Þjóðmál - 01.09.2013, Blaðsíða 40
Þjóðmál haust 2013 39
Bandaríkjanna hefði eflaust sam þykkt sömu
fargjöld til handa öðrum flug félögum sem
notað hefðu hægfara flugvélar . Þetta var því
einfalt sanngirnismál að fá lágu fargjöldin
samþykkt . Það er þess vegna furðulegt að
Loftleiðamenn skyldu þurfa að búa við
það árum saman að því væri haldið blákalt
fram, meðal annars af löndum þeirra, að
þeir væru á einhverjum sér samningum við
Bandaríkjamenn í skjóli varnar liðsins á
Miðnesheiði .
Ánýársdag 1953 voru hin nýju og lágu fargjöld Loftleiða á flugleiðinni yfir
Atlants haf tilkynnt . Dálítil auglýsingaher
ferð fylgdi í kjölfarið . En það tók tímann
sinn fyrir ungt og fjárvana flugfélag að
komast inn á þéttsetinn markaðinn vestra .
Al menn ingur var ekkert að hlaupa upp
til handa og fóta þó að óþekkt flugfélag
tæki einn dag upp á því að auglýsa af
litlum mætti: WE ARE SLOWER BUT
WE ARE LOWER! Árið 1953 voru það
einungis um 5 þúsund manns sem völdu
Í tilefni af því að 65 ár voru frá því að áætlunarflug milli Íslands og Bandaríkjanna hófst var flugáhöfn í flugi
Icelandair til New York 25 . ágúst 2013 skipuð afkomendum og fjölskyldumeðlimum þeirra sem flugu til
borgarinnar í fyrsta fluginu . Flugstjóri var Geirþrúður Alfreðsdóttir, dóttir Alfreðs Elíassonar flugstjóra og síðar
forstjóra, flugmaður var Jóhann Axel Thorarensen, barnabarn Axels Thorarensen siglingafræðings, og flugfreyjur
voru: Katrín Guðný Alfreðsdóttir, dóttir Alfreðs Elíassonar, Gunnhildur Mekkinósson, bróðurdóttir Fríðu
Mekkinósdóttur flugfreyju, Ásdís Sverrisdóttir, barnabarn Sigurðar Magnússonar blaðafulltrúa Loftleiða og
farþega í fyrstu ferðinni, Halldóra Finnbjörnsdóttir, dóttir Finnbjörns Þorvaldssonar, skrifstofustjóra Loftleiða,
og Stefanía Ástrós Benónýsdóttir, barnabarn Alfreðs Elíassonar .