Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 25
Hefndin var sæt hjá Pólverjum sem unnu nágranna sína og erki- fjendur frá Þýskalandi, 27-25, á fyrsta degi Evrópumótsins í gær- kvöldi. Þýskaland vann Pólland í úrslitaleik heimsmeistaramótsins árið 2007 en liðin hafa ekki mæst á stórmóti síðan þá. Pólverjar leiddu nær allan leikinn gegn þýska liðinu sem virðist ekki líklegt til afreka á mótinu. Markvörðurinn Slawom- ir Szmal fór á kostum og skytt- an magnaða Karol Bielecki skor- aði sex mörk. Hjá Þjóðverjum átti markvörðurinn Jogi Bitter einnig magnaðan leik en hann hélt sínum mönnum einfaldlega inni í leikn- um lengi vel. Ungverjar náðu líklega óvænt- ustu úrslitum mótsins þegar þeir gerðu jafntefli gegn heims- og ól- ympíumeisturum Frakka, 29-29. Ferenc Ilyés skoraði sjö mörk fyrir Ungverja en það kom lítið á óvart hver var markahæstur Frakkanna, að sjálfsögðu Nicola Karabatic. Þetta stig getur fleytt Ungverjum langt á mótinu en Frakkar eru fyrir fram taldir sigurstranglegastir. Spánverjar minntu einnig ræki- lega á sig í gærkvöldi. Iker Rom- ero skoraði hvorki fleiri né færri en fjórtan mörk í upprúllun á Tékk- um, 37-25, en Tékkar ætluðu sér stóra hluti á mótinu. Þá töpuðu Svíar einnig fyrir Slóvenum, 25-27, eftir að hafa leitt meira og minna allan leikinn. Gífurlega svekkj- andi hjá Svíunum sem fengu þó frábæra markvörslu að vanda. Daniel Beutler, markvörður Flens- borgar, var með fjörtíu prósenta markvörslu en það dugði ekki til. Að lokum vann Króatía Noreg, 25-23, og Rússar sigruðu Úkraínu í sama riðli, 37-33. Það er sá riðill sem mætir Íslandi í milliriðli kom- ist liðið þangað. tomas@dv.is Ungverjar náðu óvæntu jafntefli gegn Frökkum: PÓLVERJAR UNNU ERKIFJENDURNA SPORT 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 25 BABEL BAÐST AFSÖKUNAR Ryan Babel, leikmaður Liverpool, er kominn aftur í liðshópinn eftir að hafa rifist við Rafael Benitez, knattspyrnu- stjóra liðsins, fyrir helgi. Babel, sem er 23 ára, reifst við Benitez eftir að hann lét það flakka á samskiptavefnum Twitter að hann yrði ekki í liðinu gegn Stoke City síðastliðinn laugardag. Rifrildi varð síðan á æfingasvæði liðsins milli Babels og Benitez og í kjölfarið var Babel tekinn úr hópnum, en hann hefur nú beðið stjórann afsökunar og gæti því leikið gegn Tottenham. „Hann kom við á skrifstofu minni og baðst afsökunar. Hann veit að hann gerði mistök og það er nóg fyrir mig. Ég þarf ekki að tala frekar um þetta mál,“ sagði Benitez. YFIRTAKA BJÖRGÓLFS VAR KLIKKUN David Sullivan, einn af nýjum eigendum West Ham, segir að yfirtaka Íslendinganna hafi verið klikkun, jafnvel heimskuleg. Hann upplýsti að félagið skuldaði 100 milljónir punda þegar tilkynnt var að hann hefði tekið yfir 50% eignarhlut. „Við munum vera heið- arlegir við stuðningsmennina varðandi bókhald félagsins, ójafnvægið í leikmanna- hópnum og þau brjálæðislegu laun sem Íslendingarnir greiddu hafa sett félagið í þá stöðu sem það er nú í. Við höfum fjóra mánuði til að kaupa restina af Straumi en við munum ekki gera þetta eins