Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 30

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 30
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 lyf sín rétt. í þessari könnun var athugað minni einstaklingsins, sjón hans, næmi í fingrum og geta hans til að opna lyfjaglös. Athyglisvert er að af þeim 25 einstaklingum, sem voru með skert minni (MMSE<24), sáu tíu að öllu leyti sjálfir um lyfjatöku sína. Nítján þátttakenda (28%) voru með skerta sjón. Af þeim voru átta einstaklingar sem sáu um lyf sín sjálfir eða 42% sjónskertra. Það virðist vera ískyggilega hátt hlutfall, sérstaklega þegar borið er saman við könnun Meyer og Schuna (1989), en þar kom fram að 16% sjónskertra sáu sjálfir um lyf sín. Hins vegar er úrtakið í þessu tilfelli orðið svo smátt að skekkjumörk verða óeðlilega há. Eins og niðurstöður sýndu voru rúmlega 22 % þátttakenda með skerta stjórn á handahreyf- ingum. Af því má álykta að þeir eigi erfitt með, eða séu ófærir um að handfjatla töflur, t.d. að ná þeim úr skammtaboxi. Þegar kannað var hvernig þátttakendum gengi að opna lyfjaglösin gátu 40% þeirra ekki opnað glas nr. 2, glasið með barnalæsingunni. Skert MMSE eða sjóndepra hafði engin áhrif þar á. f þessu sambandi má benda á rannsókn Hurds og Butkovich (1986) sem sýndi að rúmlega 30% aldraðra gátu ekki opnað glas með barnalæsingu Hins vegar má geta þess að marktækur munur kom framáþvíhve sjóndapriráttu ímeirierfið- leikumenaðrirmeðaðopnaglasnr. 5. Um20% þátttakenda gátu ekki opnað það. Óhætt virðist því að álykta að glös nr. 2 og 5 henti öldruðum illa. Sýnt hefur verið fram á að heppilegustu glösin eru þau sem komast fyrir í lófa og eru með skrúfuðu loki eða með smelltu loki með flipa. Þetta samræmist niðurstöðum okkar og sýnir fram á mikilvægi þess að við afhendingu lyfja til aldraðra sé gengið úr skugga um að viðkom- andi geti opnað glösin. Það er eftirtektarvert að 70% þátttakenda höfðu ekki lyfjakort. Hjá þeim sem höfðu lyfja- kort gætti mikils ósamræmis íþví hvaða lyf voru skráð á kortið og hvaða lyf voru notuð. Sam- kvæmt þessu virðist notkun lyfjakorta ekki eins algeng sem ætla mætti og gagnsemin minni. Þessir 67 einstaklingar voru með 524 lyf alls. Að meðaltali eru það nánast 8 lyf á mann. Þessi tala er hærri heldur en í ýmsum hliðstæðum könnunum (Ali, 1992, Chenitz o.fl., 1990, Bream, 1985, Atkinson o.fl., 1977, Elísabet Tómasd., 1991). Áberandi var hvað fólk var með í fórum sínum mörg lyf sem það var hætt að taka. Þau voru 126 talsins eða 24% af heildarfjölda lyfja í könnun- unni. Það virðist ekki vera nógu brýnt fyrir fólki að láta eyða lyfjum sem það er hætt að nota. Áberandi er að meira en helmingur þátttak- enda átti lyf í lyfjaflokkunum N05 og N02 sem eru geðlyf, róandi lyf og svefnlyf. MacGuire o.fl. (1987) benda á að óráðlegt sé að fela öldruðum umsjá fleiri en þriggja lyfja. Athyglisvert er í því sambandi að í þessari könnun kom fram að af þeim þátttakendum, sem áttu eitt til þrjú lyf og sáu um þau sjalfir, tók enginn þau rétt. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar tóku 82% þáttakenda lyf sín ekki rétt. Taka ber þó tillit til þess að sumir þeirra töldu sig hafa átt eldri skammt fyrir þegar þeir fengu nýjan og þá gat verið erfitt að meta hvað var rétt og hvað rangt. Útkoman er þó í samræmi við þær niðurstöður sem Skúlijohnsen o.fl. (1977) fengu í könnun sem þeir gerðu 1976. Þar var kannaður fjöldi lyfja sem rangt var tekinn. Hann reyndist þar vera um 70% tekinna lyfja eins og í þessari könnun. Lokaorö Þegar könnuð var fylgni milli þekkingar þeirra, á lyfjunum, sem tóku þau til, og réttrar töku þeirra kom í ljós að jafnvel þótt þekking væri í meðallagi og þar yfir voru einungis 30-40% líkur á að þau væru rétt tekin. Þessar niðurstöður sýna að þótt nauðsynlegt sé að fræða fólk um lyfin og verkun þeirra þá dugar sú fræðsla ekki ein sér. Jafnframt er nauðsynlegt að þjálfa fólk í að taka lyfin til. Síðast en ekki síst þarf að meta á markvissan hátt hvort fólk er fært um að sjá um lyfsín, en tryggja ella að einhver sem til þess er fær hljóti nauðsynlega fræðslu og þjálfun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.