Konan og nútíminn - 01.04.1936, Qupperneq 9
[Konan og nútfminnj
Þýzka konan í klóm fasismans.
Eftir Dýrleifu Árnadóttur.
í bók sinni: „Þeir tóku dætur vorar“, hefir
þýzka skáldkonan, Hermina zur Miihlen*), lýst á
átakanlegan hátt hversu ginkeyptar þýzku konurn-
ar — einkum yngri kynslóðin — var fyrir blekk-
ingum fasismans og nokkuð af þeirri niðurlægingu,
andlegri og líkamlegri örbirgð og réttleysi, er þær
hlutu við valdarán hans.
Það agn, sem Hitler einkum setti á öngulinn,
voru loforðin um að tryggja hvem einustu stúlku
eigið heimili, frelsa hana frá tilbreytingarleysi á-
kvæðisvinnunnar, gera hana að húsfreyju á sínu
heimili og sérhvern heimilisföður megnugan þess
að tryggja fjölskyldu sinni áhyggjulaust og ham-
ingjusamt heimilislíf.
Með slíkum hrotta-blekkingum tókst fasistunum
að leiða í lög að allar giftar konur yrðu reknar úr
framleiðslunni. Hátt á aðra miljón kvenna tapaði
þannig atvinnu sinni, karlmenn voru teknir í
þeirra stað fyrir þau laun, sem konurnar höfðu áð-
ur haft. Þannig lækkuðu ekki aðeins laun karl-
mannanna, heldur skapaðist með þessu möguleiki
til að lækka laun þeirra kvenna, sem ennþá höfðu
atvinnu og hafa þau lækkað hlutfallslega að sama
skapi. Þessi liður einn saman hefir fært fasistunum
miljónir marka árlega til hergagnaframleiðslunn-
ar. Við það, að konur töpuðu atvinnu sinni, misstu
þær einnig réttindin til atvinnuleysisstyrkja og
annara þeirra hlunninda, sem vinnandi stéttir
Þýzkalands höfðu aflað sér með áratuga langri bar-
áttu og sem fasistunum hefir þrátt fyrir allt ekki
tekist fyllilega að eyðileggja. Atvinnuleysi og neyð
giftra og ógiftra kvenna hefir því vaxið geypilega
þessi þrjú árin, sem Hitler hefir setið að völdum
auk þess sem almennt ástand; dýrtíðin, matvæla-
skorturinn, almenn launalækkun karlmannanna o.
s. frv., kemur ekki síður hart niður á konunum.
í Þýzkalandi hefir konan nú ekki lengur rétt til
að gegna ábyrgðar og trúnaðarstöðum, hvorki á
stjórnmálasviðinu eða á sviði vísinda, konur geta
ekki orðið læknar og aðgangur að kennarastöðum
*) Hermina zur Miihlen er þýzk skáldkona, só-
síalisti, sem hefir skrifað fjölda bóka; ein bók
hennar: „Einu sinni var...er þýdd á íslónzkú.
er mjög takmarkaður fyrir þær. Háskólarnir eru
að miklu leyti lokaðir fyrir konum nú orðið, og
gildir það með konur jafnt og karlmenn, að meira
er farið eftir afrekum þeirra í fasistiskum félags-
skap, heldur en eftir menntun og gáfum. Öil pólit-
ísk réttindi, sem konan naut fyrir þremur árum,
eru nú smátt og smátt af henni tekin, hin þjóðfé-
lagslega afstaða þýzku konunnar er í dag hin
sama og á miðöldum.
Það hlutverk, sem þýzki fasisminn ætlar kon-
unni, er að vera einskonar barnavél — að unga
út ófrjálsum launaþrælum og hermönnum í fall-
byssufóður. Hann reynir að binda fyrir augu henni,
sparkar henni niður í ómenningu og vesaldóm, til
þess að hagnýta hana eins og skepnu. í Þýzka-
landi er því í raun og veru ekki lengur litið á kon-
una, sem mannlega veru — lægri veru en karl-
manninn, eins og í öðrum auðvaldslöndum — held-
ur sem verkfæri, skynlausa skepnu. Fasisminn
„spekulerar“ í tilfinningum hennar gagnvart heim-
ili sínu og börnum, til þess að svívirða hana og
hæða. Konan í þriðja ríkinu, einkum verkakonan
og millistéttarkonan, er réttlaus, heimilislaus, fyr-
ir sonum hennar liggja skotgrafirnar, en gatan fyr-
ir dætrunum.
Gjöri konan minnstu tilraun til þess að mótmæla
eða losna undan þessu smánarlega eymdarlífi,
bíður hennar fangelsi eða fangabúðirnar . — Af
þeim 150.000 andfasistum, sem setið höfðu í fang-
elsum og fangabúðum, fram til áramóta 1935,
frá valdatöku Hitlers, eru konur hundruðum sam-
an. Konurnar hafa verið kvaldar og pyndaðar,
hæddar og hrjáðar á hinn hryllilegasta hátt.
1 janúarmánuði 1935 voru konur í Þýzkalandi
dæmdar í samtals 81.5 ára tugthúsvist, og 60.5 ára
fangelsi, vegna andstöðu gegn fasismanum. Síð-
astliðinn nóvembermánuð voru 17 konur dæmdar
í samtals 76 ára og 7 mánaða tugthús.
í fangabúðum sitja auk þess fjölmargar kohur,
sem ekkert hafa til saka unnið, sem gísl fyrir
menn sína, sem annað hvort hafa flúið úr Þýzka-
landi eða dyljast þar. Eru konurnar kvaldar þarna
bæði til þess að fá mennina til að gefa sig fram
9