heimskulega og fyrrverandi stjórnarformaður,“ sagði Sullivan grátklökkur enda stuðningsmaður West Ham frá barnæsku. RONALDINHO SEMUR n Fyrrverandi besti knattspyrnu- maður heims, Ronaldinho, hefur heldur bet- ur verið að minna á sig að undanförnu. Hann hefur staðið sig svo vel með AC Milan að félagið ætlar að bjóða hon- um nýjan samning. Hann skoraði meira að segja fyrstu þrennu sína fyrir félagið í 4-0 sigri á Siena um síðustu helgi. Milan hefur leikið frá- bærlega eftir áramót og hefur saxað á forskot Inter á toppnum, niður í sex stig. AC á einnig leik til góða og þá mætast Mílanó-liðin tvö í stór- leik um næstu helgi þar sem þeir rauðsvörtu geta komist enn nær erkifjendum sínum á toppnum. HELGI VALUR TIL ÞÝSKALANDS n Miðjumaðurinn Helgi Valur Daníelsson er við það að ganga frá samningi við þýska félagið Hansa Rostock. Helgi sem hefur átt fast sæti í landsliðshóp Ólafs Jóhann- essonar hefur verið burðarás í sænska liðinu Elfsborg en minnstu mun- aði að hann gengi í raðir Hansa síðastliðið sumar. Hann gengst undir læknisskoðun hjá félaginu á miðvikudag eða fimmtudag eftir því sem kom fram á mbl.is. Sam- kvæmt sænskum fjölmiðlum borga Þjóðverjar um 4 milljónir sænskar fyrir Helga Val eða því sem nemur 70 milljónum íslenskum. LIÐSAUKI TIL BURNLEY n Enska úrvalsdeildarliðið Burnley sem Jóhannes Karl Guðjónsson leikur með hefur fengið mikinn liðsauka. Þó ekki inn á völlinn heldur á bak við tjöldin. Með komu nýja stjór- ans, Brians Law, hefur allt helsta starfs- lið Sheffield Wednesday gengið í raðir Burnley. Laws sjálfur var rekinn frá Wednesday í byrjun tímabils. Owen Coyle sem yfirgaf Burnley á dögunum fyrir Bolton tók helstu starfsmenn þess yfir til Bolton og vantaði því starfsfólk til Burnley. HARRY VILL RUUD n Harry Redknapp, knattspyrnu- stjóri Tottenham, hefur viðurkennt að hann vilji fá einn albesta fram- herja heims til liðsins, Hollend- inginn Ruud van Nistelrooy. Ruud er ekki inni í myndinni hjá Real Madr- id og hefur hann fengið grænt ljós á að yfirgefa félagið. „Þetta er spennandi en þetta veltur á því hvers konar samningum er hægt að ná. Formaðurinn myndi sjá um þá hlið málsins en hann er spennandi leikmaður. Hann var frábær á Englandi og hann er frábær markaskorari,“ segir Red- knapp sem er þó með þrjá lands- liðsframherja innan sinna raða. MOLAR SVO SJÚKLEGA SÁRT son brenndi af dauðafæri og hinum megin skoruðu Serbar rétt fyrir hálf- leiksgalið. Svart í seinni Björgvin Páll Gústavsson átti frábær- an leik í fyrri hálfleik og er það nokk- uð ljóst að Íslandi eru allir vegir færir haldi það uppi markvörslu á mótinu. Því miður gerðist það þó eins og áður hefur gerst að á Björgvini slökknaði í seinni hálfleik. Vörnin linaðist líka mikið og fóru stórskyttur Serba að fá betri færi. Eftir fyrstu sjö mínúturn- ar í fyrri hálfleik var Ísland aðeins búið að ná einu stoppi í vörninni og Björgvin ekki búinn að verja skot. Þó hafði hann varið þrjú skot inn í mark- ið. Það var til marks um varnarleik- inn að fyrsta hraðaupphlaup Íslands kom ekki fyrr en eftir sautján