Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is REGÍNA LAUFDAL AÐALSTEINSDÓTTIR, LEIKSKÓLALIÐI MÆTUM Í KRÖFUGÖNGUNA OG Á 1. MAÍ HÁTÍÐARHÖLDIN – SAMSTAÐAN ER OKKAR STYRKUR! „Ég mæti vegna þess að ég vil að menntun sé metin til launa. Sjáumst í 1. maí göngunni.“ Á Íslandi getur fátækt fólk ekki leitað til læknis vegna kostnaðar. Skorið er niður þriðja árið í röð til námsmanna erlendis. Framhaldsskólar berjast í bökkum. Landspítalinn er með sjúkrastofur í bílskúrum og lækna í gámum. Áherslan er á gamla atvinnupólitík. Unga mennt- aða fólkið flykkist til útlanda því ekki er nægt fram- boð af störfum fyrir háskólamenntaða. Mikill skortur er hins vegar á fólki til að sinna láglaunastörfum. Hagkerfi auðlindanýtingar bólgnar þannig út á kostnað hagkerfis nýsköpunar og hugvits. Stærstu fyrirtækin starfa í erlendri mynt. Fá þannig betri kjör og lægri vexti. Vilja ekki vera í krónunni. Almenningur er hins vegar fastur innan hafta og verðtryggingar. Fær ekki einu sinni að skoða aðra möguleika. Á sama tíma fá útvaldir að hagnast gríðarlega. Í landinu er ríkisstjórn sem hefur lækkað skatta á þá ríkustu. Sumir fá að kaupa fyrirtæki út úr bönkum. Aðrir nýta pólitísk tengsl til að sölsa undir sig sam- eiginlegar auðlindir. Peningar renna til stjórnmála- manna til að passa að kerfinu sé ekki breytt. Á sama tíma bólgnar ríkissjóður út vegna túrista og banka. Útgerðin hefur aldrei verið ríkari. Mulið er undir ríkasta fólkið sem eykur auð sinn. Peningarnir geymdir í skattaskjólum enda krónan frekar léleg og leyndin ákjósanleg. Þar liggur líklega stór hluti hagn- aðar af nýtingu auðlinda þjóðarinnar. Stjórnmála- menn þykjast koma af fjöllum. Fara undan í flæmingi og vilja ekkert gera. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að traust á stjórnmálum sé í lágmarki. Næsta haust fær þjóðin tækifæri til að breyta. Þá verður hægt að leggja nýjar áherslur í mennta- og heilbrigðismálum. Móta nýja atvinnustefnu og greiða atkvæði um umsókn að ESB. Þá verður hægt að hækka skatta á ríkasta fólkið og hækka veiðileyfa- gjaldið. Breyta kvótakerfinu. Færa peninga frá for- réttindahópum til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Innleiða ný vinnubrögð í stjórnmálum og ljúka gerð stjórnarskrár. Vonandi verðum við haustið 2016 komin með nýja ríkisstjórn með nýtt fólk, ný vinnu- brögð og nýjar áherslur. Vorið 2016 Stærstu fyrirtækin starfa í erlendri mynt. Fá þannig betri kjör og lægri vexti. Vilja ekki vera í krónunni. Almenningur er hins vegar fastur innan hafta og verðtrygg- ingar. Með heimsku- legum upp- hrópunum sínum um vítislogana sem bíði Íslendinga er líklegra að hann hafi í hugum kúgaðra kvenna í hópi áheyrenda sinna kveikt vonarneista. Magnús Orri Schram varaþingmaður og frambjóðandi til formanns Sam- fylkingarinnar Fyrirmyndir skipta máli Víða um heim þráast menn við í fornaldar-hugsun og afturhaldi. Þetta endurspeglast til dæmis í upphlaupi bókstafstrúar-bjána í Bandaríkjunum, Stevens nokkurs Anderson baptistapredikara, sem eftir umfjöllun CNN um Ísland í síðasta mánuði taldi víst að hér væru allir meira og minna á leið til helvítis fyrir sakir yfirgengilegs hórdóms og kven- frelsisins sem plagi landið. Í þættinum sem var kveikjan að upphlaupi predikar- ans var fjallað um „óhefðbundin fjölskyldugildi“ hér á landi og hátt hlutfall barna sem fæðast utan hjónabands. Steven Anderson var tekinn tali í morgunþætti Harmageddon á X-inu í vikunni og fann þar femínisma allt til foráttu. „Biblían segir að það eigi að kenna ungum konum að vera allsgáðar, að elska