Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 52
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 höfðu einfaldlega ekki hlotið fræðilegan undir- búning í fyrirlestrum. Sem dæmi má nefna að nokkrir nemendur sóttu klínískt nám á hjarta- deild án þess að hafa fengið fyrirlestra í hjúkrun hjartasjúklinga né kennslu um hjartasjúkdóma. Að auki var nauðsynlegt að setja saman á deild fleiri nemendur en æskilegt er þegar tekið er tillit til námstækifæra sem buðust á viðkomandi deildum. Ekki tókst að koma öllum nemendum fyrir á barnadeildum nú í vetur og varð því hluti þeirra að sækja klínískt nám í barnahjúkrun í júní. Námsbraut í hjúkrunarfræði hefur heldur ekki á að skipa nægilega mörgum fastráðnum kennurum til að bæta við sig þeirri miklu vinnu sem fylgir þessari fjölgun nemenda. Til saman- burðar má geta þess að fjöldi stúdenta á kennara í hjúkrunarfræði er 18,8 stúdentar, í læknisfræði eru 3,8 stúdentar á kennara, í lyfjafræði lyfsala eru þeir 11,2 á kennara, í raunvísindadeild eru 9,2 stúdentar á kennara, íverkfræðideild 11,6, ítannlæknadeild2,5 ogísjúkraþjálfuneru 14,5 stúdentar á hvern kennara. Þessar deildir eru nefndar því þær eru sambærilegar við hjúkr- unarfræðina að því leyti að þar fer fram mikil verkleg kennsla. í ljósi þessarar reynslu, þ.e. að 90 nemenda hópur er einfaldlega of stór til að unnt sé að veita viðunandi klíníska kennslu, var gerð athugun á meðal kennara klínískra námskeiða til að kanna æskilegan fjölda nemenda ínámskeiðum. Niður- staðan var að flestir sáu sér fært að veita 60 nemendum viðunandi kennslu. í framhaldi af því var sótt um heimild til háskólaráðs til þess að beita fyrrnefndri reglugerðarheimild og takmarka fjölda nemenda sem heldur áfram námi á vormisseri 1. námsárs við 60 nemendur. Sú heimild var veitt og samkvæmt nýjustu tölum um nýskráningar koma 134 stúdentar til með að keppa um þessi 60 námspláss í hjúkrunar- fræði. Rannsóknadagur námsbrautar f hjúkrunarfræði Frá vorinu 1989 hefur verið haldinn rannsókna- dagur námsbrautar í hjúkrunarfræði, en þá kynna hjúkrunarkandídatar lokaverkefni sín. Markmið með rannsóknadeginum er tvíþætt. Annars vegar er verið að gefa hinum verðandi hjúkrunarfræðingum tækifæri til að koma á framfæri þeirri þekkingu sem þeir hafa aflað við gerð lokaverkefnis síns og þjálfa þá í að gera fræðilega grein fyrir máli sínu opinberlega. Hins vegar er námsbraut í hjúkrunarfræði formlega að kveðja nemendur sína og óska þeim góðs gengis á þeim starfsvettvangi sem þeir velja sér. Mjög vel hefur tekist til með alla rannsókna- dagana til þessa. Er það almenn skoðun kennara og annarra er hingað hafa komið að kandídat- arnir hafi staðið sig einstaklega vel. Til rann- sóknadagsins er formlega boðið aðstandendum kandídatanna, forsvarsmönnum sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, hjúkrunarfélaganna og Há- skólans, 10 og 25 ára afmælisárgöngum hjúkr- unarfræðinga og öllum þeim sem á einhvern hátt tengdust rannsóknaverkefnum nemendanna. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér rannsókna- verkefnin frekar eru sömuleiðis ávallt vel- komnir. Prófessorsstaöa í hjúkrunarfræði í vor var nokkuð til umræðu auglýsing Háskól- ans á Akureyri um stöðu prófessors í öldrunar- hjúkrun. Það er mikilsverð viðurkenning á hjúkrunarfræði sem vísindagrein þegar ríkis- valdið ákveður að stofna til prófessorsstöðu í hjúkrunarfræði. Til námsbrautar í hjúkrunarfræði hafa komið fyrirspurnir frá hjúkrunarfræðingum um hvernig standi á því að Háskóli íslands hafi ekki fengið prófessorsstöðu í hjúkrunarfræði. Rétt er að fram komi að Háskólinn hefur haft á að skipa slíkri stöðu frá 1986. Námsbraut íhjúkr- unarfræði sá hins vegar ekki ástæðu til að aug- lýsa eftir prófessor í hjúkrunarfræði á þeim tíma því að ljóst var að hér á landi voru engir hjúkr- unarfræðingar sem uppfylltu skilyrði fyrir slíka stöðu. Var ákveðið að nýta prófessorsheimildina í lektorsstöður og styðja þannig við bakið á hjúkrunarfræðingum sem uppfylltu skilyrði sem gerðar eru til lektors en þurftu á umtalsverðri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.