Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 36
- Sund og sól í Borgarfirði - Íþróttamiðstöðin Borgarnesi Íþróttamiðstöðin Kleppjárnsreykjum Íþróttamiðstöðin Varmalandi Virka daga frá kl. 06.30 – 21.00 Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.00 – 21.00 Mánudaga og miðvikudaga kl. 13.00 – 21.00 Um helgar frá kl. 09.00 – 18.00 Miðvikudaga og föstudaga kl. 13.00 – 18.00 Fimmtudaga og föstudaga kl. 13.00 – 18.00 Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 – 18.00 Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 – 18.00 Lokað mánudaga Lokað þriðjudaga Velkomin í sund! Sund og sól í Borgarbyggð Sundlaugin í Borgarnesi Sími 433 7140 Opið virka daga kl. 6.00 – 22.00 Laugardaga og sunnudaga kl. 9.00 – 18.00 Sundlaugin Kleppjárnsreykjum Sími 435 1140 Opið alla daga kl. 13.00 – 18.00 Opið til 14. ágúst Sundlaugin á Varmalandi Sími 437 1401 Opið alla daga kl. 9.00 – 18.00 Opið til 14. ágúst SK ES SU HO RN 2 01 5 komdu vestur kynningarblað 29. apríl 20168 Geitabúið á Háafelli stendur í Hvítársíðu sem er við rætur Síðu- fjalls norðan Hvítár. Hjónin Jó- hanna Bergmann Þorvaldsdótt- ir og Þorbjörn Oddsson hafa búið á Háafelli í Hvítársíðu frá árinu 1989. Jóhanna er fædd þar og uppalin. Jóhanna og Þorbjörn voru með hefðbundið blandað bú, kýr og kindur, fram til ársins 2000 en þá sneru þau sér alfarið að geita- rækt. Jóhanna hefur aðallega unnið við geitabúskapinn og fékk fyrstu geiturnar árið 1989 en eftir 1999 hefur hún unnið markvisst að því að rækta upp landnáms- geitastofninn. Á Háafelli er unnið að til- raunum varðandi nýtingu geita- afurða, geiturnar eru mjólkað- ar og kembdar og svo er kjöt selt af þeim dýrum sem slátrað er á haustin. Ferðafólk og aðrir sem leið eiga um Hvítársíðuna geta komið við á Háafelli og fengið að kynnast geitunum af eigin raun gegn gjaldi. Þar er einnig til sölu kjöt, pylsur, ostar og geitamjólkur- ís ásamt snyrtivörum sem unnar eru m.a. úr rósum og öðrum jurt- um úr garðinum. Geitabúið Háafell í Hvítársíðu Jóhanna B. Þorvaldsdóttir geitabóndi með einn af kiðlingum sínum. opnunartími á Háafelli: 1. júní – 31. ágúst: kl. 13-18 Aðra daga allt árið er opið eftir samkomulagi. Hafið samband: s: 845 2331 eða haafell@gmail.com Hilmar segir að aðdraganda starf­ seminnar megi rekja til þess að hann tók myndir af eldri vitanum yst á Syðriflös á Akranesi og sendi Morgunblaðinu, en þar standa tveir vitar í námunda hvor við annan. „Hann var orðinn afskaplega lúinn að innan sem utan og kallaði ég eftir því að yfirvöld endurbyggðu hann áður en hann legðist á hliðina. Það varð úr og var farið í gagnger­ ar endurbætur. Vitinn varð síðan valinn þriðji fallegasti viti í heimi á erlendri vefsíðu svo þetta borgaði sig,“ segir Hilmar kátur. Eldri vitinn er að hans sögn aðal­ lega augnayndi en starfsemin fer öll fram í þeim yngri sem er í mun betra standi. Hann var opnaður al­ menningi 24. mars 2012 og hefur verið vel sóttur síðan. Aðspurður segir Hilmar það hafa komið þann­ ig til að Akraneskaupstaður óskaði eftir hugmyndum til að auka ferða­ mannastraum til bæjarins en hann dróst mikið saman eftir að Akra­ borgin hætti að ganga. „Ég lagði til að vitinn yrði notaður fyrir ýmsa listviðburði og uppákomur og var það samþykkt.