjöldi
kvikmynda sem sýndur var á
þessu ári þá er hlutfall banda-
Bíóárið 2007:
Aðsókn að kvikmyndahúsum á Íslandi er góð miðað við önnur lönd. Ekki liggja
tölur fyrir um heildaraðsókn
á síðasta ári þegar þessar línur
eru skrifaðar, en það virðist
sem aðsókn hafi aukist frá því
sem var árið 2006, en þá hafði
aðsókn aukist um 8,7% frá
fyrra ári. Á fyrri hluta 2007
jókst aðsóknin um 20% og má
reikna með að aðsóknin hafi
ekki aukist minna á síðari hluta
ársins þar sem þá var sýnd vin-
sælasta íslenska kvikmyndin,
Astrópía, alþjóðleg kvikmynda-
hátíð í Reykjavík var haldin,
sem mikil aðsókn var að, og
í kjölfarið fylgdu Bíódagar
Græna ljóssins sem voru ekki
síður vel sóttir. Þessi jákvæða
þróun er öfug miðað við þróun
í nágrannalöndum okkar þar
sem aðsókn í kvikmyndahús fer
minnkandi. Aukninguna árið
2006 má fyrst og fremst rekja til
gífurlegra vinsælda Mýrarinnar.
Íslenskar kvikmyndir héldu
áfram að fá góða aðsókn á þessu
ári þó engin hafi komist nærri
Mýrinni hvað varðar vinsældir,
en rúmlega 83 þúsund sáu
myndina í kvikmyndahúsi.
Aðsókn að íslenskum kvikmyndum eykst
Eina viku í október voru þrjá íslenskar kvikmyndir,
Astrópía, Veðramót og Heima, í hópi tíu vinsælustu kvikmynda á landinu.
Heimildarmyndir voru áberandi á síðasta ári og fékk Heima með Sigur Rós góðar viðtökur og var vel sótt.