Skagfirðingabók - 01.01.1973, Blaðsíða 164
SKAGFIRÐINGABÓK
Hraun, hafi sér fundizt þeir ræða um hvarf bátanna með fremur
ógætilegum orðum, eitthvað á þá leið, að ekki væri von að vel
færi, þegar einskis hófs væri gætt um hleðslu. Fannst henni helzt
mega ráða af orðum þeirra, að skipið mundi hafa sokkið vegna
ofhleðslu.
Það fólk, sem hér hefir verið nefnt á bæjunum Hrauni, Þang-
skála og Kelduvík var allt náin skyldmenni og venslafólk nema
Jónatan.
Steinunn kona Asmunaar í Asbúðum var þar ein með börnum
sínum, sumum stálpuðum. Bárust henni aldrei neinar fréttir af
þessu fyrr en Asmundur kom heim.
Um kvöldið eftir komu þeirra Jónatans og Kristmundar, lagði
móðir mín af stað gangandi inn á bæi, ef hún mætti verða ein-
hvers vísari um þá á Sæfara. Mikil leysing var, og þegar hún kom
að Hörtná, skammt utan við Neðra-Nes, var hún illfær gangandi
manneskju. Er hún kom í Neðra-Nes, sagði Gísli Jóhannesson,
sem þá bjó þar, að hann teldi sig hafa séð Sæfara halda rakleitt
inn Skagafjörð þá um daginn. Bauðst Gísli til að fara inn að
Mallandi og Ketu til að grennslast nánar um þetta. Þegar hann
kom inn á bæina, var Sæfari kominn upp undir Ketu, og var verið
að skipa hákarlinum þar á land. Hélt hann tafarlaust til baka með
fréttirnar. Eftir komu Gísla sneri móðir mín við heim á leið. Kom
hún við í Kelduvík og á Þangskála og sagði gleðitíðindin, en
mikil! kvíði hafði sezt að hjá fólkinu, sem eðlilegt var.
Af Sveini afa mínum og Jóni á Þangskála er það að segja, að
þegar þeir komu fram sáu þeir Sæfara hvergi. Fóru þeir þá að
skyggnast um, unz þeir sáu hann inn og austur í Firði. Þótrust
þeir þá vita, að eitthvað hefði komið fyrir og héldu í átt á eftir
Sæfara, þar til þeir náðu honum. Fylgdust þeir með Sæfara upp
undir Ketu og hjálpuðu til við að skipa þar upp hákarlinum.
Þegar lokið var uppskipun á hákarlinum, héldu Sæfaramenn heim
með skipið fullt af lifur, og var lent í Hraunsvör um fótaferðar-
tíma á sumardagsmorguninn fyrsta. Aflast höfðu 84 hákarlar í
róðrinum.
Eins og cð h'kum lætur, voru það örþreyttir menn, rem komu
162