Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Qupperneq 24
Sm áa ug lý si ng ar SÍMINN ER 515 55 50 sm aa r@ dv .is Hafðu samb and í sím a 515 -5555 eða s endu tölvup óst á ask rift@d v.is - inn í h lýjuna Fáðu D V heim í áskrif t Heimamenn í Austurríki undir stjórn fyrrverandi landsliðsfyrirliða Íslands, Dags Sigurðssonar, töpuðu opnunarleiknum á Evrópumótinu í gærkvöldi, 33-29, gegn Evrópumeist- urum Dana. Austurríkismenn veittu sterku liði Dana harða mótspyrnu og var það ekki fyrr en farið var að líða á seinni hálfleik að Evrópumeistararn- ir tóku völdin og náðu sigri. Það var nánast sama hvað Dan- ir gerðu í fyrri hálfleik, alltaf komu heimamenn aftur með mikilli bar- áttu og sterkum karakter sem fleytti þeim langt í leiknum. Dagur Sigurðs- son hefur unnið þrekvirki með aust- urríska liðið sem spilar ágætis hand- bolta og hrellti stórlið Dana mikið, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá virðist Dagur vera maður nýj- unganna en hann bauð heldur bet- ur upp á óvæntan hlut í gær. Í nokk- ur skipti þegar Austurríki var manni færra setti hann inn aukamann í sóknina og þurfti því að taka mark- vörðinn af velli. Í öll þrjú skiptin tókst heimamönnum að skora og var það aðeins í eitt skipti sem Dönum, þá Hans Lindberg, tókst að skora í tómt netið. Afar sérstök en skemmtileg taktík hjá Degi. Munurinn í hálfleik var tvö mörk, 17-15, en með smá klókindum hefðu heimamenn getað farið með jafnt inn í hálfleikinn. Í seinni hálfleik hertu Danir tökin á leiknum og náðu mest fjögurra marka forskoti í tvígang. Í bæði skiptin komu Austurríkismenn til baka og létu Evrópumeistarana svo sannarlega hafa fyrir hlutunum, enda ekki annað hægt fyrir framan sitt fólk. Það fór svo að Danir höfðu fjögurra marka sigur, 33-29, og byrja Evrópumótið því á sigri. Ljóst er, eins og búist var reyndar við, að hvorki Ísland né Serbía geti slegið slöku við gegn Austurríkis- mönnum sem munu án efa gera allt sitt til að innbyrða að minnsta kosti einn sigur á mótinu. Ísland leik- ur einmitt gegn heimamönnum á fimmtudaginn. tomas@dv.is Evrópumeistarar Dana unnu opnunarleikinn: DAGUR BYRJAR Á TAPI UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is 24 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 SPORT TRYGGVI OG ÞÓRÐUR EKKI NÓGU GÓÐIR Tony Pulis, stjóri Stoke, ber Íslendingunum sem stjórnuðu félaginu ekki góða söguna. „Ég fékk einu sinni símhringingu frá Gunnari Gíslasyni stjórnarformanni frá Íslandi. Þá var Stoke með tvo Íslendinga sem hann hafði komið með og hann vildi vita af hverju ég væri ekki að nota þá. Ég svaraði að þeir væru ekki nógu góðir,“ segir Pulis en hann á væntanlega við Tryggva Guðmundsson og Þórð Guðjónsson sem komu fyrir tilstuðlan Gunnars en spiluðu lítið sem ekkert. „Hann sagði að þeir væru víst nógu góðir og að annar þeirra hefði skorað 40 mörk í 10 leikjum fyrir Dog og Duck á Íslandi. Hann benti mér þá á að ef þeir væru ekki í liðinu í næsta leik væri ég ekki öruggur með mitt starf. Ég sagði bara honum að gera það sem hann þyrfti að gera. Þetta hefur ekki gerst síðan að eigandi skipi mér að velja liðið og þetta var mjög spes,“ rifjar Tony Pulis upp. EM A RIÐILL RÚSSLA ND - ÚKRAÍNA 37-33 KRÓATÍA - NOREGUR 25-23 1. Rússland 1 