Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 51

Náttúrufræðingurinn - 2015, Side 51
143 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Stofnbreytingar eftir vörpum eða landshlutum Ætla mætti að þáttum sem stjórna fjölda hreiðra á hverjum stað svipaði meira saman í vörpum sem stutt er á milli en í þeim sem lengra er á milli. Sé stofnstærð í beinu sambandi við umhverfisbreytingar á stórum svæðum (s.s. loftslagsbreytingar eða veðurfar) má vænta þess að stofnsveiflur séu samstilltar (breytist í takt hver við aðra), þ.e. að breytingar milli ára fylgist að á flestöllum talningarstöðum. Ef svo er ekki má ætla að staðbundnir þættir hafi áhrif á fjölda hreiðra, þ.e. aðrir þættir en veðurfar. Því var kannað hvort fjöldi hreiðra breyttist í takt í þeim 16 æðarvörpum þar sem talið hafði verið í 30 ár eða lengur, 1977–2007.5 Hvert æðarvarp var parað með hinum 15 og skoðað hvort fylgni væri í fjölda hreiðra milli þeirra allra með hliðsjón af fjarlægðinni á milli þeirra (reiknað var aðhvarf milli fjölda hreiðra í tveimur vörpum á móti vegalengd á milli sömu varpa). Úr urðu 120 fylgnistuðlar sem voru notaðir til að meta hversu samstíga æðar- vörpin voru.32 Einungis 32 af 120 fylgnistuðlum (27%) voru marktækir sem bendir til að stofn- sveiflurnar sé ekki samstilltar milli æðarvarpanna. Því var ályktað að fjöldi æðarhreiðra á Íslandi 1977– 2007 hefði ekki verið samstíga yfir landið milli ára og vörpin því flest sjálfstæðar einingar hvað varðar breytingar á fjölda varpfugla.5 Með þessar niðurstöður í huga var ákveðið að sameina ekki æðar- vörp í þessari rannsókn nema þau væru afar nálægt hvort öðru, og þá því aðeins að þau segðu bæði sömu sögu eða sterkar vísbendingar væru um að sömu kollur notuðu bæði vörpin. Almennt var látið gilda að talningaraðir voru sameinaðar þegar vörpin voru í innan við 5 km fjarlægð hvort frá öðru og ferlar innan tímabils voru ekki sýnilega frábrugðnir a.m.k. 95% talningaráranna. Fyrir hverja talningaröð var fjöldi hreiðra hvers árs umreiknaður. Árið 2005 í hverri röð fékk gildið 100 og breytingar frá því voru gefnar í prósentum. Fyrir vikið fékkst sam- ræmdur mælikvarði til að meta breytingar í prósentum milli ára, sem m.a. auðveldaði samanburð milli nærliggjandi varpa. Fjöldi hreiðra er vísitala sem sýnir ástand varps á skilgreindu svæði. Notkun þessarar vísitölu hefur bæði kosti og galla.33 Æðarkollur sleppa stundum úr varpárum, sem veldur því að líkast til verður að líta á fjölda hreiðra sem lágmarksfjölda þegar metinn er fjöldi fullorðinna kvenfugla í stofninum.34 Æðarvarp byrjar yfirleitt á svipuðum tíma en dæmi eru um ár þar sem varpi seinkar.29 Æðarbændur tína þó yfirleitt dúninn á svipuðum tíma og í seinu varpári eru því e.t.v. nokkrar kollur ekki orpnar við dúntínslu. Þetta getur valdið nokkurri skekkju við talningu hreiðra sum ár. Tekið skal fram að örnefnin Brokey, Flatey, Hergilsey, Rif- girðingar og Hvallátur eru hér notuð um eyjaklasana sem lúta eignarhaldi jarðanna sem bera þessi nöfn (þeir fjórir fyrstnefndu eru stundum nefndir Brokeyjarlönd, Flateyjarlönd, Hergilseyjarlönd og Rifgirðingalönd) en ekki einungis heimaeyjarnar með sömu nöfnum. Hins vegar benda önnur eyjanöfn í eintölu á stakar eyjar. Eyjaklasinn Hvallátur (samtala fyrir 119 eyjar) í Vestureyjum er einnig þekktur undir nafninu Látur eða Látralönd. Flatey á Breiðafirði er hér í tvennu lagi enda nýtt af tveimur bændum (1. tafla), og er það sýnt með heitunum Flatey 1 og Flatey 2. Sama gildir um Hrísey í Eyjafirði sem er aðgreind í Hrísey norður og Hrísey suður. Framsetning á myndum er samræmd með þessum hætti: 1) Öllum talningum er breytt í prósentur, árið 2005 (sameiginlegt öllum gagnaröðum) fastsett sem 100% en önnur ár látin taka mið af því. 2) Reiknað er 5 ára keðjumeðaltal. 3) Stopular gagnaraðir eða raðir þar sem talningar voru óreglulegar eru sýndar sem punktar á myndum en samfelldar talningar sem óbrotnar, punktalausar línur. Mat á landsvísitölu Með því að leggja saman hreiður- tölur úr öllum æðar vörpunum, áður en þær eru reiknaðar í vísitölu, fæst lands vísitala æðarfugls 1977–2007. Með því að leggja fyrst saman fjölda hreiðra var tryggt að vörp hefðu vægi í réttu hlutfalli við fjölda hreiðra innan þeirra. Æðarvörpum er hér skipt í þrjá hópa, A, B og C, eftir því hversu lengi hreiður hafa verið talin. Markmiðið er að nýta allar talningar, ekki síst til að menn sjái stöðuna í hverju varpi fyrir sig gagnvart landsmeðaltali. Á nokkrum stöðum ná talningar langt aftur í tímann en víðast ná þær styttra. Mat á fjölda hreiðra lengra aftur í tímann en um þrjá áratugi byggist því á fáum, löngum talningum (hópur A, talið 1977– 2007 eða lengur), en upplýsingum úr styttri talningaröðunum (hópar B, talningar hófust 1991–2000 og C, talningar hófust 2001–2003) er bætt við samanlögðu töluna frá og með 2001 (1. tafla). Hópar æðarvarpa eftir lengd gagnaraða/talninga Hópur A. Gögn fengust úr 17 æðarvörpum þar sem talið var 1977– 2007 eða lengur. Þetta eru 16 af 17 æðarvörpum sem höfðu áður verið greind til að kanna hvort tengsl væru milli fjölda æðarhreiðra og veðurfars á Íslandi,5 en auk þess bættust Hvallátur í Vestureyjum (en svo nefnast saman þeir eyja- klasar sem tilheyrðu áður gamla Flateyjarhreppi) nú í hópinn. Á móti kemur að Rifgirðingar eru ekki teknar með heldur hafðar í hópi B, því þar var talið óreglulega 1930– 1992. Með því að leggja saman fjölda hreiðra í þessum 17 vörpum fékkst landsvísitala áranna 1977–1990. Hópur B. Á árunum 1991–2000 hófust talningar í tíu æðarvörpum til viðbótar en í fimm þeirra var talið óreglulega til að byrja með. Raðirnar í þessum hópi byrja sumsé 1991 en eru yfirleitt stopular til 2001. Í öllum þessum tíu vörpum eru hins vegar til árlegar talningar frá NFr_3-4 2015_final.indd 143 30.11.2015 16:34

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.