Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR VILJA KJÓSA UM KVÓTANN Stríðið um kvótakerfið harðnar og óvíst er hvort ríkisstjórnin standist þrýstinginn frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Hópur manna sem vill endurvekja Samtökin um þjóðareign hefur lagt fram hug- myndir um að safna undirskriftum í anda InDefence gegn Icesave-skuldbindingunum og láta þjóðina sjálfa skera úr um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Við þurfum að fá þjóðaratkvæða- greiðslu um kvótakerfið. Við höf- um áhyggjur af því að ríkisstjórn- in ætli ekki að standa við fyrirheit í stefnuskrá sinni um innlausn kvót- ans til lögmætra eigenda eftir svo- nefndri fyrningarleið,“ segir Grétar Mar Jónsson, skipstjórnarmaður og fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins. Grétar Mar er einn þeirra sem sótti fund í Reykjavík á miðvikudag í síðustu viku þar sem lagt var á ráð- in um það hvernig best yrði að því staðið að styðja við nauðsynlegar breytingar á kvótakerfinu. „Það er mín tilfinning að þetta eigi meiri hljómgrunn en oft áður. Ég heyri það í kringum mig að fólk tekur ekki í mál að ríkisstjórnin gefi eftir og selji stefnu sína í fiskveiði- stjórnunarmálinu í einhverjum hrossakaupum.“ Neyðarfundur gegn LÍÚ Grétar Mar styður tilraun Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um að leigja árlega út 2.000 tonn af skötuselskvóta næstu tvö árin án þess að úthluta honum til útgerða í samræmi við aflahlutdeild þeirra innan kvótakerfisins. „Útgerðirnar greiða nú árlega um 400 milljónir króna í veiðileyfa- gjald og barma sér undan því. Frið- rik J. Arngrímsson, framkvæmda- stjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, hefur sagt að þetta sé nálægt 10 prósentum af árleg- um arði útgerðarinnar í landinu. Heildararðurinn er þannig nálægt 4 milljörðum króna sem eru engin ósköp. Með því að leigja skötusel á 120 krónur kílóið fá landsmenn 240 milljónir króna á ári í afrakstur af auðlind sinni,“ segir Grétar Mar. Nokkur fjöldi sótti fundinn síð- astliðinn miðvikudag, þeirra á meðal Jón Magnússon, fyrrverandi þingmaður, og Jón Baldvin Hanni- balsson, fyrrverandi ráðherra. Auk þeirra má nefna Guðmund Gunn- þórsson, Þórð Má Jónsson, Guð- mund Svavarsson og Finnboga Vikar sem sæti á í starfshópi sjáv- arútvegsráðherra um endurskoðun kvótakerfisins. Krefja Samfylkinguna um skýringar „Fyrningarleið stjórnvalda myndi hafa í för með sér fjöldagjaldþrot sjávarútvegsfyrirtækja með til- heyrandi tjóni fyrir efnahag lands- ins. Sýnt hefur verið fram á þetta í skýrslu endurskoðunarfyrirtækis- ins Deloitte, sem unnin var á síðasta ári og kynnt hefur verið stjórnvöld- um. Það er því beinlínis samfélags- leg skylda útvegsmanna að vinna gegn þeim skemmdarverkum sem fyrningarleiðin felur í sér,“ segir í yfirlýsingu Lands- sambands íslenskra út- vegsmanna frá 14. janúar síðastliðnum. Samkvæmt heimild- um DV hefur LÍÚ nú sent Samfylkingunni bréf þar sem farið er fram á að út- vegsmenn fái aðgang að gögnum sem flokkurinn leggi til grundvallar varð- andi útfærslu fyrn- ingarleiðarinn- ar. Stjórn- völd bregð- ist við ef flot- inn siglir í land Mikla athygli vakti í síðustu viku þeg- ar Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, upplýsti um stjórnarsamþykkt sambandsins um að sigla flotanum í land ef stjórn- völd héldu fast við að fara fyrning- arleiðina með tilheyrandi ögrunum varðandi skötuselskvótann. „Það er ótrúleg hótun af hálfu LÍÚ að láta sér til hugar koma að beita sjómönnum og landvinnslu- fólki fyrir sig með þessum