Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR SYSTKININ VILDU LOSNA Bæði Steingrímur Wernersson og systir hans Ingunn vildu selja sig út úr eignarhaldsfélagi þeirra Wern- erssystkina, Milestone, fyrir hrun- ið 2008, samkvæmt heimildum DV. Karl Wernersson bróðir þeirra var hins vegar ekki hrifinn af því að leyfa þeim að selja sig út úr félaginu. Þó fór það svo að bræðurnir keyptu Ingunni út úr Milestone árið 2006 fyrir rúma 5 milljarða króna. Ingunn hafði átt 28 prósent í félaginu á móti 31 prósenti Steingríms og 41 prósenti Karls. Karl vildi kaupa Ing- unni út á lægra verði en Steingrím- ur mun hafa sett sig upp á móti því og því var hlutur hennar keyptur á hærra verði en ella. Steingrími mun hafa sviðið þetta og hefur samband hans við Steingrím og systur sína ekki verið gott eftir þetta. Steingrímur mun svo sjálfur hafa viljað selja sig út úr félaginu en Karl mun hafa talað hann inn á að gera það ekki því þeir bræðurnir þyrftu að standa saman. Steingrímur mun hafa látið undan þrýstingi frá bróð- ur sínum. Milestone skilyrði Werners Ástæðan fyrir því að þau systkin- in áttu Milestone saman til að byrja með er sú að þegar faðir þeirra, Werner Rasmusson apótekari, greiddi þeim arf fyrir fram árið 1999 setti hann það sem skilyrði að syst- kinin settu peninga inn í fjárfestinga- félag sem þau ættu saman. Werner hafði auðgast á lyfja- bransanum og meðal annars verið framkvæmdastjóri og stjórnarfor- maður lyfjafyrirtækisins Pharmaco um árabil. Hann var einn af stofn- endum lyfjafyrirtækisins Delta sem aftur sameinaðist Pharmaco síðar undir nafninu Actavis. Hann eign- aðist einnig Ingólfsapótek sem síð- ar varð hluti af keðjunni Lyfjum og heilsu sem bræðurnir eiga enn sam- an í dag – Karl á 60 prósent og Stein- grímur 40. Werner tengist svo aftur Mile- stone að því leyti að eignarhaldsfé- lag í hans eigu, Svartháfur, var stofn- að gagngert til þess að miðla láni til dótturfélaga Milestone í febrúar 2008. Dótturfélög Milestone þurftu að standa í skilum við bandaríska fjárfestingabankann Morgan Stanley en voru komin yfir lánaheimildir sín- ar hjá Glitni. Því þurfti að búa til ann- að eignarhaldsfélag sem miðlað gæti fjármununum úr Glitni og til dóttur- félaga Milestone. Skilyrðið var þannig að systkinin áttu að taka þátt í félaginu sem Karl átti að stjórna. Ef eitthvert þeirra vildi ekki taka þátt í því áttu hin systkin- in að kaupa það út á tilteknu verði. Heimildir DV herma að Steingrími hafi þótt þetta verð of lágt til að hann tæki ekki þátt í félaginu frekar. Hann og Ingunn tóku því þátt í Milestone. Tvö önnur eldri systkini þeirra, Anna og Ólafur, voru hins vegar aldrei hluthafar í félaginu. Heimildir DV herma að þetta hafi annaðhvort ver- ið vegna þess að Karl vildi það ekki eða vegna þess að þau vildu ekki vera með í félaginu. Í samtali við DV vill Anna ekki svara því af hverju hún tók ekki þátt í stofnun Milestone á sínum tíma. „Ég ætla ekki að svara því.