Fréttablaðið - 15.05.2015, Síða 22

Fréttablaðið - 15.05.2015, Síða 22
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir FJÖLSKYLDUDAGUR Safnadagurinn er hugsaður sem einstök skemmtun fyrir fjölskylduna að sögn Elísabetar Pétursdóttur, verk- efnastýru hjá Félagi íslenskra safna og safnamanna. MYND/STEFÁN FJÖLBREYTNI Um 50 söfn um allt land taka þátt í Safna- deginum. MYND/ÚR EINKASAFNI Íslenski safnadagurinn verður haldinn á sunnudag um allt land en dagurinn hefur verið haldinn að frumkvæði safnafólks frá árinu 1997. Um 50 söfn taka þátt og er ókeypis inn á flest þeirra. Mark- mið Safnadagsins er fyrst og fremst að kynna og vekja athygli á faglegu safnastarfi á Íslandi en þar fer fram mikil gróska í fræðslu og miðlun sem landsmenn geta verið stoltir af segir Elísabet Pétursdóttir, verkefnastýra hjá Félagi íslenskra safna og safnamanna. „Safnadagurinn er skipulagð- ur eftir fyrirmynd alþjóðlega safnadagsins en hefur auðvitað þróast bæði að umfangi og fjölbreytni undanfarin ár. Hann er sér- staklega hugsaður sem fjölbreytt fræðsla en ekki síður sem einstök skemmtun fyrir alla fjölskyldumeðlimi, enda er boðið upp á afar skemmtilega dagskrá hjá þeim söfnum sem taka þátt.“ Sem fyrr segir taka um fimmtíu söfn þátt en meðal einstakra viðburða nefnir Elísabet fágætt tækifæri til þess að skoða geymslur Hönnunarsafnsins í Garðabæ, göngutúr við Gljúfrastein sem Halldór Laxness skrifaði um í verkinu Í túninu heima árið 1975 og fjölbreytta dagskrá sem Borgarsögusafn Reykjavíkur er með á öllum sýningarstöðum sínum. „Einnig má nefna sýninguna Hjáverkin í Árbæjar- safni sem byggir á safnkosti safnsins og í Hafnarborg er boðið upp á fjölskyldu- leiðangur um sýninguna Menn fyrir allar gerðir fjölskyldna.“ Á landsbyggðinni er safnadagurinn fastur liður hjá mörgum sveitarfélögum. „Í Norska húsinu í Stykkishólmi verður opnuð ný sýning sem nefnist Miðstöðvar og mangarar og í Listasafni Árnesinga er boðið upp á listasmiðju með listamann- inum Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur. Heim- ilisiðnaðarsafnið á Blönduósi býður upp á stofutónleika og söfn og sýningar við Eyja- fjörð taka höndum saman og opna nýja sumarsýningu í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Þar sýna tuttugu söfn og sýn- ingar gripi úr fórum sínum sem tengjast konum á einn eða annan hátt.“ Í ár er unnið með alþjóðlegt þema safn- adagsins sem er „Söfn í þágu sjálfbærni“ en þannig er reynt að vekja athygli á og velta fyrir sér hvernig söfn geta stuðlað að aukinni vitund um sjálfbærni að sögn Elísabetar. „Umhverfisþátturinn liggur auð- vitað beint við, til að mynda að velja um- hverfisvæn efni við uppsetningu sýninga, hvernig má nýta safneign á sjálfbæran hátt við miðlun og fræðslu og almennt að huga að félagslegum tengslum við nærsam- félagið.“ Dagskrá Safnadagsins er aðgengileg inn á www.safnmenn.is, safnabokin.is og á Facebook-síðu Safnadagsins. EINSTÖK SKEMMTUN SAFNADAGURINN Árlegur Safnadagur er um helgina. Um 50 söfn bjóða upp á fjölbreyttar sýningar fyrir alla fjölskylduna og er ókeypis inn á flest þeirra. Heldur óvenjulegir tónleikar verða í Norðurljósasal Hörpu í kvöld kl. 20.30. Þá stígur á svið Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi undir stjórn Skúla Ragnars Skúlasonar. Þetta er tónleikasýning sem nefnist Raddir sem aldrei hljóðna. Verkið er samsafn laga og texta úr öllum áttum og er efnið sótt til Riverdance-sýninganna. Flutt verður írsk og skosk þjóðlagatónlist ásamt blandi frá öðrum heimshornum. Þjóðlagasveitina skipa 16 fiðluleikarar frá Akranesi á aldrinum 17-27 ára ásamt trommuleikara, píanóleikara og bassaleikara. Hópurinn fékk almenning til að senda inn óskaljóð og -lög í sýninguna. Áheyrendur upplifa afraksturinn og eiga þeir sem veittu tónsveitinni liðsinni bestu þakkir fyrir, að sögn stjórnandans. Þemað í sýning- unni byggir á vorinu, ilmi ástar og blóma. Hér setja minningar, söknuður, æskan og tíminn sterkan svip á heildarmyndina. Aðaleinkenni Þjóðlagasveitarinnar er að hún blandar saman hljóðfæraleik, söng og talkór og afraksturinn skilar sér í einu heilsteyptu verki. Raddir sem aldrei hljóðna er níunda tónleikaverk- efni Þjóðlagasveitarinnar. Með verkefninu Raddir sem aldrei hljóðna ætlar hópurinn að leiða áhorfendur inn í veröld töfra og tóna sem spannar allan tilfinningaskal- ann, segir í tilkynningu. ÍRSK ÞJÓÐLAGATÓNLIST Í HÖRPU BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 FRÁBÆRT ÚRVAL AF PÚÐUM FRÁ kr. 4.900 KLAPPSTÓLL kr. 5.990 BAMBOO BORÐ kr. 36.400 MIST KLUKKA kr. 9.980 AMI STÓLL kr. 19.900 PORGY kr. 17.700 SMILE BUTTON - 3JA SÆTA kr. 204.800 BALDVIN - 3JA SÆTA 196 cm kr. 129.900 2 SAMAN Í SETTI LIFÐU í NÚLLINU! Til hvers að flækja hlutina? 365.is | Sími 1817 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 0 -C 7 C C 1 6 4 0 -C 6 9 0 1 6 4 0 -C 5 5 4 1 6 4 0 -C 4 1 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.