Jökull


Jökull - 01.12.1980, Blaðsíða 91

Jökull - 01.12.1980, Blaðsíða 91
þyngdist færið er komið var austur fyrir Austurbjörg í Esjufjöllum, svo að af og til þurfti að hafa alla þrjá bílana í drætti sökum snjódýptar, sem var 30—40 cm. Vélsleðamenn húsvitjuðu í Esjufjöll uin leið og lestin fór þar hjá. Var þar allt í góðu lagi. Fljótlega er komið var upp á jökulinn, dreif yfir þoku og hélst hún til um kl. 2 um nóttina, en þá létti og sást til fjalla nokkurn tíma. Um kl. 9 að morgni, er við vorum komin hátt í vesturhlíðar Breiðu- bungu, opnaðist 3 metra sprunga á milli tveggja dráttarbíla,, Jaka“ Landsvirkjunar og ,,Muskeg“ Orkustofnunar. Voru nú bílarnir leystir sundur og snjóþekjan yfir sprungunni styrkt með plönkum, eftir að einn félagi í FI. S. S. R. hafði sigið í hana og kannað, hvar þekjan væri þykkust. Vélsleðamenn fóru á undan til að leggja slóð. Auðveldaði það dráttarbíium ferðina, þvi að þoku dreif yfir af og til er á leið morguninn, og er komið var fram undir hádegi var komin þétt þoka og skyggni næstum ekkert. Um kl 19 rofaði lítillega til suðurs og héldum við okkur þá vera norður af Hoffellsjökli og komin full sunnarlega mið- að við æskilega stefnu. Reyndum við að stað- setja okkur eftir fjallatindum, sem við sáum og stóð það á endum að aftur lokaðist útsýnið. Þegar klukkan var nálægt 21 á föstudags- kvöld, eftir um 24 stunda ferð á jökli, til- Við jaðar Breiðamerkurjökuls. A fullri ferð yfir snjóbreiðuna. kynntu sleöamenn að komið væri að hlíöum Goðahnúks. Þar var áð og slegið upp tjöldum, mikiö boröað og gengið til náða um miðnætti eftir um 40 tíma ferð frá Reykjavík. Að vísu höfðu flestir fengið sér smádúr í skálanum eða bílunum á leiðinni upp jökulinn, en ekki var það teljandi hvíld, þar eð ekki var um slétta vegi ekið. Að morgni laugardags var enn svarta þoka. Eftir róleg morgunverk var farið á sleðum á ,,hnúkinn“ og hugað að skálastæði. Reyndum við að kanna skálastæði með járnstöng. Þótt- umst við finna fast undir rúmlega eins metra snjólagi. Var nú tekið til óspilltra mála og grafin 6 x 6 m gryfja. Er grafið hafði verið um það bil 1 metra niður, kom í ljós klakalag og þar fyrir neðan reyndist a. m. k. 2 m snjór. Ekki leist okkur á að halda áfram, en ákváðum að bíða betra skyggnis og reyna þá að finna snjóléttari stað. Var nú farið að huga að grjóti í undirstöður fyrir húsið og farið á hnúk sem merktur er á korti 1260 m hár og var þar nægilegt grjót í sökklana. Hlaut hnúkurinn síðan nafnið „Sökkull“. Meðan verið var í þessari athugun, batnaði skyggni nokkuð. Kom þá i ljós, að hnúkar þeir sem við vorum að bjástra á milli, eru á rana milli fyrirheitnu hnúkanna og Goðaborgar, um 1 km sunnan JÖKULL 30. ÁR 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.