Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR Strætó hefur gefið út tilmæli til far- þega sinna um að hætta að tala í far- síma á meðan þeir ferðist með vögn- unum af tillitssemi við aðra farþega, sem hafi engan áhuga á að vita allt um einkalíf viðkomandi. Strætó hef- ur hengt upp skilti í strætisvögnum sínum með yfirskriftinni „Þú ert ekki einn“. Á skiltinu gefur að líta farþega í strætó að tala í símann og fyrir aftan hann er manneskja sem minnir helst á hina harmi slegnu persónu í mál- verkinu Ópinu eftir Edvard Munch. Myndinni fylgir orðsending frá Strætó þar sem segir að gaman sé að spjalla í síma við einhvern sem þekk- ir mann. En fyrir ókunnuga er ekki spennandi að vita hvað þú gerðir um helgina, hvert þú ætlar um næstu helgi, með hverjum, í hvaða fötum og svo framvegis. Eru farþegar vin- samlegast beðnir um að virða aðra farþega og njóta ferðarinnar. Auglýsingin er hluti af herferð Strætó um tillitssemi farþega og er að skandinavískri fyrirmynd. Á öðru plakati eru farþegar til að mynda beðnir um að trufla ekki strætóbíl- stjórann með óþarfa masi. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó er farþegum ekki bannað að tala í síma í strætisvögnum og þar af leiðandi engin viðurlög við því, líkt og að borða ís eða skyndibita í vagninum. Auglýsingarnar munu hins vegar vera leiðbeiningar til far- þega um að skapa friðsælt umhverfi í strætó. Ýmis úrræði hafa verið reynd á síðustu árum til þess að gera strætó að meira aðlaðandi ferðakosti, til dæmis lagði Gísli Marteinn Bald- ursson borgarfulltrúi til að farþegar fengju ókeypis kaffi í strætó og dag- blöðum yrði dreift. Strætisvagnabíl- stjórar reyndust ekki hrifnir af þeirri hugmynd að kaffi yrði í boði í vögn- ununum. valgeir@dv.is Auglýsingaherferð Strætó um tillitssemi við aðra farþega: Ekki tala í síma í strætó Strætó Farþegar eiga ekki að tala í símann á þeim forsendum að sessunautar þeirra hafi ekki áhuga á að vita um persónuleg mál þeirra. Vantrausti á Hönnu Birnu hafnað Meirihlutinn í borgarstjórn vísaði frá vantraustsályktun Ólafs F. Magnús- sonar, borgarfulltrúa F-lista, sem hann bar fram gegn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Ólafur hefur gagnrýnt Hönnu Birnu harð- lega og keypti heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu þar sem hann gerði grein fyrir ávirðingum sínum í henn- ar garð. Vantrauststillöguna bar Ólaf- ur fram á fundi borgarstjórnar á þriðjudag. Hún kom þó ekki sjálf til atkvæða því að eftir að Ólafur hafði gert grein fyrir tillögunni var lögð fram frávísunartillaga og hún sam- þykkt. Ólafur víttur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, vítti Ólaf F. Magnús- son, borgarfulltrúa F-lista, fyrir mál- flutning þess síðarnefnda í ræðustóli þegar hann gerði grein fyrir van- traustsályktun sinni á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Ólafur fór með frumsamið kvæði þar sem hann sakaði Hönnu Birnu um óheiðarleika og leti, meðal ann- ars. Vilhjálmur gerði þá athugasemd við málflutning Ólafs og sagði að færu menn með níðvísur í borgar- stjórnarstól yrðu þeir sjálfir að bera ábyrgð á því. Keypti Lýsi fyrir 235 milljónir Guðbjörg Matthíasdóttir, fjárfest- ir úr Vestmannaeyjum, fékk lán skömmu eftir bankahrunið til að kaupa Lýsi hf. fyrir 235 milljónir króna. Seljendur Lýsis voru þau Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, náinn samstarfsmaður Guð- bjargar, og Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 á þriðjudagskvöld. Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 námu langtímaskuldir Hnot- skurnar, eignarhaldsfélags Gunn- laugs og Katrínar, 2,7 milljörðum króna í árslok 2008. Hagnaður fyrir skatt og vaxtagjöld voru hins vegar rúmlega hálfur milljarður króna. Eigið fé félagsins er nei- kvætt um milljarð. Sex dópaðir undir stýri Sex ungir menn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helg- ina fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Yngsti ökumaðurinn er sautján ára, og því tiltölulega nýkominn með bílpróf, og sá elsti þrítugur. Einn þeirra braut ekki aðeins lög með því að aka undir áhrifum fíkniefna heldur mátti hann ekki keyra bíl undir neinum kringumstæðum þar sem hann hafði áður verið sviptur ökuleyfi. Sextán til viðbótar voru teknir fyrir ölvunarakstur, tólf karlar og fjórar konur.  