Peningamál - 01.09.2005, Blaðsíða 8
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
3
að fjárfesting dragist saman, en útflutningur aukist. Þáttur útflutnings
í hagvexti mun aukast enn frekar á árinu 2007, álútflutningur mun
aukast verulega, en innlend eftirspurn dragast saman. Það má meðal
annars rekja til aðhalds peningastefnunnar sem birtist í hækkandi lang-
tíma raunvöxtum og háu raungengi. Sökum aukins útflutnings eru þó
horfur á ágætum hagvexti á því ári.
Eins og áður er hagvöxtur drifinn áfram af hagstæðum ytri skil-
yrðum, greiðum aðgangi að tiltölulega ódýru lánsfé innanlands og
utan, hækkun eignaverðs og mikilli bjartsýni. Þessi mikli vöxtur er
langt umfram vöxt framleiðslugetu og kemur því fram í verulegri og
vaxandi spennu á innlendum vöru- og vinnumarkaði. Spennan mun
ná hámarki á næsta ári en tekur síðan að hjaðna á árinu 2007, enda
verður innlend eftirspurn þá farin að dragast saman, auk þess sem
framleiðslugeta eykst verulega þegar byggingu álvera lýkur.
Verðbólguhorfur til skemmri tíma hafa versnað þrátt fyrir hátt
gengi krónunnar
Þrátt fyrir hærri stýrivexti og sterkara gengi hafa verðbólguhorfur til
næsta árs versnað töluvert frá síðustu spá Seðlabankans. Nú sýnir
grunnspáin að verðbólga verði rúmlega 4% eftir eitt ár, saman borið
Tafla I-1 Þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands
2004 2005 2006 2007 2004 2005 2006 2007
Stýrivextir Seðlabankans (%) 6,14 9,16 9,50 9,50 - 0,31 0,50 .
Gengisvísitala erlendra gjaldmiðla3 121,0 109,8 108,0 108,0 - -4,2 -6,9 .
Landsframleiðsla og helstu undirliðir hennar 2004 2005 2006 2007 2004 2005 2006 2007
Einkaneysla 6,9 10,3 8,2 4,3 -0,6 2,3 1,2 .
Samneysla 2,8 3,5 3,0 2,7 -0,8 1,0 0,4 .
Fjármunamyndun 21,0 31,1 -4,0 -16,0 8,2 -3,1 4,0 .
Atvinnuvegafjárfesting 23,3 54,7 -6,7 -26,9 10,4 1,9 7,2 .
Án stóriðju, skipa og flugvéla 17,3 5,4 -5,4 5,4 10,6 3,7 -3,8 .
Fjárfesting í íbúðarhúsnæði 5,7 12,0 10,0 0,2 2,7 -9,9 0,1 .
Fjárfesting hins opinbera 26,9 -7,3 -9,1 22,9 -0,4 4,3 -4,4 .
Þjóðarútgjöld 8,4 13,1 4,0 -1,0 0,7 0,7 1,6 .
Útflutningur vöru og þjónustu 8,3 4,4 6,1 14,5 - 0,4 -1,5 .
Innflutningur vöru og þjónustu 14,2 23,0 0,1 -1,0 -0,1 4,5 1,3 .
Verg landsframleiðsla 6,2 5,5 6,7 4,8 1,0 -1,1 0,5 .
Aðrar lykilstærðir
Landsframleiðsla á verðlagi hvers árs (ma.kr.) 885 998 1.115 1.212 26 12 34 .
Viðskiptajöfnuður (% af landsframleiðslu) -8,4 -14,2 -11,3 -6,1 -0,3 -2,2 -1,2 .
Framleiðsluspenna (% af framleiðslugetu) 1,5 3,6 4,8 2,7 0,4 0,3 0,4 .
Launakostnaður á almennum vinnumarkaði
(breyting milli ársmeðaltala, %) 4,7 6,1 6,4 5,5 0,2 0,1 0,3 .
Framleiðni vinnuafls (breyting milli ársmeðaltala, %) 4,0 2,0 1,9 1,8 0,9 -0,5 -0,6 .
Atvinnuleysi (% af mannafla) 3,1 2,0 1,9 2,4 - -0,1 - .
1. Ársmeðaltöl miðað við óbreytta vexti og gengi frá spádegi. 2. Breyting frá Peningamálum 2005/2. 3. Breyting frá síðustu spá er prósentubreyting gengisvísitölu.
Núverandi spá Breyting frá síðustu spá (prósentur)2
Forsendur um stýrivexti og gengi1
Ný þjóðhagsspá
Breyting frá síðustu spá
(prósentur)2
Magnbreyting
frá fyrra ári (%)
Núverandi spá
8