Morgunblaðið - 07.02.2015, Page 29

Morgunblaðið - 07.02.2015, Page 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 2015 Jón Viktor Gunnarsson erSkákmeistari Reykjavíkur2015 eftir æsispennandilokaumferð en fyrir hana voru þrír skákmenn efstir og jafnir. Þar sem Jóni Viktori tókst að leggja Björn Þorfinnsson að velli í síðustu umferð og Stefán Kristjánsson tap- aði nokkuð óvænt fyrir Mikhael Jó- hanni Karlssyni var sigurinn Jóns Viktors. Hann er vel að titlinum kominn og ber hann með sóma en þetta er í sjötta sinn sem hann verð- ur Skákmeistari Reykjavíkur. Ís- landsmeistari varð hann hinsvegar árið 2000. Jón Viktor var sennilega sterkasti skákmaðurinn í flokknum en keppendur voru um 70 talsins. Lokaniðurstaðan hvað varðar efstu menn leiðir eitt og annað í ljós, m.a. að yngstu skákmennirnir eru orðnir býsna skeinuhættir: 1. Jón Viktor Gunnarsson 7 ½ v. (af 9) 2. Mikhael Jóhann Karlsson 7 v. 3.-8. Stefán Kristjánsson, Dagur Arngrímsson, Guðmundur Gíslason, Dagur Ragnarsson, Björn Þorfinns- son og Jón Trausti Harðarson 6 ½ v. 9. – 11. Oliver Aron Jóhannesson, Jóhann Ingvason og Omar Salama 6 v. Mikhael Jóhann Karlsson náði sínum besta árangri á ferlinum en um næstu helgi teflir hann í efsta flokki á Norðurlandamóti ein- staklinga 20 ára og yngri sem fram fer í Þórshöfn i Færeyjum. Þá er frammistaða Dags Ragnarssonar og Jóns Trausta Harðarsonar einnig góð og hækka þeir báðir duglega í stigum. Það gildir einnig um Oliver Aron Jóhannesson en þessir þrír skipuðu sigursæla sveit Rimaskóla fyrir nokkrum misserum. Hin stóru tíðindi þessa móts er frammistaða Mikhael Jóhanns Karlssonar, 19 ára gamals nemenda í MR. Hann vann Omar Salama og Þorvarð Ólafsson í 6. og 7. umferð og í lokaumferðinni tefldi hann af miklu öryggi og lagði svo stigahæsta kepp- andann, Stefán Kristjánsson: Skákþing Reykjavíkur 2015; 9. umferð: Mikhael Jóhann Karlsson – Stef- án Kristjánsson Reti-byrjun 1. g3 Rf6 2. c4 c6 3. Bg2 d5 4. Rf3 Bf5 5. cxd5 cxd5 6. Db3 Bc8?! Það orkar tvímælis að bakka upp í borð með biskupinn. Peðsfórnin 6. … Rc6 7. Db7 Bd7!? er þekkt og 6. … Dc8 kom einnig til greina. 7. Rc3 Rc6 8. d3 e6 9. O-O Be7 10. Bf4 Rd7 11. d4 a6 12. Hfd1 g5 13. Bc1 f5 14. Re5! Bregst hart við útþenslu svarts á kóngsvæng. Svartur getur hirt peðið með 14. … Rdxe5 15. dxe5 Rxe5 en eftir 16. Be3 hefur hvítur rífandi bætur fyrir peðið, 16. e4 eða jafnvel mannsfórnin 16. Rxd5!? kemur einn- ig til greina. 14. … Rxe5 15. dxe5 Db6 16. Da4 Dc6 17. Dd4 Dc5 Heldur áfram að eltast við drottn- inguna, 17. … Bc5 var betra. 18. Be3 Hf8 19. Rxd5! Nærtækur leikur en 19. Bxd5 kom einnig til greina, t.d. 19. … exd5 20. Rxd5 Dxd4 21. Bxd4 Bd8 22. e6! o.s.frv. 19. … exd5 20. e6 Dxd4 11. exd7+ Bxd7 22. Hxd4 Bf6 23. Hxd5 O-O-O 24. Bb6! Eftir þennan leik er svarta staðan vonlaus. 24. … Hde8 25. Hc1+ Bc6 26. Hc2 Be5 27. Hdc5 Hf6 28. Hxe5! Það hentar einkar vel að ná upp- skiptum í þessari stöðu. Hróks- endataflið sem nú kemur upp er auð- unnið á hvítt. 