Peningamál - 01.09.2005, Page 78
GJALDEYRISFORÐI SEÐLABANKA
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
3
78
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
3
kerfið). Eftir að Bretton-Woods-kerfið leið undir lok snemma á átt-
unda áratugnum og fjármagnsflutningar á milli landa urðu frjálsari
var einnig farið að líta á fjármagnshreyfingar á milli landa sem viðmið
við æskilega stærð forða og þá einkum meðal nýmarkaðsríkja. Horft
var til þess að forði gæti dugað til að mæta fjárhagsskuldbindingum
þjóðarbús, t.d. skammtímaskuldum, afborgunum langtímalána og
fjár mögnun viðskiptahalla næstu 12 mánuði. Slíkar viðmiðanir eru
einkum taldar eiga við ríki sem gætu átt á hættu að aðgangur þeirra
að erlendu lánsfé lokaðist um lengri tíma, t.d. ef lánardrottnar og
fjárfestar misstu tiltrú á viðkomandi ríkjum. Þessi hugsun spratt upp
í kjölfar alvarlegrar fjármálakreppu í nýmarkaðsríkjum á níunda og
tíunda áratug liðinnar aldar. Slík viðmið eiga síður við meðal þróaðri
ríkja með fljótandi gengi með greiðan aðgang að alþjóðlegum
fjármálamörkuðum. Þrátt fyrir ýmis sjónarmið eru eins og fyrr segir
engin einhlít viðmið um ákvörðun á stærð forða.
Tilgangur ríkja með forðahaldi
Margt hefur verið skrifað um tilgang þess að halda gjaldeyrisforða,
(sjá t.d. Archer og Halliday (1998), Nugée (2000), Williams (2003)
og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (2004)). Segja má að tvö sjónarmið
séu ríkjandi, þ.e. annars vegar peningastefnusjónarmið og hins vegar
öryggissjónarmið en telja má að þau hafi bæði legið beint og óbeint
að baki forðahaldi á Íslandi.
Í lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands er í 4. og 20. grein
fjallað um gjaldeyrisforðann.
„4.gr.
Seðlabanki Íslands skal sinna viðfangsefnum sem sam-
rýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að
varð veita gjaldeyrisvarasjóð og að stuðla að virku og
öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu og
við útlönd.“
„20. gr.
Seðlabanki Íslands varðveitir gjaldeyrisvarasjóð í samræmi
við markmið og hlutverk bankans. Bankastjórn setur
starfs reglur um varðveislu gjaldeyrisvarasjóðsins sem
banka ráð staðfestir, sbr. 28. gr.
Seðlabankanum er heimilt að taka lán til að efla
gjald eyris varasjóðinn. Honum er jafnframt heimilt að
taka þátt í samstarfi erlendra seðlabanka og alþjóðlegra
banka- eða fjármálastofnana um lánveitingar til að efla
gjald eyrisvarasjóð þátttakenda.“
Í lögunum er ekki tiltekið hvert hlutverk gjaldeyrisforðans skal
vera. Í frumvarpi því sem varð að lögum um Seðlabankann 2001
sagði í skýringum við 4. gr. að viðfangsefni flestra seðlabanka væri
að varðveita gjaldeyrisvarasjóð þjóðar sinnar en hlutverk hans væri
m.a. að tryggja fjárhagslegt öryggi þjóðarinnar út á við. Bankastjórn
Seðlabankans setur nánari reglur um varðveislu og ávöxtun
gjald eyrisforðans í bankastjórnarsamþykktum auk þess sem þær
fjalla um það hver skuli vera lágmarksstærð gjaldeyrisforðans og
gjaldmiðlaskipting hans.
Rammagrein 1
Forðahald
Seðlabanka Íslands