hætti; beita fólkinu sem lifandi skildi fyr- ir hagsmuni sína,“ segir Ólína Þor- varðardóttir, þingmaður Samfylk- ingarinnar. „Ef svo ólíklega vildi til að þeir létu verða af þessu yrði að taka á því af festu og fullri alvöru. Stjórnvöld hafa þá skyldu að auð- lindir þjóðarinnar liggi ekki ónýtt- ar og í reiðileysi. Þess vegna hlyti að koma til álita að útdeila aflaheim- ildum til skipa utan LÍÚ, skipa sem ekki hafa kvóta nú þegar og smærri skipa. Auðvitað grípa sjórnvöld ekki til slíkra ráðstafana fyrr en í fulla hnefana,“ segir Ólína. Kvótakerfið verði borið undir þjóðina Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar- innar er kveðið á um að lög um stjórn fiskveiða verði endurskoð- uð í heild. Endurskoðunin eigi að stuðla að vernd fiskistofna, stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda, treysta atvinnu og efla byggð í land- inu og skapa sátt meðal þjóðarinn- ar um eignarhald og nýtingu auð- linda sjávar. Þá segir að lagður skuli grunnur að innköllun og endurráð- stöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka. „Endurskoðunin mun verða unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun taki gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. sept- ember 2010. Skipaður verði starfs- hópur er vinni að endurskoðun- inni og kalli til samráðs hagsmunaaðila og sérfræðinga.“ Af framansögðu má ráða að fátt bendir til þess að sátt sé að nást um innköllun fiskveiðiheimilda og end- urráðstöfun þeirra. Þvert á móti er að sjá sem mikil átök séu yfirvofandi um kvótakerfið aldarfjórðungi eftir að því var komið á laggirnar. Nú hafa fylgismenn fyrningar- leiðarinnar og innköllunar kvótans hins vegar boðað nýjar baráttuað- ferðir. Þeir hyggjast taka InDefence sér til fyrirmyndar og safna undir- skriftum á þverpólitískum grund- velli og hafa lagt fram hugmynd um að bera málið undir þjóðina í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Samtök um þjóðareign Tólf ár eru liðin síðan Samtök um þjóðareign voru stofnuð. Það var gert með ávarpi og undirskriftum hóps manna. „Fiskimiðin eru í raun að hverfa úr eign íslensks almenn- ings til kvótaeigenda þrátt fyrir þau ákvæði 1. greinar laga um stjórn fiskveiða, að nytjastofnar á Ís- landsmiðum séu sameign þjóð- arinnar og að úthlutun veiði- heimilda samkvæmt lögunum myndi ekki eignarrétt eða óaft- urkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Þetta samræmist ekki hagsmunum og réttlætiskennd þjóðarinnar né hefð í nýtingu fiskimiðanna. Sjálfstæðisbarátta 19du aldar og sóknin til lýðveldis á fyrri hluta 20stu aldar var ekki aðeins háð til að losna undan erlendri áþján heldur einnig til þess að losna und- an sérdrægu forrétt- indakerfi fyrri alda,“ sagði í ávarpinu. Undir það rit- uðu 47 einstakl- ingar nöfn sín. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Með því að leigja skötu-sel á 120 krónur kílóið fá landsmenn 240 milljónir króna á ári í afrakstur af auðlind sinni. Grétar Mar Jónsson „Ég heyri það í kringum mig að fólk tekur ekki í mál að ríkisstjórnin gefi eftir og selji stefnu sína í fiskveiðistjórnunarmálinu í einhverjum hrossakaupum.“ Ólína Þorvarðardóttir „Þess vegna hlyti að koma til álita að útdeila aflaheimildum til skipa utan LÍÚ, skipa sem ekki hafa kvóta nú þegar og smærri skipa.“ Útvegsmenn vígbúast Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda- stjóri LÍÚ, segir að fyrningar- leiðin leiði til fjöldagjaldþrots í sjávarútvegi en hann skuldar þrefaldar árstekjur sínar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.