Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 17

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 17
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 móts við fræðsluþörf þeirra. Tekið var viðtal við sjúklingana daginn fyrir útskrift. Flestum fannst fræðslan, sem þeir fengu, vera óljós eða of almenn, þ.e. hún var ekki einstaklingsmiðuð. Sögðust 36% sjúklinganna ekki hafa verið fræddir um hvernig bregðast ætti við ef þeir fengju brjóstverk. Einnig var athugað hvað þeir töldu vera helstu áhættuþætti sína. Töldu 32% of mikið vinnuálag vera helsta áhættuþáttinn, 28% streitu, 24% reykingar, 20% offitu, 8% áhyggjur, of litla hreyfingu og fleira. Rann- sóknin sýnir að sjúklingar telja andlegt álag, s.s. of mikið vinnuálag og streitu, vera aðaláhættu- þættina. Þrátt fyrir það fengu þeir litla eða enga fræðslu um þessa þætti. í 56% tilvika sögðu sjúklingar að þeir hefðu ekki verið spurðir um hvað þeir héldu að væru þeirra helstu áhættu- þættir. Chan (1990) kannaði hjá 30 sjúklingum, sem fengið höfðu kransæðastíflu, hvað þeim fannst mikilvægast að fá fræðslu um fyrir útskrift. Þeim þótti mikilvægast að fá fræðslu um það sem gæti komið í veg fyrir að þeir fengju aðra kransæðastíflu. Þessir þættir eru m.a. áhrif lyfja, uppbygging og starfsemi hjartans og áhættu- þættir. Tilley, Gregor og Thiessen (1987) komust að þeirri niðurstöðu að töluverður munur er á því hvað hjúkrunarfræðingar fræddu sjúklinginn um og á því sem hann vildi fá að vita. Þess vegna virðist fræðslan ekki gagnast sjúklingn- um sem skyldi. Sömu niðurstöður sýnir rann- sókn Karlik og Yarcheski (1987). f þeirri rann- sókn töldu 80% sjúklinganna sig hafa fengið bestu upplýsingarnar um daglegar athafnir eftir kransæðastíflu frá hjúkrunarfræðingum, en 44% sjúklinganna töldu að þeir hefðu fengið gagnlegustu upplýsingarnar um hvað hefði komið fyrir þá frá læknum. Einnig kom fram að sumir sjúklinganna fengu mesta fræðslu frá öðrum sjúklingum. Nemendur í námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands gerðu könnun á fræðsluþörfum kransæðasjúklinga á hjartadeild Landspítalans (Anna Lilja Gunnarsdóttir, Ingibjörg ívarsdóttir, Sólveig Hauksdóttir og Steinunn Gunnars- dóttir, 1985). Kannaðar voru fræðsluþarfir kransæðasjúklinga og nánasta aðstandanda þeirra. Spurningalisti var sendur heim nokkrum vikum eftir útskrift af deildinni. Einnig voru könnuð viðhorf lækna og hjúkrunarfræðinga á hjartadeild Landspítalans til fræðsluþarfa kransæðasjúklinga og hvernig fræðslan var veitt. Niðurstöður þeirra sýndu að meirihluti sjúklinganna taldi sig þurfa mjög mikla fræðslu um mataræði, viðbrögð við hjartaverk, ein- kenni kransæðastíflu og líkamshreyfingu. Yfir- gnæfandi meirihluti sjúklinganna taldi sig ekki hafa fengið mikla fræðslu um neinn þessara þátta. Hins vegar töldu læknar og hjúkrunar- fræðingar sig veita fræðslu um þessa þætti. Sjúklingarnir töldu sig líka þurfa fræðslu um ýmsa áhættuþætti, s.s. reykingar, háþrýsting og háa blóðfitu, en aftur á móti lögðu þeir minni áherslu á þætti eins og starfsemi hjartans, and- legt álag og félagslega þætti. Sjúklingarnir fengu litla eða enga fræðslu á rituðu máli en töldu það vera áhrifaríkustu fræðsluaðferðina. Næstárang- ursríkust fannst þeim fræðsla á töluðu máli. Reynsla þeirra var að sú fræðsla væri yfirleitt veitt á skýru og einföldu máli. í könnunni kom einnig fram að meirihluti aðstandenda taldi sig ekki fá neina fræðslu þó að meirihluti hjúkr- unarfræðinganna teldi að fræðsluþörfum aðstandenda væri sinnt. Mikil breyting verður á lífsmynstri fjölskyld- unnar þegar einhver innan hennar verður fyrir því áfalli að fá kransæðastíflu. Makarnir segjast stundum haldnir miklum kvíða og þunglyndi eftir að sjúklingarnir útskrifast. Þeim finnst þeir ekki fá nægar upplýsingar og stuðning frá heil- brigðisstarfsfólki. Athyglin beinist öll að því að fræða sjúklinginn þannig að fræðsla til maka og ættingja vill gleymast (Thompson og Cordle, 1988). Miller o.fl. (1989) könnuðu hvort 81 ein- staklingur, sem fengið hafði kransæðastíflu, breytti um lífsstíl eftir útskrift. Lagðar voru spurningar fyrir sjúklingana áður en þeir út- skrifuðust, þrjátíu og sextíu dögum eftir útskrift
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.