“ Hilmar segir fljótlega hafa verið bryddað upp á því að vera með myndlistarsýningar og tón­ leika í vitanum en hljómburðurinn í honum þykir merkilegur. „Lárus Sighvatsson, skólastjóri Tónlistar­ skólans á Akranesi, segir hann vera svipaðan og í Péturskirkjunni í Róm,“ segir Hilmar. „Það kemur skemmtilegur eftirhljómur og hafa þó nokkrir tónlistamenn tekið upp efni í vitanum. Þá eru þeir báðir vinsælt myndefni og gerði tónlist­ armaðurinn Ólafur Arnalds meðal annars myndband við lagið Old Skin í gamla vitanum,“ upplýsir Hilmar. Sem stendur er sýning á ljós­ myndum Jóns Hilmarssonar, skóla­ stjóra í Hvalfjarðarsveit, í vitanum auk þess sem þar má finna myndir frá nemendum elstu deilda leikskól­ anna á Akranesi. „Við höfum verið með leikskólasýningar síðastlið­ in þrjú ár og hengjum myndirnar upp í augnhæð barnanna,“ útskýr­ ir Hilmar. Yfir vetrartímann er vitinn opinn eftir samkomulagi. „Við höfum verið með fasta opnunar­ mikið líf í Akranesvita  Í Akranesvita er blómleg starfsemi sem fer vaxandi. Þar eru haldnir tónleikar, myndlistarsýningar og ýmis mannamót. Hilmar Sigvaldason fékk þá hugmynd að hleypa lífi í vitann til að auka ferðamannastraum til Akraness og hefur hann á 4 árum trekkt að um 30 þúsund gesti. vesturland Hljómburðurinn í vitanum þykir merkilegur. Þangað koma tónlistarmenn, söngvarar og kórar til að halda tónleika og hljóðrita. Nýlega var haldin messa í vitanum og er hún sennilega fyrsta messan sem haldin hefur verið í vita á Íslandi. mYNdIr/JÓHANN WAAGe vitinn verður að sögn Hilmars opinn alla daga í sumar milli kl. 10 og 16. mYNd/BJÖrN LÚÐvÍkssoN tíma í apríl en í sumar verður opið alla daga frá 1. júní út ágúst og verður ýmislegt um að vera. Við fengum meðal annars styrk til að vera með litla tónleika á hverjum virkjum degi og munu nemendur úr Tónlistarskólanum á Akranesi hafa umsjón með þeim. Þá verður Sigfríður Lárusdótt­ ir með mynd listar sýningu frá 20. maí til 20. júní. Um mánaðamót­ in júní/júlí tekur myndlistarkonan Jónína Guðnadóttir svo við og verð­ ur með sýningu út ágúst. Eins lang­ ar mig að vera með sérstaka Jóns­ messuuppákomu laugardaginn 25. júní en ég hef verið að reyna að koma þeirri hugmynd á framfæri að haldnar séu uppákomur af ein­ hverju tagi í öllum vitum lands­ ins laugardaginn í kringum Jóns­ messu,“ segir Hilmar og býður alla velkomna í vitann. Hilmar heldur úti Facebook­síðu undir nafninu Akranesviti þar sem hann setur inn myndir af viðburð­ um og gestum. „Þá er ég með tvo lagalista á YouTube undir Akranes­ viti – playlist þar sem hægt er að finna fullt af tónlistarmyndböndum sem tekin hafa verið upp í vitanum eða myndskeiðum þar sem vitarn­ ir koma við sögu.“ 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 4 1 -4 C A 8 1 9 4 1 -4 B 6 C 1 9 4 1 -4 A 3 0 1 9 4 1 -4 8 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.