menn sína og börn. Að vera auðmjúkar á heimilum sínum og hlýðnar mönnum sínum. Femínismi er því algjörlega á skjön við boðskap Biblíunnar,“ sagði hann. Þankagangur sem þessi er vitanlega sem betur fer á undanhaldi, þótt það gangi mishratt í heiminum. Með heimskulegum upphrópunum sínum um vítislogana sem bíði Íslendinga er líklegra að hann hafi í hugum kúgaðra kvenna í hópi áheyrenda sinna kveikt vonar- neista um betra líf og meðvitund um að hægt sé að ráða eigin lífi og líkama, í stað þess að láta forpokaða karlpunga ráða för. Hér á landi hefur nefnilega ýmislegt áunnist þótt enn sé einhver leið í land í fullu jafnrétti kynjanna. Sá árangur og umræða um jafnrétti kynjanna skilar sér líka með beinum hætti, líkt og endurspeglast í ákvörðun Heiðrúnar Mjallar Bachman, 21 árs au pair stúlku í Níkaragva, að kæra til lögreglu kynferðisárás sem hún nýverið varð fyrir þar í landi. Hún hefur lýst því hvernig umræða um að fórnarlömb kynferðisofbeldis varpi frá sér skömminni af glæpnum yfir á gerandann hafi orðið kveikjan að því að hún hafi ákveðið að láta glæpinn ekki yfir sig ganga. „Ég ætla ekki að segja fyrst eftir tíu ár að mér hafi verið nauðgað af manni og ekkert hafi verið gert í því. Ég ætla að segja það núna. Ég er stolt af því að vera íslensk kona og ég kalla svo sannarlega ekki allt ömmu mína. Ég ætla að nota þennan styrk núna,“ sagði Heiðrún í viðtali við Fréttablaðið í gær. Ytra mæta henni hins vegar töluverðir örðugleikar í málarekstrinum. Meintur árásarmaður, sem er þjóð- þekktur fegurðarkóngur þar í landi, hefur ekki einu sinni verið kallaður í yfirheyrslu. Á sama tíma dregur lögreglan lappirnar við rannsóknina og hún þarf að svara niðurlægjandi spurningum um pilssídd og hvort hún hafi gefið árásarmanni sínum undir fótinn. Nálgunin er forneskjuleg, en það var hún líka hér á landi fyrir ekki svo löngu. Breytingar sem hér hafa orðið eru hins vegar til marks um að hægt er að þoka hlutum til betri vegar. Á þann hátt er fordæmi Íslands mikilvægt, burtséð frá fordæmingu fordómapúka. Samfylkingarfleyið Árni Páll Árnason hefur ákveðið að kýla á það og taka slaginn um formannsembættið enn á ný. Það er á brattann að sækja fyrir Árna en flokkurinn mælist afar illa um þessar mundir auk þess sem traustmælingar sýna að almenningur ber næstminnst traust til hans af formönnum stjórnmálaflokkanna. Þá sýna kannanir að Oddný Harðar- dóttir og Helgi Hjörvar mælast með meira fylgi en Árni en þá ber að hafa þann fyrirvara að engin könnun hefur verið gerð á meðal flokksmanna, þar gæti Árni átt inni fylgi. Þó hlýtur það að teljast Árna til hróss að hann, eins og sannur skipstjóri, er tilbúinn að fylgja fleyinu á botninn. Siðferðismat í Suðurhöfum Undir bjölluglym forseta og framíköllum á Alþingi í gær krafðist stjórnarandstaðan að Bjarni Benediktsson segði af sér sem fjármálaráðherra vegna tengsla við aflandsfélag. Áhrifa- fólk innan Samfylkingar og Framsóknarflokks hefur sagt af sér auk borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins vegna sambærilegra mála. En af einhverjum ástæðum sitja ráðherrar Sjálfstæðisflokks- ins sem fastast. Sjálfstæðismenn fá greinilega skattaafslátt þegar kemur að siðferðismati en hugsanlega er það bara vel geymt í skattaskjóli. stefanrafn@frettabladid.is 2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r16 S k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð SKOÐUN 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -5 6 8 8 1 9 4 1 -5 5 4 C 1 9 4 1 -5 4 1 0 1 9 4 1 -5 2 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.