Fréttablaðið - 15.05.2015, Side 32

Fréttablaðið - 15.05.2015, Side 32
10 • LÍFIÐ 15. MAÍ 2015 „Hér sýni ég eina útfærslu af skemmtilegri sumarförðun sem er líka mjög einföld í gerð en ég notaði aðeins tvo liti til þess að framkvæma hana.“ „Ég hef oft heyrt þann misskilning að smokey þurfi alltaf að vera mjög dökkt eða jafnvel bara svart. Ég nota til að mynda aldrei svarta augnskugga í minni förðun.“ Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir, annar eigandi Reykjavík Makeup School, er nýkomin heim frá Los Angeles þar sem hún sótti meðal annars námskeið í svokallaðri fegurðarförðun hjá einum skær- asta förðunarfræðingi heims, Karen Sarahi. „Ég lærði svaka- lega mikið af henni bæði um nýja tækni sem hún notar og kynnt- ist nýjum vörum. Karen er einna helst þekkt fyrir að gera flott- ar „glamour“ farðanir en er mjög fær á öðrum sviðum og gerir til að mynda flottustu „smokey“ förðun sem ég hef augum litið,“ segir Sigurlaug. Þær Sigurlaug náðu vel saman og út frá fundi þeirra kom upp sú hugmynd að Karen kæmi til Íslands og héldi námskeið í förðunarskólanum. „Það er mikill heiður að fá hana hingað til lands og við Sara, með- eigandi minn, erum virkilega stoltar af að fá hana til okkar.“ Námskeiðið verður haldið þann 15. september næstkomandi og er þetta fyrsta námskeiðið sem Karen heldur í Evrópu. „Það er nú þegar mikil aðsókn á nám- skeiðið enda Karen stórt númer í förðunarheiminum. Við höfum sett af stað forsölu á miðum fyrir núverandi og fyrrverandi nem- endur okkar og munum svo opna fyrir almenna skráningu von bráðar,“ segir Sigurlaug. Koparliturinn allsráðandi Við á Lífinu fengum Sigurlaugu til að sýna okkur heitustu sumar- förðunina í ár en hún segir hana létta og að koparliturinn slái allt annað út um þessar mundir. „Hér sýni ég eina útfærslu af skemmtilegri sumarförðun sem er líka mjög einföld í gerð en ég notaði aðeins tvo liti til þess að framkvæma hana en það eru lit- irnir Spirit frá Make Up Store og Coppering frá MAC. Útkom- an varð svona mjúk, kopartónuð smokey-förðun en hana er hægt að gera með allskyns litum. Ég hef oft heyrt þann misskilning að smokey þurfi alltaf að vera mjög dökkt eða jafnvel bara svart. Ég nota til að mynda aldrei svarta augnskugga í minni förðun,“ segir Sigurlaug. Á húðina notaði Sigurlaug farða frá NARS sem heitir All Day Luminous weight- less foundation, en hann hylur mjög vel samhliða því að vera létt- ur. „Því miður fæst þessi farði ekki á Íslandi en í hans stað mætti til dæmis nota Studio Fix Fluid frá MAC. Yfir meikið notaði ég svo La Mer Translucent púður yfir allt andlitið en þetta er púður sem verður glært á húðinni en skil- ur eftir sig smá glans sem sést þó aðal lega þegar tekin er mynd, rosalega fallegt,“ segir Sigurlaug. Undir augun notaði hún svo Pro Longwear-hyljara frá MAC sem og Reflex Cover higlight hyljara frá Make up Store. „Sá síðarnefndi er algjörlega ómiss- andi fyrir mig en hann nota ég bæði á sjálfa mig og aðra. Hylj- arinn er með skelplötugljáa sem birtir upp svæðið undir aug- unum án þess að mynda hvítan hring.“ Á kinnarnar notaði Sigur- laug sinn eftirlætiskinnalit, Coral Lace frá Make Up Store, og á var- irnar Catty frá MAC og Sand- storm-varalitablýant frá Make Up Store en sá er ljós highlight-litur. „Á augabrúnirnar notaði ég dip- brow frá Anastasia Beverly Hills í litnum chocolate og svo topp- aði ég útlitið með því að nota flott augnhár frá Tanja lashes af teg- undinni Greece en þess má geta að augnháralína Tönju Ýrar Ást- þórsdóttur kom markað núna í vikunni,“ segir Sigurlaug að lokum. FÖRÐUNAR- STJARNA Á LEIÐ TIL LANDSINS Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir, annar eigandi Reykjavík Makeup School, er þekkt fyrir fallega förðun og nýlega sótti hún námskeið hjá frægum föðrunarfræðingi í glamúrförðun, Karen Sarahi. Sigurlaug og Karen náðu mjög vel saman og var Sigurlaug alveg heilluð af henni. Tanja Ýr Ástþórsdóttir sendi frá sér nýja augnaháralínu í vikunni en hér sýnir hún fullkomna sumarförðun að hætti Sigurlaugar. Engjateigi 5 | Sími 581 2141 | www.hjahrafnhildi.is Ný sending af vattjökkum og sumaryfirhöfnum Stærðir 36-52 Verð 21.980 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 4 0 -2 9 C C 1 6 4 0 -2 8 9 0 1 6 4 0 -2 7 5 4 1 6 4 0 -2 6 1 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.