Flestir borgarfulltrúar þiggja góð- ar aukagreiðslur ofan á grunnlaun með stjórnarsetu í hinum svokölluðu B-hlutum fyrirtækja borgarinnar. Það eru Orkuveita Reykjavíkur, REI, Faxaflóahafnir, Strætó bs., Slökkvi- lið höfuðborgarsvæðisins og Sorpa bs. Borgarfulltrúar fá á bilinu 70 til 180 þúsund krónur á mánuði fyrir stjórnarsetu og stjórnarformennsku í þessum fyrirtækjum. Auk þess sitja borgarfulltrúar í stjórn Sambands ís- lenskra sveitafélaga og þiggja greiðsl- ur fyrir. Fram hefur komið í DV að borg- arfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Sigrún Elsa Smáradóttir þiggja laun fyrir stjórnarsetu í Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélagi þess REI. Nema árslaun Kjartans fyrir stjórnar- formennsku í REI um tveimur millj- ónum króna. Hann þiggur auk þess 112.500 krónur á mánuði fyrir stjórn- arsetu hjá móðurfélagi REI, Orku- veitunni. Þessar greiðslur leggjast ofan á grunnlaun borgarfulltrúa sem Kjartan hefur á mánuði, með 25 pró- senta álagi vegna formennsku í fagr- áðum borgarinnar. Dæmi Kjartans er ekki einsdæmi því flestir borgarfulltrúar meiri- hlutans fá álagsgreiðslur vegna for- mennsku í fagráðum ofan á grunn- laun sín og þiggja þóknun fyrir stjórnarsetu í fyrirtækjum borgar- innar. Nánar verður fjallað um laun og aukagreiðslur borgarfulltrúanna í helgarblaði DV. Skýrar reglur ekki til Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir að engar skýrar regl- ur gildi um fyrirtæki borgarinnar og aðkomu kjörinna fulltrúa að þeim. „Þessi fyrirtæki eru fyrir utan þetta pólitíska nefndakerfi sem tilheyr- ir fulltrúahlutverkum þeirra. Störfin í stjórnunum eru líklega skilgreind fyrir utan þetta hefðbundna hlutverk kjörins fulltrúa í sveitarstjórn og þess vegna launað starf. Hugsunin hlýt- ur auðvitað að vera að þetta sé meiri vinna en eðlilegt er ætlast til af kjörn- um fulltrúa. Svo er aftur annað mál hvort fólki finnst að þessi fulltrúar eigi heima í þessum fyrirtækjum eða hvort krafa sé um að aðrir eiga frekar að sjá um þau.“ Mikil vinna Grétar Þór bendir á að mikil vinna geti fylgt fulltrúastarfinu. „Í svona stórum sveitarfélögum eins og Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akureyri er það orðin ansi mik- il vinna að vera borgar- eða bæjar- fulltrúi, kannski í meirihluta, og með formennsku í nefndum. Þetta þýðir að viðkomandi allt að því hrökklast út af öðrum vinnumarkaði. Þá er það spurning um hvort fulltrúar hlaði á sig verkefnum í sveitarstjórnarmál- unum til að þeir þurfi ekki að standa í annarri vinnu. Þetta er ein hlið á þessu. En menn geta náttúrulega seilst langt í því að koma ár sinni fyrir borð,“ segir Grétar. Lágmarksfjöldi fulltrúa Í Reykjavík búa 120.000 manns en í Kópavogi 30.000. Grétar Þór segir að ekki megi gleyma þessum stærð- armun. „Reykjavík er yfirgnæfandi stærsta sveitarfélagið á Íslandi. Og fulltrúarnir eru ekkert mikið fleiri en í Kópavogi. Verkefnin og umfang- ið er margfalt meira en það eru fjór- um fleiri borgarfulltrúar í Reykjavík. Það væri hægt að skoða hvort menn vildu ekki dreifa þessari vinnu á fleiri hendur. Samkvæmt sveitarstjórnar- lögum eiga sveitarfélög með 50.000 íbúa og fleiri að hafa 15-27 fulltrúa. Það er sem sagt heimild í lögum til að hafa 27 borgarfulltrúa. Grétar rifjar upp sögu borgarstjórnarmál- anna. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hafði hreinan meirihluta borgarfull- trúa mörg kjörtímabil í röð skapaðist ákveðin hefð. „En það hefur alltaf verið valin sú leið að vera með 15 borgarfull- trúa. Aðalástæðan er sú að á meðan Sjálfstæðisflokkurinn var alltaf með hreinan meirihluta var það stærð- fræðileg staðreynd að það var auð- veldast að halda hreinum meirihluta með 15 fulltrúum. Vinstrimeirihlut- inn 1978-’82 fjölgaði borgarfulltrú- um í 21. Því var síðan breytt snarlega aftur þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst að 1982 undir forystu Davíðs Oddssonar og fulltrúum fækkað aft- ur niður í 15,“ segir Grétar. Flestir borgarfulltrúar meirihluta og minnihluta hafa góðar aukatekjur af setu í stjórnum fyrirtækja Reykjavíkurborgar. Stjórnmálafræðiprófessorinn Grétar Þór Ey- þórsson veltir fyrir sér hvort borgarfulltrúar hafi of mikið að gera. FÁIR FULLTRÚAR UM HITUNA HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Situr í stjórn SHS Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri situr í stjórn Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins. MYND BRAGI ÞÓR Stjórnarformaður Júlíus Vífill er stjórn- arformaður Faxaflóahafna. MYND RÓBERT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.