“ Ekki náðist í Ólaf á þriðjudag. Viðskiptin rannsökuð Viðskipti Milestone og Ingunnar hafa verið til skoðunar hjá skipta- stjóra þrotabús Milestone, Grími Sig- urðssyni. Hann er meðal annars að skoða hvort hægt sé að rifta viðskipt- um félagsins við Ingunni sem lokið var við með tveggja og hálfs milljarðs króna greiðslu árið 2007. Ástæðan fyrir því að mögulega er hægt að rifta viðskiptunum er sú að engar skýringar hafa fund- ist á greiðslunum í bókhaldi Mile- stone. Skiptastjórinn komst að því í skýrslu sem lögð var fyrir kröfuhafa Milestone í desember að líta þyrfti á greiðslurnar sem lán. Skýringar þeirra Karls og Steingríms hafa hins vegar verið á þá leið að ekki hafi verið um lán að ræða heldur hafi þeir ver- ið að kaupa systur sína út. Peningar Milestone, en ekki persónulegir fjár- munir þeirra sjálfra, voru hins vegar notaðir til þessa. Heimildir DV herma að afar lík- legt sé að þrotabúið reyni að sækja þá fjármuni sem greiddir voru frá Milestone til Ingunnar því litið sé svo á að annaðhvort hafi verið um lán að ræða eða einfaldlega gjafir til Ing- unnar sem engar útskýringar fáist á. Kröfuhafafundur verður haldinn hjá þrotabúinu þann 25. þessa mán- aðar þar sem þetta verður meðal annars rætt. Einbeitti sér að listum og menningu Eftir að Ingunn, sem er menntuð hjúkrunarkona, var keypt út úr Mile- stone hefur hún fyrst og fremst ein- beitt sér að fjárfestingum á sviði menningar og lista. Hún stofnaði fé- lag sem heitir Inn Fjárfesting eftir að hún seldi sig út úr Milestone sem sér um þessi viðskipti hennar. Ingunn hefur meðal annars fjár- fest í Stradivarius-fiðlu – sem íslensk- ur fiðluleikari hefur haft til umráða – listaverkum og svo keypti hún gamla Borgarbókasafnið í Þingholtsstræti af norska málaranum Odd Nerdrum árið 2007. Heilmiklar framkvæmdir voru við húsið á síðasta ári. Fjárhagsstaða Ingunnar er ekki þekkt í dag en ljóst er að það mun koma sér illa fyrir hana ef þrotabú Milestone reynir að sækja til hennar fjármunina sem hún fékk greidda út úr Milestone enda er um á 6. milljarð króna að ræða. Ekki náðist í Ingunni á þriðju- dag til að spyrja hana hvort hún gæti greitt fjármunina aftur til þrotabús- ins ef þurfa þætti í framtíðinni. Dramatískri sögu Milestone, sem hófst með því að Werner greiddi börnum sínum arf, er því hvergi nærri lokið: Enn á eftir að gera bú fé- lagsins upp og niðurstöður eiga eft- ir að koma í rannsókn sérstaks sak- sóknara á félaginu og eigendum þess og starfsmönnum. INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is n Karl Wernersson, 48 ára, viðskiptafræðingur. Hluthafi og stjórnarformaður Milestone. n Steingrímur Wernersson, 44 ára, lyfjafræðingur. Hluthafi í Milestone og stjórnarmaður. n Ingunn Wernersdóttir, 46 ára, hjúkrunarkona og fjárfestir. Hluthafi í Milestone til 2006. n Anna Wernersdóttir, 50 ára, kennari. Var aldrei hluthafi í Milestone. n Ólafur Wernersson, 53 ára, tæknifræðingur. Var aldrei hluthafi í Milestone. Wernerssystkinin Ég ætla ekki að svara því. Tvö systkini Karls Wern- erssonar vildu selja sig út úr Milestone en hann var tregur til að samþykkja það. Werner faðir þeirra setti það sem skilyrði fyrir fyrirframgreiddum arfi að systkinin stofnuðu saman fjárfestingafélag. Tvö önnur systkini tóku ekki þátt í stofnun Milestone. Líklegt er að sölu Ingunnar Wern- ersdóttur á Milestone- hlutnum verði rift. Skilyrði Werners Werner Rasmusson faðir þeirra Milestone-systkina setti það sem skilyrði að systkinin stofnuðu saman fjárfestingafélag þegar hann greiddi þeim arf fyrir fram árið 1999. Tilefni deilna Karl Wernersson mun hafa verið fúll út í bróður sinn Steingrím eftir að sá síðarnefndi krafðist þess að Ingunn Wernersdóttir yrði keypt út úr Milestone á sanngjörnu verði. Ingunn, sem er mikill kattavinur, sést hér með ísbjarnarfeld og verk eftir Baltasar Samper í bakgrunninum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.