Són - 01.01.2011, Page 97

Són - 01.01.2011, Page 97
97RÍMNAMÁL Og það var ekkert frægðarstryk af Fjölni, þegar hann reif svo mikið niður rímnakveðskapinn að hann hefir aldrei risið upp síðan. Rímurnar eru að sínu leyti eins merkilegar og sögurnar [fornsögurnar], og þær voru talandi vottur um, ekki einúngis hversu lifandi fornöldin var í rímnaskáldunum, heldur og um það, hvernig sjálf fornskáldin fóru að yrkja. Þær voru óræk vitni á móti öllum þeim lygum og áburði, sem lærðir menn í útlöndum svo lengi hafa barið fram um okkur, að við værum búnir að týna málinu og allri fornöldinni, og sú núverandi íslendska væri allt annað mál en það sem Snorri ritaði Heimskrínglu á, eða hinir aðrir höfundar sögur og kvæði. Þegar Göngu-Hrólfs rímur Gröndals komu út árið 1893 fá þær eftir- farandi dóm í Fjallkonunni: „Ekki virðast þessar rímur taka fram rímum Sigurðar Breiðfjörðs eða öðrum hinum betri rímum, enn líkl. fá þær góð ar viðtökur hjá þeim sem eru nógu „þjóðlegir“ til að þýðast þær.“ 57 Það er öldungis ljóst að tónninn er mjög niðrandi í þessum dómi enda lét Benedikt þessu ekki ósvarað: „… og nú hefur hann (ritdóm - arinn) fengið tækifæri til að sýna hluttekningu sína og hlýleik við rímna - skáldskapinn, sem er einnig gamall arfur vor frá eldri tímum og ýmsir hafa viljað geyma, þó að sumum þykji það „fyrir neðan sig““. 58 Hér full yrðir Benedikt að hann hafi sneitt hjá ýmsum göllum eldri rímna - skálda, svo sem Sigurðar Breiðfjörð. Það sem skiptir þó meira máli í svari Benedikts er að hann ber rímur saman við söguljóð annarra þjóða, allt frá Hómer, og hér er komið að því atriði sem e.t.v. skipti sköpum um viðhorf margra manna til rímna sem síðar greinir frá. Harla lærdómsríkt er að lesa mansöngva Göngu-Hrólfs rímna Bene - dikts. Hann lýsir í 27. rímu yfir söknuði eftir hinu gamla góssi sem nú fjarlægist þjóðina óðum:59 Stórkostlegur harma her til heljar gengur, þegar hátt við hörpu syngur hugur manna kvæðaslyngur. Fátt er samt um slíkt á vorum sveitabæjum; ljóð og vísur liggja í dái, leikur blær um kvæðanái. 57 Ný bók (1893:151). 58 Benedikt Gröndal (1951 IV:35–36). 59 Benedikt Gröndal (1951 II:406–407).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.