Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 54
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 í þessu sambandi má geta þess að kostnaður á nemanda í Hjúkrunarskóla íslands síðasta heila starfsár skólans (1985) var 285 þús. kr. Árið 1992 námu útgjöld námsbrautar íhjúkr- unarfræði 66,5 m. kr. Fjárveiting hljóðaði upp á 56,6 m. kr. Helmingur rekstrarhalla, eða 4,5 m. kr., var færður á milli áraánámsbrautíhjúkr- unarfræði. Á árinu 1992 var mikið sparað í hjúkr- unarfræðinni. Svo til engum eyri var eytt í rann- sóknir kennara (kennarar annarra deilda Há- skólans búa ekki við þannig aðstæður), fjölgað var í umræðuhópum í klfníska náminu (það reyndist ógerlegt að halda því til streitu lengur en eitt misseri), fyrirkomulagi verknáms í líf- eðlisfræði var breytt til aukinnar hagræðingar (tekið skal fram að það var einungis gert hjá hjúkrunarfræðinemum), komið á ódýrari kennslu í stóru klínísku námskeiðunum. Svo mætti lengi telja. Þrátt fyrir þennan sparnað fór- um við 9 m. kr. fram úr fjárveitingum, sem sýnir aðeins eitt. Fjárveitingar voru svo naumar að okkur var engan veginn fært að vera innan þeirra. Þess má og geta að fjórir kennarar náms- brautarinnar voru í rannsóknarleyfum og nokkrir íbarnsburðarleyfum, eða sem svarar 1,5 stöðu. Barneignir kennara í námsbraut í hjúkr- unarfræði koma beint niður á fjárveitingum til hjúkrunarkennslu því námsbrautin fær ekki aukafjárveitingu vegna barnsburðarleyfa þeirra. Fjarveitingar til viöbótar- og endur- menntunar Flutningur á starfsemi NHS yfír í Háskóla íslands virðist eftir á að hyggja hafa verið stórslys. Við- bótar- og endurmenntun hjúkrunarfræðinga var lögð af með lokun skólans. Margra ára baráttu hjúkrunarfræðinga fyrir framhaldsnámi hér heima og 18 ára farsælt starf NHS var skorið í burtu undir því yfirskini að um flutning á starf- semi yrði einungis að ræða. Reyndin er hins vegar sú að ekki hafa fengist fjárveitingar til að reka viðbótar- og endurmenntun hjúkrunar- fræðinga innan vébanda námsbrautar í hjúkr- unarfræði. Framreiknaður kostnaður við rekstur Nýja hjúkrunarskólans fyrir árið 1985 er um 23 m. kr. Kostnaður á hvern hjúkrunarfræðing í viðbótar- og endurmenntun í dag er um 74 þús. kr. Árið 1985 var framreiknaður kostnaður á hvern hjúkrunarfræðing í viðbótar- og endur- menntun 390 þús. kr. Þá var að vísu í gangi námsleið fyrir ljósmæður í hjúkrunarnámi, sem reyndist mjög dýrt nám, en það er sama, árið 1989 var kostnaður á hvern nemanda í NHS 316 þús. kr. f fjárlagatillögum fjármálanefndar Háskóla íslands fyrir árið 1993 stendur: ,,með yfirtöku Nýja hjúkrunarskólans jukust umsvif náms- brautarinnar mjög en fjárveitingar ekki að sama skapi, og miðað við núverandi fjárveitingar er ekki hægt að halda uppi kennslu í viðbótar- og framhaldsnámi á haustmisseri 1992“ og að „þeim viðbótarverkefnum (viðbótar- og endur- menntun hjúkrunarfræðinga) sem námsbrautin leggur til að komið verði á laggirnar verður ekki komið fyrir innan fjárveitingarammans að svo stöddu.“ Hvað varð um þær milljónir sem veitt var til viðbótar- og endurmenntunar hjúkrunar- fræðinga á meðan NHS var starfandi? Ég vil upplýsa hjúkrunarfræðinga um að stjórn námsbrautar í hjúkrunarfræði neitar alfarið að taka þá ákvörðun að ekki verði boðið upp á viðbótarnám. Það er afstaða stjórnarinnar að Menntamálaráðuneytið hafi falið námsbraut- inni þetta verkefni og því mun verða sinnt. Það er ráðuneytisins að útvega fjármagn til verkefnisins. Rannsóknir Rannsóknir í hjúkrunarfræði hafa eflst mjög á undangengnum árum. í Rannsóknaskrá Háskóla íslands, sem kemur út á tveggja ára fresti, er að finna upplýsingar um rannsóknir í hjúkrunar- fræði. Einnig er reglulega greint frá rannsókn- um í hjúkrunarfræði á síðum Fréttabréfs í hjúkrunarfræði, sem ég hvet hjúkrunarfræðinga eindregið til að gerast áskrifendur að. í málstofu í hjúkrunarfræði, sem haldin er síðasta mánudag hvers mánaðar yfír vetrartímann, eru hjúkrunar- rannsóknir einnig kynntar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.