Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 52
SKAGFIRBINGABÓK
Yfir dyrum héngu 2 klukkur ofar litlum giugga, en 2 fjögurra
rúðna gluggar voru hvor sínum megin altaris á kórgafli. Þá var og,
sem venja var, gluggi á þekju yfir prédikunarstólnum. Var stóll-
inn rauðmálaður með gráum liljum. Utsöguð milligerð upp í bita.
3 bekkir hvoru megin í framkirkju, og töldust þar sæti fyrir 18
manns. Krókbekkir í kór munu hafa rúmað 12. Altaristafla,* mál-
uð á tréspjöld, mun forn. Skarsúð var í kirkjunni; alþiljað og fjala-
gólf og eigi steint, utan milligerð, stóll og altari.16
Við manntal 1816 voru íbúar Abæjarsóknar 36. Verður að ætla,
að álíka margir væri þar heimilisfastir um þær mundir, er kirkjan
var reist, enda ekki vitað til sveiflu á fólkstali á þessum árum, en
hinir sömu 4 bæir byggðir, Ábær og Nýibær, Skatastaðir og Merki-
gil. Miðhús og Tinnársel áttu þó eftir að byggjast um sinn.18
Um 1920 var svo komið, að rauðviðarkirkjan frá 1843 var talin
það hrörleg, að ekki tæki viðgerð. Er rætt var um nýbygging, mun
ekki hafa staðið á úrtölum utanaðkomandi manna og jafnvel þeirra,
er nokkur áhrif gátu haft í því efni. Voru nú aðeins 3 heimili í
sókninni og gefið mál, að kirkjusmíði yrði þungbær í slíku fámenni.
Imprað var á því, að nær væri, að unnið yrði að brúarsmíði á
Jökulsá, svo að sameining við Goðdalasókn reyndist viðhlítanlegri.
En illt var til þess að hugsa, að söfnuðurinn féllist á aflagning
kirkjunnar aðeins rúmum 4 áratugum eftir að sigurinn vannst í
kirkjumálinu, er svo langa baráttusögu átti. Tryggð, metnaður og
bjartsýni réðu úrslitum. Hafizt var handa um reist nýrrar kirkju á
staðnum „millum á'' í Eystrumdölum. Olafur Kristjánsson frá Ábæ
tók verkið að sér, og var kirkjan fyrsta steinsteypuhúsið, sem hann
byggði.10 Að stærð er kirkjan áþekk hinni fyrri, en stíl að ýmsu
breytt að hætti nýs tíma. Gluggar eru þó ekki á veggjum, en yfir
dyrum, eins og var, en í stað tveggja kórglugga á gafli er einn
gluggi stór fyrir miðju. Mega það kallast mestu sérkenni kirkjunn-
ar. Gamla altaristaflan er vikin til hliðar fyrir hinni nýju, sem er
opin útsýn upp í brekkurnar. Fáar kirkjur munu boða fegurð sköp-
unarverksins á svo hreinan hátt, látlausan og mildan. Hugurinn
* Enn varðveitt í Árbæjarkirkju.
50