1 0 0 37:33 2 2. Króatía 1 1 0 0 25:23 2 3. Noregur 1 0 0 1 23:25 0 4. Úkraína 1 0 0 1 33:37 0 EM B RIÐILL DANMÖRK - AUSTURRÍKI 33-29 ÍSLAND - SERBÍA 29-29 1. Danmörk 1 1 0 0 33:29 2 2. Ísland 1 0 1 0 29:29 1 3. Serbía 1 0 1 0 29:29 1 4. Austurríki 1 0 0 1 29:33 0 EM C RIÐILL ÞÝSKALAND - PÓLLAND 25-27 SVÍÞJÓÐ - SLÓVENÍA 25-27 1. Pólland 1 1 0 0 27:25 2 2. Slóvenía 1 1 0 0 27:25 2 3. Svíþjóð 1 0 0 1 25:27 0 4. Þýskaland 1 0 0 1 25:27 0 EM D RIÐILL SPÁNN - TÉKKLAND 37-25 FRAKKLAND - UNGVERJALAND 29-29 1. Spánn 1 1 0 0 37:25 2 2. Frakkland 1 0 1 0 29:29 1 3. Ungverjaland 1 0 1 0 29:29 1 4. Tékkland 1 0 0 1 25:37 0 Dagur Sigurðsson Náði ekki sigri í opnunarleiknum. Snorri Steinn Guðjónsson gat verið hetja Íslendinga í gærkvöldi þegar Róbert Gunnarsson fiskaði vítakast gegn Serbíu í þann mund sem leik- tíminn rann út. Serbar voru þá búnir að jafna metin, 29-29, eftir að Ísland leiddi með fjórum mörkum undir lokin, 29-25. Eins og alþjóð veit lét Snorri verja frá sér og því sjúklega sárt jafntefli staðreynd. Íslenska lið- ið sýndi allar sínar bestu hliðar í fyrri hálfleik og þrátt fyrir ekki jafngóð- an seinni hálfleik virtist ekkert geta stöðvað sigur Íslands. Jafnteflið virk- ar eflaust sem handbremsa á þjóð- ina enda væntingarnar gífurlegar og vonbrigðin ólýsanleg. Nú er spurn- ingin einungis hvort þetta efli strák- ana okkar eða brjóti þá niður fyr- ir næsta leik gegn heimamönnum í Austurríki. Sparihliðarnar í fyrri hálfleik Þrátt fyrir klúður í tveimur dauðafær- um í upphafi leiks náði Ísland strax forystu, 4-1, og komu öll mörkin úr hraðaupphlaupum. Vörnin var frá- bær og Björgvin enn betri fyrir aft- an. Auðveldu mörkin hrönnuðust því upp og gjörsamlega keyrðu strák- arnir yfir Serbana til að byrja með. Stórskyttan í liði Serba, Momir Ilic, komst lítt áleiðis gegn framsækinni og ákafri vörn strákanna. Eitt helsta vandamál íslenska liðsins, eins ótrúlegt vandamál og það nú er, er að geta ekki keyrt yfir lið þegar þau eru manni færri. Ísland var einum fleiri í sex mínútur af sjö um tíma í fyrri hálfleik en náði aldrei að nýta sér það almennilega. Betur gekk þegar strákarnir vorum tveimur færri en þann kafla kláruðu þeir 1-1 með mögnuðu marki Ólafs Stefáns- sonar. Eins frábært sóknarlið og Ísland er þá er þetta vandamál, sem verður eiginlega að teljast lúxusvandamál, frekar óþolandi. Sérstaklega þegar í horninu bíður einn Guðjón Valur Sigurðsson tilbúinn að skora en Guð- jón átti frábæran leik í gær og skoraði 9 mörk. Sex marka munur hefði ver- ið ósköp eðlilegur í hálfleik en varn- arjaxlinn Ingimundur Ingimundar- Ísland kastaði því frá sér sem virtist öruggur sigur í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Austurríki í gær. Fjögurra marka forysta undir lokin, 29-25, breyttist í grátlegt jafntefli, 29-29, en Ísland var yfir allan leikinn. Mikill munur var á íslenska liðinu í fyrri og seinni hálfleik. Snorri Steinn Guðjónsson fékk tækifæri til að bjarga sigrinum með vítakasti þegar leiktími var liðinn en lét verja frá sér. SVO SJÚKLEGA SÁRT TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Komnir í gegn Vörn Íslands opnaðist í seinni hálfleik eftir að hún var frábær í þeim fyrri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.