Skagfirðingabók - 01.01.1996, Page 48
SKAGFIRÐINGABÓK
2 Þessi sögn Páls Eggerts er tekin upp óbreytt í ljósmæðra-
tali.13
3 í Blöndalsœttinni (bls. 282) er tilbrigði við þetta sama stef,
Ólafur faðir Guðrúnar sagður Sigurðsson, kallaður klein-
smiður (þ.e. járnsmiður) á Reykjum og því bætt við að hann
hafi verið bróðir „Jóns bónda á Urðum í Svarfaðardal".14
4 Guðrún er nefnd í Borgfirzkum æviskrám (II, bls. 242) en for-
eldra hennar er þar að engu getið.
5 í Lögréttumannatali (bls. 303) segir að Ólafur hafi verið Jóns-
son, járnsmiður á Reykjum á Reykjaströnd.
6 í Svarfdcelingum (II, bls. 381) er Ólafur einnig sagður Jóns-
son en talinn hafa verið bóndi og smiður á höfuðbólinu Geld-
ingaholti í Glaumbæjarsókn.
Engin þessara heimilda getur um móður Guðrúnar. Ólafur hét
faðir hennar og var einhvers konar smiður einhvers staðar, það
eitt verður ráðið af lestri þessara rita. Hér kann því að virðast
sem í óefni sé komið, margir feður tilgreindir og móðir ókunn.
Sjöunda og síðasta prentaða heimildin sem hér verður tilfærð
greiðir úr bendunni:
7 í nýjasta bindi Skagfirzkra ceviskrda 1850—1890 (VI, bls. 45)
segir Guðmundur Sigurður Jóhannsson að Ólafur hafi verið
bóndi í Kálfárdal f Gönguskörðum, kvæntur Þorgerði Orms-
dóttur úr Húnavatnssýslu.
Hér er þá komið nafn á móður Guðrúnar og því slegið föstu að
faðir hennar hafi verið Jónsson, en hvernig stendur þá á því að
13 LjósmceÖur á íslandi 1, bls. 211.
14 Þetta er tekið nærri orðrétt upp úr þáttum þeirra séra Jóhannesar Jónssonar
í Grímsey og Engilberts Jónssonar á Lundi í Lundarreykjadal í Prestaæfúm
Sighvats Grímssonar Borgfirðings; sjá bindi VI, bls. 75 (Lbs 2362, 4to) og
bindi XV, 2, bls. 1644 (Lbs 2372, 4to). Páll Eggert hefur sína sögn vafa-
laust einnig eftir Sighvati.
46