Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 28
Lífsstílsfrömuðurinn Sólveig Sig­ urðardóttir glímdi lengi við of­ fitu en hefur á tæpum fjórum árum lést um 50 kíló. Fyrir þrem­ ur árum ákvað The European Ass­ ociatoion for the Study of Obesity (easo.org), sem eru samtök skip­ uð læknum og fagfólki, að bjóða fulltrúum sjúklinga inn í samtök­ in en þau hafa verið starfandi um langt skeið. „Ég held að menn hafi allt í einu vaknað upp við það að það vantaði innlegg og rödd sjúk­ linganna sjálfra,“ segir Sólveig sem var fengin til að vera fulltrúi Íslands eftir að hafa náð góðum árangri hjá heilsuræktarstöðinni Heilsuborg. Þátttökulöndin eru 23 og eru flest með tvo fulltrúa. Enn sem komið er er Sólveig eini fulltrúi Íslands. Samtökin halda árlega ráðstefnu og er hún að fara á sína þriðju í Gautaborg í sumar, en yfirskrift hennar er virðing. Sjúklingasamtök leggja að sögn Sólveigar mikla áherslu á aukna virðingu fyrir þeim sem glíma við offitu. „Vanvirðingin birt­ ist á ýmsan veg og eru til dæmis margir sem veigra sér við að fara til læknis af ótta við fordóma og slæmt aðgengi af ýmsu tagi.“ Eigum langt í land Sólveig segir samstarfslönd­ in flest komin langt fram úr Ís­ lendingum. „Portúgalar eru þar fremstir í flokki en þar er offita skilgreind sem sjúkdómur og er Kalla Eftir auKinni virðingu Sólveig Sigurðardóttir vinnur að stofnun íslenskra sjúklingasamtaka fyrir fólk sem glímir við offitu en þau er að finna í flestum Evrópulöndum. Hún er meðlimur í EASO-samtökunum sem standa fyrir ýmiss konar rannsóknum á offitu. Sólveig segir Portúgala fremsta í flokki Evrópulanda þegar kemur að meðferð við offitu. Íslendingar eiga að hennar mati langt í land. MYND/VILHELM annast um sjúklingana á heild­ rænan hátt eins og aðra sjúklinga­ hópa. Ef fólk fer í offituaðgerðir fylgir því fimm ára prógramm og innifalið í því er að laga skinn og vöðva ef þarf. Hér er því öfugt farið og ábyrgðin mun meira á herðum sjúklinga. Sólveig segir það í raun hreinan óhugnað. Bíður Eftir fyrsta slysinu „Ég fór sjálf í stóra svuntuaðgerð eftir að ég léttist auk þess sem ég þurfti að láta laga kviðslit sem var eins og melóna að stærð. Hefði ég aðeins verið með kviðslit hefði ég fengið spítalavist og legið inni í þrjá daga. Þar sem ég þurfti líka á lýtaaðgerð að halda þurfti ég að láta gera þetta allt á einkastofu úti í bæ enda má ekki framkvæma lýtaaðgerðir á spítalanum. Ég fór því í aðgerð að morgni og var send heim að kvöldi með dren í tíu daga. Að mínu mati er þetta stór­ hættulegt og ber vott um mikla vanvirðingu í garð fólks með of­ fitu. Í raun bíð ég bara eftir fyrsta slysinu.“ Sólveig segir andleg áhrif of­ fitu ekki síðri en þau líkamlegu. „Hver öryrki er samfélaginu dýr og því ætti það að vera kapps­ mál að koma sem flestum aftur til lífsins, eins og ég orða það, en fyrir mitt leyti öðlaðist ég alger­ lega nýtt líf við að léttast.“ Sólveig lítur á offitu sem átröskunarsjúk­ dóm. „Eitt af því sem ég myndi Góð dressing setur punktinn yfir i-ið þegar kemur að góðu salati. Það vefst fyrir sumum að búa til dress- inguna fyrir hverja máltíð og því er um að gera að búa til dressingu til að eiga í ísskápnum. Góð leið er að taka glæra plastflösku með stút og teikna utan á hana uppskriftina. Þá má teikna línur sem gefa til kynna magn hvers innihaldsefnis. Neðsta línan segði þá til dæmis til um magn ólífuolíu, síðan yrði fyllt að næstu línu með balsamediki, vínediki upp að þeirri þriðju og svo sojasósu upp í topp. Síðan er lokið sett á, hrist hressilega og dressingin er klár. drEssing í plastflösKu Lagerhreinsun Byrjar í dag, föstudaginn 29.apríl Ekki missa af þessu! Laugavegi 25 Reykjavík Glerártorgi Akureyri Vorhreingerning í Ullarkistunni. Stórlækkað verð á völdum vörum. vilja að sjúklingasamtök berð­ ust fyrir væri að fá göngudeild á Landspítalann. Við erum með slíka deild fyrir þá sem svelta sig en ekki fyrir offitusjúklinga. Þeir leita bara til lækna á eigin vegum. Reykjalundur er svo aðeins fyrir þá sem ætla í magaminnkun og þar er löng bið. Það vantar eitt­ hvað þarna á milli. Sólveig vonast til að geta hrund­ ið af stað íslenskum sjúklinga­ samtökum sem allra fyrst en slík samtök eru starfandi í flest­ um Evrópulöndum. „Þetta er stór hagsmunahópur hér á landi og það er margt sem má bæta.“ fyrirmynd Sólveig er í dag fyrirmynd margra og heldur meðal annars námskeið í Heilsuborg og setur inn holl­ ar uppskriftir á Facebook­síð­ una Lífsstíll Sólveigar. „Ég fór mjög hægt í sakirnar og aðhyll­ ist hvorki boð né bönn. Ég kynnti mér hvaða matur gerði mér gott en væri bragðgóður um leið. Þegar ég fór að taka inn meira af honum gufaði hitt upp.“ Sólveig hreyfði sig upphaflega þrisvar sinnum í viku en sleppir varla úr degi í dag. „Ég líki þessu stundum við það þegar Forrest Gump losnaði við spelkurnar og fór að hlaupa. Þegar maður getur loksins farið að hreyfa sig eftir áralanga kyrr­ setu þá fylgir því svo mikil gleði að það er erfitt að hætta.“ 2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r8 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ l í F S S T í l l 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -8 C D 8 1 9 4 1 -8 B 9 C 1 9 4 1 -8 A 6 0 1 9 4 1 -8 9 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.