28. … Hxe5 29. Bd4 Hee6 30. Bxf6 Hxf6 31. Bxc6 bxc6 31. Hc5 Kc7 33. Kg2 h6 34. h4 g4 35. b4 f4 36. gxf4 Hxf4 37. a3 Hd4 38. Kg3 Hd2 39. Kxg4 Hxe2 40. f4 Ha2 42. Ha5 Kb6 42. f5 Hf2 43. Kh5 Hf4 44. Kxh6 Hxh4+ 45. Kg5 Hh1 46. f6 Hg1+ 47. Kh6 Kc7 48. f7 Hf1 49. Kg7 Hg1+ 50. Kf6 – og svartur gafst upp. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Sjötti titillinn Skákmeistari Reykjavíkur 2015 Jón Viktor að tafli. Morgunblaðið/Ómar Jón Viktor Gunnarsson Skákmeistari Reykjavíkur 2015 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Landsliðsþjálfari í brids Ragnar Hermannsson, sjúkra- þjálfari og handknattleiksþjálfari, hefur verið ráðinn landsliðþjálfari fyrir íslenska karlalandsliðið í brids. Bridssambandið og Ragnar hafa gert samkomulag um að hann verði þjálfari og fyrirliði landsliðsins fram yfir Evrópumótið í brids sem haldið verður í Búdapest í júní 2016. Næsta verkefni landsliðsins er að verja Norðurlandameistaratitilinn en Norðurlandamótið verður haldið í Færeyjum í lok maí. Ragnar hefur verið öflugur brige- spilari í gegnum árin og hefur áður komið að þjálfun bridslandsliðsins. Hann var sjálfur í liðinu þegar Ís- land varð Norðurlandameistari í júní 2013. Ragnar er jafnframt þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Stjörnunni og mun halda því starfi áfram. Fáheyrt risaskor hjá eldri borgurum Fimmtudaginn 5. febrúar var spil- aður tvímenningur á 15 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 374 Guðlaugur Bessas. – Trausti Friðfinnss. 370 Helgi Samúelsson – Sigurjón Helgason 356 Kristján Guðmss. – Jón Þ. Karlsson 335 A/V Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannss. 463 Elín Guðmannsd.- Friðg. Benediktsd. 398 Helgi Hallgrímss. – Ægir Ferdinandss. 374 Björn E. Péturss. – Valdimar Ásmundss. 362 Risaskor Hrafnhildar og Guð- mundar mælist 74,13 % Spilað er í Síðumúla 37. Góðmennt á Suðurnesjum Karl Karlsson og Svala Pálsdóttir sigruðu í eins kvölds tvímenningi sl. miðvikudag með 65 í skor. Grethe Íversen og Ísleifur Gíslason urðu önnur með 52 og Karl Einarsson og Skafti Þórisson í 3.-4. sæti ásamt Gunnlaugi Sævarssyni og Arnóri Ragnarssyni með 49. Spilað er í félagsheimilinu á Mána- grund á miðvikudögum kl. 19. Gullsmárinn Spilað var á 13 borðum í Gull- smára fimmtudaginn 5. febrúar. Úrslit í N/S: Pétur Antonsson - Örn Einarsson 356 Ragnh. Gunnarsd. - Sveinn Sigurjónss. 291 Gróa Jónatansd. - Kristm. Halldórss. 289 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 271 A/V Hinrik Láruss. - Haukur Bjarnason 341 Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 331 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 310 Óskar Ólason - Hermann Guðmss. 295 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! afsláttur 20% af öllum afsláttur í febrúar púslu spilum Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.