Peningamál - 01.09.2005, Blaðsíða 42
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
3
42
... og verð þjónustu hækkar
Á tólf mánuðum til september hækkaði verð opinberrar þjónustu
um 6,9% og verð þjónustu einkaaðila (almenn þjónusta) um
3,9%. Hefur tólf mánaða verðhækkun þjónustu einkaaðila farið
vaxandi undanfarna mánuði. Áhrif hærra verðs opinberrar þjónustu
á vísitölu neysluverðs námu rúmlega 0,5 prósentum og áhrif verð-
hækkunar þjónustu einkaaðila 0,9 prósentum, enda vegur þjónusta
einkaaðila þungt í vísitölunni. Á bak við þessar hækkanir virðast
einkum standa vinnuaflsfrekir þjónustuliðir. Má því gera ráð fyrir
að kostnaðarþrýstingur ásamt sterkri eftirspurn skýri verðhækkun
þjónustu.
Verðbólguvæntingar til næstu ára virðast um og yfir 4%
Verðbólguvæntingar markaðsaðila út frá vaxtamun verðtryggðra og
óverðtryggðra ríkisskuldabréfa til tæplega tíu ára hafa smám saman
verið að þokast upp á við. Samkvæmt þeim búast markaðsaðilar við
því að verðbólga verði rétt undir 4% að meðaltali næsta áratug.
Þessar væntingar eru í ágætu samræmi við niðurstöður kannana
IMG Gallup á verðbólguvæntingum almennings. Það sem af er þessu
ári hefur IMG Gallup gert þrjár kannanir á verðbólguvæntingum
almennings: um mánaðamót febrúar og mars, í maí og um mánaðamót
ágúst og september. Í tveimur fyrri könnunum gerði almenningur að
meðaltali ráð fyrir að verðbólga næstu tólf mánuði yrði 4,1% en
3,8% að meðaltali í síðustu könnuninni. Miðgildi þessara þriggja
kannana var 4%.11 Í síðustu könnun taldi almenningur að verðbólga
síðustu tólf mánaða væri 3,2%. Almenningur virðist því telja að verð-
bólga eigi eftir að aukast á næstunni. Könnunin var gerð áður en
verðbólga jókst í 4,8% í septemberbyrjun og má ætla að hækkunin í
september og fjölmiðlaumræða sem henni tengdist hafi aukið á verð-
bólguvæntingar.
Þessar verðbólguvæntingar virðast hins vegar heldur lægri en
spá greiningaraðila um verðbólgu á næsta ári en þeir gera ráð fyrir
að hún verði rétt tæplega 4½% að meðaltali á árinu en hins vegar
rúmlega 5% yfir árið (sjá rammagrein 3).
Allir þessir mælikvarðar á verðbólguvæntingar benda því til þess
að töluvert meiri verðbólgu sé vænst á næstu árum en getur sam-
rýmst 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
11. Þ.e. svarendur sem töldu að verðbólga yrði meiri en 4% voru jafn margir og hinir sem
töldu að verðbólga yrði minni.
1
2
3
4
5
6
2002 2003 2004 2005
Verðbólguvæntingar
%
Vikulegar tölur 17. september 2002 - 13. september 2005
Mynd VIII-7
Verðbólguálag ríkisbréfa til átta ára
Verðbólguvæntingar almennings
Verðbólguspár sérfræðinga á markaði
Verðbólguvæntingar almennings miða við verðbólgu næstu tólf mánuði
og verðbólguspár sérfræðinga miðað við tólf mánuði til ársloka
yfirstandandi árs í fyrri tveimur könnunum hvers árs og tólf mánuði til
ársloka næsta almanaksárs í seinni tveimur könnunum hvers árs.
Heimild: Seðlabanki Íslands.