Skírnir - 01.01.1984, Blaðsíða 119
SKÍRNIR
SOGUR OG RITGERÐIR
115
FUGLINN PHÖNIX
(Ævintýri eptir H.C. Andersen)
í Edensgarði undir skilningstrjenu liggur rósabeður, og í feg-
urstu rósinni fæðist fugl einn; flug hans er sem ljósgeislanna,
litarskraut hans yndislegt, söngur hans himinblíður.
En þegar Eva tók eplið af skilningstrénu, og þegar þau Adam
voru rekin burt úr Paradís, þá féll gneisti einn af hinu tindrandi
sverði hegningarengilsins í hreiður fuglsins og kveikti í þvf. Þá
brann fuglinn, en úr öskunni varð annar nýr, og er hann sá eini
fugl, sem til er af sinni tegund. Það er fuglinn Phönix. Sagan
segir, að hann hafist við í Arabíu og brenni sig þar sjálfan eptir
hverja öld, sem hann hefir lifað, í hreiðri sínu, en af öskunni
lifnar aptur nýr fugl, sem og er einn sinnar tegundar.
Fugl þessi sveimar ávallt í kringum oss með geislaflugi, litar-
skrauti og unarljúfum söng. Þegar móðirin situr hjá vöggu
barnsins, þá situr hann við höfðalagið, og hylur barnsandlitið
með helgiljóma. Hann flýgur undir hið lága þak, þar sem ró og
ánægja búa, og bregður friðarbjarma á hin fátæklegu búsáhöld.
En fuglinn Phönix er eigi aðeins að finna í Arabíu; hann
sveimar og í segulbjarma norðurljósanna yfir snæsljettum Lapp-
lands. Hann flögrar milli hinna gulleitu blóma sem spretta um
hinn stutta sumartíma á Grænlandi. Hann sveimar yfir hinum
málmauðugu Úralfjöllum, og yfir kolanámum hinna fjárglöggu
Englendinga; hann breiðir vængina yfir sálmabók hins þreytta
vinnumanns og siglir á lótuslaufi eptir straumi hinar helgu
Gangesár, og augu Hindúmeyjanna tindra þegar þær sjá hann.
Þekkirðu fuglinn Phönix? Paradísarfuglinn, hinn heilaga
söngsvan. Hann sat á Helíkonstindi, og snart hörpu Hómers.
Hann kenndi Bragahörpunni milli jöklanna á íslandi málið.
Eins og hrafn Óðins sat hann á öxlinni á Shakespeare, og hvísl-
aði í eyra honum liugsunum, sem voru fagrar, skelfilegar, ódauð-
legar. Hann sat á sigurhelgivögnum Dantes og Goethes yfir á
land frægðarinnar, andaði ódáinsblæ að Schiller, og sveif til him-
ins í gremjustunum Byrons.
Þekkirðu fuglinn Phönix? Hann hefir sungið fyrir þjer fögur