Þjóðmál - 01.09.2013, Blaðsíða 48
Þjóðmál haust 2013 47
John Fitzgerald Kennedy hafði verið kos
inn 35 . forseti Bandaríkja NorðurAmeríku
í nóvember 1960, aðeins 43 ára að aldri .
Leiðtogi allra frjálsra þjóða
Upphaf kvöldfréttatímans var svohljóðandi: „Kennedy Bandaríkja for
seti er látinn,“ var lesið í upphafi fyrri kvöld
fréttatímans .5 Síðan var atburðarásin rakin .
„Eitt skot hitti forsetann í hægra gagn augað
og fór kúlan beint gegnum höfuðið . . .
Þegar kúlan hitti forsetann hné hann fram
yfir sig og lagðist höfuð hans í kjöltu konu
hans . . . Fregnir berast hvaðanæva úr Evrópu
um að menn séu harmi lostnir vegna fráfalls
Kennedys . . . Fánar hinna 111 aðildarríkja
fyrir utan höll Sameinuðu þjóðanna voru
dregnir í hálfa stöng .“
Það var Jón Múli Árnason útvarpsþulur
sem las fréttirnar þetta kvöld . „Þetta var
dálítið ónotalega sett upp frétt fyrir mann
að lesa,“ sagði hann tuttugu árum síðar . „Já,
þetta var nístandi frásögn .“6
Í síðari kvöldfréttum, kl . 22:00, minntist
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hins
látna þjóðhöfðingja . „Mér varð vissulega
orða vant þegar ég heyrði hina hryllilegu
og hörmulegu fregn um morð Kennedys
Bandaríkjaforseta, glæsimennis í blóma
Skömmu fyrir skotárásina í Dallas í Texas 22 . nóvember 1963 . John F . Kennedy, forseti Bandaríkjanna, og
Jacqueline Kennedy . Framan við þau eru John Connally ríkisstjóri og Nellie Connally .
Victor Hugo King, Library of Congress