mín- útur í seinni hálfleik, Ísland þó með forystu, 26-22. Aðalmaður Serba, Momir Ilic, var tekinn af velli snemma í seinni hálf- leik sem segir okkur þó að vörnin hafi verið að gera eitthvað rétt. Aðr- ar skyttur Serbanna fundu þó fjölina sína svo um munaði og var Hreiðar Levy sem kom í markið aldrei ná- lægt því að verja langskot mótherj- anna. Hreiðari til varnar voru skot- in þó mjög erfið og þá varði hann 6 skot, þar af eitt víti og annað dauða- færi. Betur má þó ef duga skal. Eins vondur og seinni hálfleik- urinn var, það er að segja miðað við fyrri hálfleikinn, virtist Ísland ætla að hafa góðan sigur enda liðið með fjögurra marka forskot, 29-25, þeg- ar skammt var eftir. Þá tóku Serbar sig til og skoruðu þrjú mörk í röð og minnkuðu muninn í eitt mark, 29-28. Ísland fékk þá sókn til þess að kom- ast yfir en Snorri Steinn fékk dæmd- an á sig ruðning á klaufalegan hátt. Serbarnir jöfnuðu, 29-29, „and the rest is history“, eins og maðurinn sagði. Svo sárt, svo svekkjandi, svo erfitt að takast á við. Arnór svaraði kallinu Handboltaspekingar landsins hafa haft miklar áhyggjur af vinstri vængn- um enda Logi Geirsson hálfur mað- ur og fóstbróðir hans, Aron Pálmars- son, óreyndur. Arnór Atlason slökkti þó í þeim áhyggjum, sérstaklega í seinni hálfleik. Arnór fór hreinlega á kostum og bjargaði íslenska liðinu oft úr erfiðum aðstæðum með glæsi- legum gólfskotum. Arnór hélt sókn- arleiknum nánast einn uppi á loka- kafla leiksins og er vonandi að hann haldist heill. Hann lék líka 52 mínút- ur af 60 en miklar áhyggjur hafa verið af líkamlegu ástandi hans. Annar maður sem fann sig þó ekki í skotunum var fyrirliðinn, Ól- afur Stefánsson. Darko Stanic, mark- vörður Serbíu, virtist hafa stúderað Ólaf til þrautar og varði frá honum trekk í trekk. Oftar en ekki var hann líka mættur í hornin löngu áður en Ólafur skaut og greip meira að segja tvö, ef ekki þrjú skot frá fyrirliðanum. Ólafur var þó ómetanlegur í sóknar- leiknum að vanda. Dagur til að hugsa málin Ísland er svo heppið, eða óheppið eftir því hvernig litið er á málið, að hvíla á miðvikudag og leika ekki næst fyrr en á fimmtudag. Þá mæta Ís- lendingar heimamönnum í Austur- ríki sem fóru flatt á því gegn Dönum þrátt fyrir að sýna góðan leik. Sigur ætti að sjálfsögðu að teljast forms- atriði en margt í leik Austurríkis þarf að skoða vel og er bókað að þjálfarar- nir þrír, Guðmundur, Óskar Bjarni og Gunnar Magnússon, munu fara vel yfir liðsmenn Dags Sigurðssonar sem þráir eflaust að hirða sigur af sínum gömlu félögum. Leikmenn Íslands geta þá einnig farið yfir hvað gerðist á lokamínút- unum í gær og séð til þess að það ger- ist ekki aftur. Eitt stig hefði fyrir fram kannski talist ágætt gegn sterku liði Serba en úr því sem komið var eru úrslitin synd og skömm. Algjör synd. Arnór Atlason Slökkti í ahyggjum manna af vinstri vængnum og átti frábæran leik. Hávörnin Sverre og félagar í vörninni áttu misjafnan leik í gærkvöldi. Slawomir Szmal Var frábær fyrir Pólverja gegn Þýskalandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.