Peningamál - 01.09.2005, Page 88
ÁLIT SENDINEFNDAR
ALÞJÓÐAGJALDEYRISS JÓÐSINS
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
3
88
Ef birt yrði verðbólguspá sem byggist á breytilegum vöxtum yrði
mikilvægt að leggja áherslu á að Seðlabankinn væri ekki með því
að skuldbinda sig til þess að fylgja fyrirfram ákveðnum vaxtaferli.
Almenningur myndi þá skilja að Seðlabankinn yrði að breyta lík-
legum vaxtaferli til samræmis við framvindu efnahagsmála.
11. Þegar núverandi fjárfestingarhrinu lýkur kann að verða mögulegt
að bæta enn frekar umgjörð peningastefnunnar til þess að stuðla
að stöðugari verðbólgu og stöðugleika í efnahagslífi. Enda þótt
verðtrygging fasteignaveðlána geri það m.a. mikilvægt að halda
áfram að miða verðbólgumarkmiðið við vísitölu sem innifelur
fast eignaverð mætti hugleiða að taka úr vísitölunni sveiflukennda
þætti svo sem orkuverð og matvælaverð, líkt og gert hefur verið í
öðrum löndum.
Fjármálakerfi
12. Brýnt er að fylgjast náið með þeirri hættu sem kann að steðja að
fjármálastöðugleika af völdum útlánaþenslu og að grípa tímanlega
til varúðarráðstafana ef þörf krefur. Álagspróf Fjármálaeftirlitsins
stað festa að efnahagsreikningar fjármálastofnana eru traustir. Um
leið og eignaverð heldur áfram að hækka hratt verður mikil vægt
fyrir Fjármálaeftirlitið að halda áfram þróun strangari álagsprófa.
Þá er mikilvægt að Fjármálaeftirlitið hraði þróun og gerð álags-
prófa til þess að meta hættuna sem fjármálakerfinu kann að stafa
af breytingum á vöxtum og skyndilegum breytingum á gengi
krón unnar. Mikilvægi þessa eykst vegna þess að bankarnir miðla
hratt vaxandi erlendum lánum, sem að hluta til fara til lánþega
án tekna í erlendum gjaldmiðlum, og stækka hlutdeild sína á fast-
eignaveðlánamarkaði. Telji Fjármálaeftirlitið að einhverri stofnun
sé hætta búin ætti það tafarlaust að beita varúðarreglum, þ.m.t.
að hækka eiginfjárkröfu, til þess að draga hratt úr hættunni.
13. Innkoma viðskiptabankanna á fasteignaveðlánamarkaðinn er
já kvæð með tilliti til fjármálastöðugleika til langs tíma. Stærri eigna-
hlutur í fasteignaveðlánum á fyrsta veðrétti stuðlar að aukinni
fjölbreytni í eignasafni þeirra og eykur stöðugleika í tekjustreymi
að því gefnu að þessi starfsemi skili viðvarandi arði. Ef bankarnir
verða að keppa beint við Íbúðalánasjóð sem hefur forskot á fjár-
mögnunarhliðinni vegna ríkisábyrgðar er ólíklegt að þetta ger ist.
Vegna þessa er nauðsynlegt að grípa til skjótra úrbóta á Íbúða-
lánasjóði. Breytingar ætti að byggja á eftirfarandi meginatriðum:
• Bankar og sparisjóðir ættu að eiga aðgang að fjármögnun sem
gerir þeim kleift að keppa á arðbæran hátt í veitingu fast eigna-
veðlána.
• Sérþekkingu á fjármögnun sem byggst hefur upp í Íbúðalánasjóði
ætti að nýta til hins ýtrasta.
• Fjármögnun fasteignaveðlána ætti að vera þannig fyrir komið að
Ísland njóti bestu mögulegra kjara (vegna stærðarhag kvæmni)
og að innlendur skuldabréfamarkaður verði áfram virkur.