Skagfirðingabók - 01.01.1969, Blaðsíða 15
SVEINN ÞORVALDSSON SKÁKMABUR
jafntefli) og bar sigurorð af Stefáni Ólafssyni fyrrum skákmeistara,
er varð aðeins hálfum vinningi fyrir ofan hann á mótinu.
Um taflmót þetta var ritað í blað skáksambandsins og frammistaða
Sveins sögð „glæsileg, þegar tillit er tekið til þess, að hann er aðeins
17 ára að aldri og svo að segja nýbyrjandi. Mætti ætla eftir því sem
skákstyrkur hans er mikill nú þegar, að við ættum hér skákmeistara-
efni, ef hann þá fær tíma og tækifæri til að þroska og æfa skákgáfu
sína og honum gefst kostur á að fá góðan skóla". — í blaðinu er
jafnframt prentuð skák Sveins og Stefáns Ólafssonar.
Frammistaða Sveins á skákþinginu vakti að vonum mikla ánægju
heima fyrir. Félagi hans og stjórnarmaður í taflfélaginu, Kristján C.
Magnússon, beitti sér fyrir því, meðan Sveinn var enn fyrir norðan,
að skákunnendur á Sauðárkróki skytu saman í heiðursgjöf handa
honum, og var Sveini fært vandað vasaúr í góðvinafagnaði heim-
komnum.
Starfsemi taflfélagsins á Sauðárkróki hélzt í horfinu næstu tvö
missirin eða svo. í janúar 1928 voru á fundi afhent verðlaun eftir
kappmót innanfélags, nýafstaðið. Teflt hafði verið í þremur flokkum,
og varð Sveinn Þorvaldsson á ný efstur í I. flokki. Hlaut hann að
sigurlaunum til eignar „vandað taflborð og menn". Sá gripur er enn-
þá til: mennirnir renndir úr beini á stórri stétt, mjög fallegir og
skemmtilegir í notkun, en taflborðið sjálft þannig útbúið að leggja
má það saman og gera úr kassa nokkurs konar og geyma þar í
mennina. Á aðra hlið kassans er letrað með gylltum stöfum: I. fl.
verðlaun og síðan nafn félagsins.
Frá og með árinu 1928 dofnaði mjög yfir taflfélaginu, og stóð svo
fram til 1935. Þó hittust félagarnir við og við til taflæfinga eða
kappskáka, en ekki með sama fyrirkomulagi og verið hafði, heldur
tefldu flokkar sín í milli. Símskákir voru þreyttar við skákmenn
annars staðar á Norðurlandi, einnig innanbæjar. Símskákir voru á
þessum árum vinsælar og allalgengar. Þær voru háðar eftir almenn-
an þjónustutíma landsímans og stóðu fram á nætur. Stundum flugu
vísur á báða bóga, tíðast í skopi eða ertni svo sem til bragðbætis,
um leið og leikirnir voru símsendir.
Að sjálfsögðu hefur Sveinn Þorvaldsson hlotið töluverða skák-
13