Skírnir - 01.01.1984, Blaðsíða 116
112 KRISTJÁN JÓNSSON SKÍRNIR
skjálfa af hræðslu. Þegar jeg sá þessa breiðfylkingu, hopaði jeg
frá, en foringinn fyrir þessari hersveit æpti að mjer, og sagði
með skelfilegum róm: „Ef þú snertir okkur, skal hnífurinn í
þig." Jeg varð heitur við tilræðið, og vissi ekki hvað jeg ætti að
halda. Hefði jeg átt við karlmann, veit jeg hvað jeg hefði gjört,
en hjer var jeg sem fangi í kvennasólum. Mjer varð það að orði,
að jeg spurði, livort þær væru vitlausar; þær urðu eigi skjótar til
svars; en þó sá jeg, að þeim fjellust hendur. Þær störðu á mig,
og jeg starði á þær. Það var eins og þegar þeir horfðust í augu,
Þórr og Miðgarðsormurinn. Allt í einu kom eitthvert ofboð á
eina stúlkuna. Hún hvíslaði einhverju að stallsystrum sínum; þær
litu sneypulega undan, en ljetu knífana falla. Jeg spurði hvað
þetta ætti að þýða, en þær komu engu orði upp fyrir sneypu.
Loksins herti ein upp hugann, gekk til mín, og bað mig að fyrir-
gefa. Jeg tók því líklega, en vildi þó vita, hvernig á öllu stæði.
Sumar þessar stúlkur þekktu mig; tóku þær nú að verða djarfari,
og sögðu mjer alla sögu. Varð þetta hið mesta hlátursefni.
Eptir þetta gáfu þær mjer kaffi, og nóg að drekka, og fór allt
vel á með okkur. Að því búnu bjóst jeg til ferðar og bað þær
lifa heilar. Gjörðist ekki fleira sögulegt í ferð minni.
ALHEIMSAU GAÐ
Það er í frásögur fært að einn dag snemma morguns risu bænd-
ur á Heiðmörk frá rekkju. Sáu þeir þá reyk mikinn í landnorðri
og var svælan líkust því að brenndar væru til samans þúsund
kolagiafir. Skyggði reykur þessi himin allan. Nú fóru menn
þangað sem reykurinn var og sjá að það var ákaflega stór kerl-
ingareldur er liann kom frá, var blaðra sú ferlega stór; og var
þar all illt að vera, því reykinn lagði í augun og gjörði þá
blinda er fyrir urðu; lagði svælu þessa um allt hjeraðið og lögð-
ust flestir Heiðmerkingar í augnverk og var margra ráða leitað
að afstýra þessum ófögnuði árangurslaust; leit nú svo út, að eyð-
ast myndi Heiðmörk öll.
Nú tóku höfðingjar það til bragðs að leita ráða til Páfans, en