Skagfirðingabók - 01.01.1996, Síða 181
TRÉKIRKJUTÍMI HINN SÍÐARI f GOÐDÖLUM
dalajarðar. Sfðan hin næsta kynslóð. Hefur búskapur verið stór
í sniðum á jörðinni, þar sem hver staðarpresturinn af öðrum
hrökklaðist burt, skuldugur, berklaveikur og jafnvel öreigi fyrir
og um aldamótin. Það voru, sem fyrr getur, síra Hálfdan Guð-
jónsson, síðar vígslubiskup hins forna Hólastiftis, síra Vilhjálm-
ur Briem, síðar á Staðarstað og svo lengi bankaritari í Reykja-
vík, og síra Sveinn Guðmundsson, ávallt kenndur við Arnes í
Víkursveit, hina auðsælu hlunnindajörð í fjölmennri sókn mikils
síldarútvegs.
Prestar 90 ára kirkjuhúss, á grunninum suður og niður af
garðinum, hafa setið á Mælifelli; síra Sigfús Jónsson frá vígslu
kirkjunnar og til 1918, er hann varð kaupfélagsstjóri á Sauðár-
króki og um hríð alþingismaður Skagfirðinga, þá síra Tryggvi
Hjörleifsson Kvaran til 1938, síra Lárus Arnórsson frá Mikla-
bæ í þrjú ár, unz síra Halldór Kolbeins kom að Mælifelli 1941.
Hann fór að Ofanleiti í Vestmannaeyjum 1945, og gegndi þá
um eins árs sakir síra Gunnar Gíslason í Glaumbæ sóknunum
frammi í Lýtingsstaðahreppi, en ári síðar vígðist síra Bjartmar
Kristjánsson að Mælifelli og þjónaði brauðinu í 22 ár, síðast
prófastur Eyfirðinga, en í fjögur ár milli hans og undirritaðs
þjónaði dóttursonur síra Sigfúsar Jónssonar Goðdölum frá Mikla-
bæ, síra Sigfús Jón Arnason, nú á Hofi í Vopnafirði. Frá 1983
hefur núverandi Mælifellsprestur þjónað Goðdalaprestakallinu
gamla, síra Ólafur Þ. Hallgrímsson.
Minningarmörk er fá að telja nema frá næstliðnum árum, í
stórum og vel hirtum kirkjugarðinum, sem enn hefur verið
færður út og tekur nú austur fyrir hið aðbætta og fegraða kirkju-
hús, sem áður var endurvígt hinn 6. september 1959, eftir
plötulagningu yfir panelþiljur og hvelfingu, en þá var slík við-
leitni til kirkjubóta siður, þótt nú sé bönnuð hver breyting á
kirkjuhúsi, sem reist hefur verið fyrir 1918.
I Goðdalagarði er legsteinn, sem ástæða er til að geta sér-
staklega. Árið 1976 sendi Kvæðamannafélagið Iðunn stein á
leiði Símonar Dalaskálds, sem hér var leiddur á stórhríðardag á
179